Fréttablaðið - 19.02.2021, Blaðsíða 18
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Kristín Björg Hrólfsdóttir er annar eigenda Hermosa og hún segir markmið fyrirtæk-
isins vera skýrt. „Við horfum ekki
á Hermosa sem verslun heldur
þjónustufyrirtæki. Við viljum
einfaldlega verða besta netverslun
á landinu, hvort sem við erum að
tala um kynlífstækjaverslanir eða
aðrar netverslanir.“
Hún nefnir nokkur atriði sem
geri þeim kleift að uppfylla mark-
mið sín. „Þetta gerum við með
einfaldri vefsíðu, gegnsæi í verðum
(sem þýðir að viðskiptavinir þurfa
ekki óttast um falin verð sem
bætast við í kaupferlinu) og með
spjallinu okkar þar sem hægt er að
hafa beint samband við starfs-
mann. Eins og sjá má á umsögnun-
um okkar er þjónustunni hrósað
mikið.“
Toppþjónusta og lágt verð
Þjónustan miðar öll að því að
tryggja ánægju viðskiptavina og
einfelda kaupferlið. „Við státum
okkur af betri þjónustu en það sem
að við gerum sem aðrir eru ekki að
gera er til dæmis það að við bjóð-
um upp á 30 daga skilafrest í stað
14 daga sem er samkvæmt lögum
og við erum með þetta „live“ spjall
á síðunni. Við erum með fría
afhendingu á öllum vörum, óháð
verði, þannig að jafnvel þó að þú
kaupir bara sleipiefni þá geturðu
treyst því að afhendingin sé frí,“
segir Kristín.
„Þá bjóðum við enn fremur upp
á að samdægurs af hendingu, ekki
einungis á höfuðborgarsvæðinu
heldur líka í nærumhverfi. Vörur
sem eru pantaðar lengra í burtu
úti á landi eru yfirleitt af hentar
daginn eftir. Við leggjum líka
gríðarlega mikla áherslu á lágt
verð og erum oftast með betra
verð á vörunni þótt að heims-
endingin sé frí. Síðan viljum
við benda fólki á við erum með
svokallaðan Unaðsklúbb þar sem
viðskiptavinir fá afslátt af næstu
kaupum.“
Hermosa er eingöngu á netinu
en býður viðskiptavinum úrval
afhendingarmáta þar sem valið
stendur á milli þess að sækja vörur
í vöruhús, fá heimsent (höfuð-
borgarsvæðið), sækja á N1 eða
útibú flytjanda, hvað sem hentar
hverjum viðskiptavini fyrir sig.
Vinsælustu vörurnar í fyrra
Kristín segir vinsælustu vöruna
í fyrra hafa verið Fullnægingar-
vöndinn eða Satisfyer Wand, sem
sé í senn öf lugur, mjúkur við-
komu og fallegur á að líta. Hann
henti líka vel í forleik og er full-
kominn í að nudda líkamann og
uppgötva og örva næmu staðina á
bólfélaganum.
Næstvinsælust var Multifun 3
sem er hægt er að nota á marga,
eða nánar tiltekið 32, vegu og
jafnvel f leiri ef þú ert hugmynda-
rík/ur. Það er frábært hvort sem
maður er ein/n síns liðs eða með
félaga og það er tilvalið að prófa
það á hvort öðru í forleik.
Þriðja vinsælasta varan var
Satisfyer Pro 3 sem er sogtæki en
þau eru ein árangursríkasta leiðin
til þess að örva snípinn. „Það sem
er líka svo stórkostleg við tækið
er að það er einnig með titring og
hægt er að velja á milli 11 sogstill-
inga og 10 stillinga af titringi. Það
er því hægt að leika sér endalaust
með tækið og það er líka svo nett
að það er ákaf lega þægilegt í
notkun,“ útskýrir Kristín.
„Fyrir þau sem eru að stíga sín
fyrstu skref í heimi unaðstækja er
svo sérstök síða í netversluninni
þar sem hægt er að skoða vörur
sem eru fullkomnar fyrir byrj-
endur. Þar eru sogtækin áberandi
en þau hafa reynst afar vel og
hvað titrara snertir þá er Slimline
kanínutitrarinn óviðjafnan-
legur.“
Strangt og kröfuhart ferli
Kristín segir ríkan metnað lagðan
í að finna og bjóða upp á bestu
hugsanlegu vörurnar. „Fyrst
skoðum við hvað er að seljast
mikið hjá okkar byrgjum. Við
förum yfir þessar vörur og tökum
út þær vörur sem ekki eru endur-
hlaðanlegar því við viljum þær
ekki. Næst skoðum við umsagnir
um vörurnar. Ef að umsagnir eru
góðar, byrginn staðfestir að lítið sé
um bilanir og framleiðandinn er
áreiðanlegur þá pöntum við inn.“
Ferlið tryggir
það að vörurnar
geti uppfyllt ítrustu
kröfur viðskipta-
vina. „Við erum með
mjög strangt ferli í að taka inn
nýjar vörur, sérstaklega ef það er
framleiðandi sem við höfum ekki
prófað áður, sem verður til þess að
við tökum bara inn hágæðavörur.
Um leið og við sjáum að vara
bilar oft (um 5% skil vegna galla
sem almennt telst eðlilegt þó) þá
tökum við ekki inn þá vöru aftur.
Það hefur þó eingöngu gerst einu
sinni hjá okkur þar sem að við
erum með ítarlegt ferli áður en við
tökum vörurnar inn.“
Meðal þeirra vara sem hafa
fengið afar góðar viðtökur eru
FunFactory vörurnar. „Við hófum
að flytja inn vörurnar frá þeim á
síðasta ári en þetta eru háklassa
vörur frá Þýskalandi og fer öll
framleiðsla fram þar með
tilheyrandi gæðastimpli.
Þetta er líka mun
umhverfisvænna þar sem
þetta er ekki f lutt langar
vegalengdir eins og frá
Kína til Þýskalands og
þaðan hingað svo dæmi
sé tekið.“
Bjóða upp á ánægju-
vernd
Kristín segir þau sífellt leita
nýrra leiða til að auka ánægju
viðskiptavina. „Sérstaðan okkar
er vissulega þjónusta og við erum
alltaf að hugsa upp á einhverju
nýju til að bæta þjónustuna enn
frekar. Núna erum við að byrja
á „ánægjuvernd“ (Satisfaction
guaranteed) sem þýðir að ef við-
skiptavinurinn er ekki ánægður
með vöruna getur hann skilað
henni og fengið nýja sambærilega
vöru í staðinn.“
Þessi þjónusta njóti algjörrar
sérstöðu, ekki einungis hér á landi
heldur sennilega einnig á heims-
vísu. „Þetta er engin kynlífstækja-
verslun á landinu að bjóða upp
á, og í raun fáar í heiminum sem
bjóða þetta. Ánægðir viðskipta-
vinir okkar auka metnaðinn
okkar í að finna nýja hluti til að
gera enn betur.“
Kristín segir þau mikið hafa
velt fyrir sér hverjir séu þeirra
helstu viðskiptavinir en
hópurinn er fjölbreyttur
og á öllum aldri. „Það er
gaman að segja frá því að
karlmenn eru ekki síður
að versla hjá okkur en
konur og eru þeir ótrú-
lega duglegir að versla
fyrir konurnar sínar.“
Hægt er að skoða
úrvalið á: her-
mosa.is
Kristín Björg segir viðskiptavinum Hermosa nú standa til boða enn rýmri skilafrestur ef varan uppfyllir ekki þeirra kröfur. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Fun Factory Ladi Bi titrarinn býður
upp á ótal ánægjulegra möguleika.
Satisfyer Monoflex er æðislegur.
Love Triangle sogtækið er vinsælt.
Fun Factory Lava Egg er í senn kraftmikið og mjúkt. Unaðsleg múffa sem svíkur engan.
Framhald af forsíðu ➛
Eins og sjá má þá eru
tækin ákaflega nett og
fallega hönnuð.
2 KYNNINGARBLAÐ 1 9 . F E B R ÚA R 2 0 2 1 F Ö S T U DAG U RUNAÐSVÖRUR