Fréttablaðið - 19.02.2021, Blaðsíða 9

Fréttablaðið - 19.02.2021, Blaðsíða 9
Í DAG Þórlindur Kjartansson Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf. 12. mars 2021 Drög að dagskrá fundarins eru svohljóðandi: 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári. 2. Endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir síðastliðið reikningsár lagðir fram til samþykktar. 3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar á síðastliðnu reikningsári. 4. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins. 5. Tillaga um lækkun hlutafjár vegna kaupa á eigin hlutum. 6. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins. 7. Formaður tilnefningarnefndar gerir grein fyrir störfum nefndarinnar. 8. Kosning stjórnar félagsins. 9. Kosning endurskoðanda eða endurskoðunarfélags. 10. Ákvörðun um þóknun stjórnar félagsins og tilnefningarnefndar. 11. Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum. 12. Önnur mál löglega upp borin. Stjórn Sjóvár hefur ákveðið að aðalfundurinn verði einnig rafrænn, þ.e. hluthafar geti tekið þátt í fundinum með rafrænum hætti í gegnum aðalfundakerfi Lumi AGM. Rafræn þátttaka mun því jafngilda mætingu á fundinn og veita þátttöku í honum að öðru leyti. Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á að sækja fundinn, hvort sem þeir ætla að mæta á fundarstað eða fylgjast með fundinum í vefstreymi, þurfa að skrá sig til að nálgast aðgangsupplýsingar á vefsvæðinu www.smartagm.com. Hluthafar eru beðnir um að skrá sig tímanlega á fundinn og helst eigi síðar en kl. 17:00 þann 11. mars, eða degi fyrir fundardag, þar sem ekki er hægt að tryggja aðgang að fundinum berist skráning eftir þann tíma. Þeir sem skrá sig til fundar með rafrænum hætti fá aðgang að streymi af fundinum, geta kosið rafrænt og borið upp skriflegar spurningar. Atkvæðagreiðsla á fundinum mun eingöngu fara fram í gegnum aðalfundakerfi Lumi AGM. Allir hluthafar, hvort sem þeir mæta til fundarins á fundarstað eða taka þátt með rafrænum hætti, eru hvattir til að hlaða niður smáforriti Lumi AGM í eigin snjalltæki, en jafnframt geta þeir greitt atkvæði í gegnum vefslóð Lumi AGM á tölvu eða spjaldtölvu. Nánari upplýsingar um skráningu á fundinn og framkvæmd kosninga verðar birtar á vefsvæði félagsins, www.sjova.is/um-okkur/ fjarfestar/adalfundur-2021/. Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafafund fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt eða rafrænt umboð og skal það dagsett. Umboðum skal skila við skráningu á fundinn á slóðinni www.smartagm.com. Hluthafar eiga rétt á að leggja fram mál eða ályktunartillögur fyrir fundinn ef gerð hefur verið skrifleg eða rafræn krafa um það eigi síðar en 10 dögum fyrir fund, þ.e. eigi síðar en kl. 15:00 þriðjudaginn 2. mars 2021. Hafi hluthafar krafist þess að tiltekið mál eða ályktun verði tekið fyrir verða endanleg dagskrá og tillögur uppfærðar á vef félagsins eigi síðar en þremur dögum fyrir aðalfundinn. Hægt er að senda tillögur, ályktanir eða spurningar fyrir fundinn á netfangið stjorn@sjova.is. Hluthafar geta einnig lagt fram spurningar er varða auglýsta dagskrárliði á aðalfundinum sjálfum. Tillögur stjórnar um breytingar á samþykktum lúta í stuttu máli að lækkun hlutafjár, orðalagsbreytingu um starfstíma endurskoðanda, heimild til að halda hluthafafund eingöngu rafrænt og heimild til rafrænna skjalasamskipta við hluthafa. Tilnefningarnefnd er að störfum í samræmi við samþykktir félagsins. Hluthafar og aðrir sem óska eftir tilnefningu nefndarinnar til framboðs til stjórnar á aðalfundi hafa átt þess kost að koma áhuga sínum, og eftir atvikum framboði, á framfæri við nefndina. Samkvæmt fyrirliggjandi tillögu tilnefningarnefndar gerir hún tillögu um að þau Björgólfur Jóhannsson, Guðmundur Örn Gunnarsson, Hildur Árnadóttir, Ingi Jóhann Guðmundsson og Ingunn Agnes Kro verði kjörin til setu sem aðalmenn í stjórn og þau Erna Gísladóttir og Garðar Gíslason verði kjörin sem varamenn. Frestur til að tilkynna framboð til stjórnar lýkur fimm sólar- hringum fyrir upphaf aðalfundar, þ.e. sunnudaginn 7. mars 2021 kl. 15:00, en vegna eðlis og umfangs starfa tilnefningarnefndar er ekki tryggt að nefndin geti lagt mat á framboð sem berast eftir að tvær vikur eru til fundarins, þ.e. eftir kl. 15:00 föstudaginn 26. febrúar 2021. Framboð skulu berast á netfangið tilnefningarnefnd@sjova.is. Framboðseyðublöð er hægt að nálgast á vefsvæði félagsins. Breytist tillaga nefndarinnar frá því er fram kemur í fundarboði þessu verður endurskoðuð tillaga birt eigi síðar en 10. mars 2021. Upplýsingar um alla frambjóðendur verða birtar á vefsvæðinu www.sjova.is/um- okkur/fjarfestar/adalfundur-2021/, að lágmarki tveimur dögum fyrir aðalfund. Endanleg dagskrá aðalfundar og fundargögn, þ. á m. tillögur stjórnar, sem lögð verða fyrir aðalfund, auk annarra upplýsinga og eyðublaða í tengslum við aðalfundinn, verða birt á vefsvæði félagsins, www.sjova.is/um-okkur/fjarfestar/adalfundur-2021/. Aðalfundur er lögmætur, án tillits til fundarsóknar, ef löglega er til hans boðað. Aðalfundur og fundargögn verða á íslensku. Reykjavík 18. febrúar 2021. Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. Sjóvá 440 2000 sjova.is Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. boðar til aðalfundar sem haldinn verður í fundar- sölum H og I á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, föstudaginn 12. mars 2021 kl. 15:00. Jafnframt verður gefinn kostur á rafrænni þátttöku á fundinum. Mest óþolandi eiginleiki flestra frægra leikara er að þegar öllu er á botninn hvolft þá eru þeir mjög hæfileika- ríkir, vinnusamir og þrautseigir. Vissulega eru þeir jafnan mjög fríðir ásýndum og þægilegasta ályktunin fyrir okkur hin er að allt þetta fólk hafi náð árangri fyrst og fremst í krafti áskapaðrar fegurðar. Fyrir nokkrum árum barst mér til eyrna saga af heimsfrægum amer- ískum leikara sem fór í hálendis- göngu í góðum hópi á Íslandi. Hann er stórstjarna á hvíta tjaldinu þar sem hann nýtur góðs af því að vera svo snoppufríður að eiga einnig ágætan feril sem fyrirsæta. Hálendisgöngur geta reynt veru- lega á líkamleg og andleg þolrif hvers manns, og á það ekki síst við um fólk sem er óvant „íslenskum aðstæðum“ – þar sem veður er býsna ólíkt því sem íbúar byggilegra heimshorna eiga að venjast. Í göngu- hópi leikarans vakti það athygli að þegar komið var í náttstað á kvöld- in, og lúnir göngumenn bjuggu sig undir verðskuldaða hvíld og gleði, þá fór stórstjarnan mjög varlega í veitingarnar og laumaðist svo afsíðis þegar líða tók á kvöldið. Í ljós kom að hann þurfti næði til þess að fram- kvæma sína daglegu æfingarútínu, sem hann sleppti aldrei óháð því hvort hann væri heima eða heiman, saddur eða svangur, sprækur eða illa upplagður. Undantekningalítið kemur í ljós að dugnaður og seigla eru mikilvægustu eiginleikar þeirra sem ná árangri sem stórleikarar í kvikmyndum; algjörlega burtséð frá genetískum happdrættisvinn- ingum. Hið sama gildir vitaskuld um þá sem ætla að verða góðir lög- fræðingar, bankamenn, íþrótta- menn, veitingamenn, sóttvarna- læknar, kennarar, rithöfundar og lögregluþjónar. F-in þrjú Góður maður sagði mér fyrir skömmu frá þeirri ágætu amerísku kenningu að gott væri að meta starfsánægju út frá þremur þáttum, á ensku eru það kölluð „f-in þrjú“ – fortune, fame, fun – sem útleggja má sem fjármuni, frama og fjör. Til þess að njóta sín í starfi þarf vinnan að uppfylla að minnsta kosti tvo þessara þátta og helst alla þrjá að einhverju leyti. Fjármunirnir skýra sig sjálfir, há laun geta gert vinnu aðlaðandi eða þolanlega. Frami getur hins vegar verið flóknara fyrirbæri, því í honum getur falist að maður njóti virðingar meðal samstarfsfólks eða í jafningjahópi – eða verið landsfrægur eða heims- frægur. Fjörið er svo kannski, þegar öllu er á botninn hvolft, eftirsókn- arverðasti eiginleikinn í starfs- vali. Að finnast virkilega gaman í vinnunni er örugglega eitt það besta sem getur komið fyrir hverja manneskju. Og ekki nóg með það heldur er það beinlínis fallegt þegar fólk hefur köllun, metnað og ástríðu fyrir því hlutverki sem því er treyst fyrir. Vafalaust er það rétt sem oft er haldið fram að ein mesta hættan við nútímalegt starfsumhverfi sé að fólk brenni yfir eða út. En ef fólki finnst raunverulega vera fjör að vinna, þá er ótrúlegt hversu mikið starfsþrekið getur orðið. Með vinnuna á heilanum Stórleikarar sem gera armbeygjur á hálendi Íslands löngu eftir að Fjör, frægð og fjármunir þeir eru orðnir nógu ríkir til þess að þurfa ekki að vinna framar eru dæmi um einstaklinga sem eru drifnir áfram af ástríðu, gleði og metnaði fyrir hlutskipti sínu í lífinu – það er fjörið sem drífur þá áfram löngu eftir að framinn og fjármunirnir eru tryggðir til lífstíðar. Fæst getum við orðið heims- frægir listamenn. En svipuð lögmál gilda víða um starfsánægjuna. Útum allt er til fólk sem sinnir sínum hlutverkum af sambærileg- um metnaði og alúð. Þetta höfum við séð í tengslum við faraldurinn. Vísindafólk í rannsóknarstofum, hjúkrunarstarfsfólk og fjölmargir aðrir um heim allan hafa gefið allt sem það á – og rúmlega það til að koma samfélögum sínum og heiminum til bjargar. Mjög ósenni- legt verður að teljast að fjárhagsleg sjónarmið hafi drifið þetta fólk áfram. Hér heima höfum við horft upp á fyrirmyndir sem hafa unnið baki brotnu alla daga í heilt ár en aldrei látið toga upp úr sér hálft orð um þreytu. Og bakvið tjöldin, útum allt, er fólk sem leggur á sig marg- falda vinnu og er vakið og sofið yfir verkefnum sínum. Flest af þessu fólki eru opinberir starfsmenn og ekki með háar tekjur miðað við vinnuframlag og mikilvægi – langt í frá. Þetta er fólk sem þarf að fá laun til þess að geta sinnt hlutverki sínu, en er greinilega ekki einungis að vinna vinnuna sína til að fá launin. Tímarnir sem við lifum nú hafa sýnt vel hversu dýrmætt það er að í samfélaginu sé til fólk sem er tilbúið að leggja allt í sölurnar til þess að sinna skyldum sínum. Slíkt krefst persónulegra fórna og fjárhagslegu verðlaunin eru gjarnan rýr. En án fólks sem er tilbúið að leggja á sig slíkt erfiði með bros á vör – og hafa vinnuna sína algjörlega á heilanum – væri samfélagið ekki bara fátækara, heldur sennilega óstarfhæft. S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9F Ö S T U D A G U R 1 9 . F E B R Ú A R 2 0 2 1

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.