Fréttablaðið - 19.02.2021, Síða 9
Í DAG
Þórlindur
Kjartansson
Aðalfundur
Sjóvá-Almennra trygginga hf.
12. mars 2021
Drög að dagskrá fundarins eru svohljóðandi:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
2. Endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir síðastliðið
reikningsár lagðir fram til samþykktar.
3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar á
síðastliðnu reikningsári.
4. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
5. Tillaga um lækkun hlutafjár vegna kaupa á eigin hlutum.
6. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins.
7. Formaður tilnefningarnefndar gerir grein fyrir störfum
nefndarinnar.
8. Kosning stjórnar félagsins.
9. Kosning endurskoðanda eða endurskoðunarfélags.
10. Ákvörðun um þóknun stjórnar félagsins og
tilnefningarnefndar.
11. Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum.
12. Önnur mál löglega upp borin.
Stjórn Sjóvár hefur ákveðið að aðalfundurinn verði einnig
rafrænn, þ.e. hluthafar geti tekið þátt í fundinum með rafrænum
hætti í gegnum aðalfundakerfi Lumi AGM. Rafræn þátttaka mun
því jafngilda mætingu á fundinn og veita þátttöku í honum að
öðru leyti.
Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á að
sækja fundinn, hvort sem þeir ætla að mæta á fundarstað eða
fylgjast með fundinum í vefstreymi, þurfa að skrá sig til að
nálgast aðgangsupplýsingar á vefsvæðinu www.smartagm.com.
Hluthafar eru beðnir um að skrá sig tímanlega á fundinn og helst
eigi síðar en kl. 17:00 þann 11. mars, eða degi fyrir fundardag, þar
sem ekki er hægt að tryggja aðgang að fundinum berist skráning
eftir þann tíma.
Þeir sem skrá sig til fundar með rafrænum hætti fá aðgang að
streymi af fundinum, geta kosið rafrænt og borið upp skriflegar
spurningar. Atkvæðagreiðsla á fundinum mun eingöngu fara
fram í gegnum aðalfundakerfi Lumi AGM. Allir hluthafar, hvort
sem þeir mæta til fundarins á fundarstað eða taka þátt með
rafrænum hætti, eru hvattir til að hlaða niður smáforriti Lumi
AGM í eigin snjalltæki, en jafnframt geta þeir greitt atkvæði
í gegnum vefslóð Lumi AGM á tölvu eða spjaldtölvu. Nánari
upplýsingar um skráningu á fundinn og framkvæmd kosninga
verðar birtar á vefsvæði félagsins, www.sjova.is/um-okkur/
fjarfestar/adalfundur-2021/.
Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafafund fyrir
sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt eða rafrænt
umboð og skal það dagsett. Umboðum skal skila við skráningu á
fundinn á slóðinni www.smartagm.com.
Hluthafar eiga rétt á að leggja fram mál eða ályktunartillögur
fyrir fundinn ef gerð hefur verið skrifleg eða rafræn krafa um
það eigi síðar en 10 dögum fyrir fund, þ.e. eigi síðar en kl. 15:00
þriðjudaginn 2. mars 2021. Hafi hluthafar krafist þess að tiltekið
mál eða ályktun verði tekið fyrir verða endanleg dagskrá og
tillögur uppfærðar á vef félagsins eigi síðar en þremur dögum
fyrir aðalfundinn. Hægt er að senda tillögur, ályktanir eða
spurningar fyrir fundinn á netfangið stjorn@sjova.is. Hluthafar
geta einnig lagt fram spurningar er varða auglýsta dagskrárliði
á aðalfundinum sjálfum.
Tillögur stjórnar um breytingar á samþykktum lúta í stuttu
máli að lækkun hlutafjár, orðalagsbreytingu um starfstíma
endurskoðanda, heimild til að halda hluthafafund eingöngu
rafrænt og heimild til rafrænna skjalasamskipta við hluthafa.
Tilnefningarnefnd er að störfum í samræmi við samþykktir
félagsins. Hluthafar og aðrir sem óska eftir tilnefningu
nefndarinnar til framboðs til stjórnar á aðalfundi hafa átt
þess kost að koma áhuga sínum, og eftir atvikum framboði,
á framfæri við nefndina. Samkvæmt fyrirliggjandi tillögu
tilnefningarnefndar gerir hún tillögu um að þau Björgólfur
Jóhannsson, Guðmundur Örn Gunnarsson, Hildur Árnadóttir,
Ingi Jóhann Guðmundsson og Ingunn Agnes Kro verði kjörin til
setu sem aðalmenn í stjórn og þau Erna Gísladóttir og Garðar
Gíslason verði kjörin sem varamenn.
Frestur til að tilkynna framboð til stjórnar lýkur fimm sólar-
hringum fyrir upphaf aðalfundar, þ.e. sunnudaginn 7. mars 2021
kl. 15:00, en vegna eðlis og umfangs starfa tilnefningarnefndar
er ekki tryggt að nefndin geti lagt mat á framboð sem berast
eftir að tvær vikur eru til fundarins, þ.e. eftir kl. 15:00
föstudaginn 26. febrúar 2021. Framboð skulu berast á netfangið
tilnefningarnefnd@sjova.is. Framboðseyðublöð er hægt að
nálgast á vefsvæði félagsins. Breytist tillaga nefndarinnar frá
því er fram kemur í fundarboði þessu verður endurskoðuð
tillaga birt eigi síðar en 10. mars 2021. Upplýsingar um alla
frambjóðendur verða birtar á vefsvæðinu www.sjova.is/um-
okkur/fjarfestar/adalfundur-2021/, að lágmarki tveimur dögum
fyrir aðalfund.
Endanleg dagskrá aðalfundar og fundargögn, þ. á m. tillögur
stjórnar, sem lögð verða fyrir aðalfund, auk annarra upplýsinga
og eyðublaða í tengslum við aðalfundinn, verða birt á vefsvæði
félagsins, www.sjova.is/um-okkur/fjarfestar/adalfundur-2021/.
Aðalfundur er lögmætur, án tillits til fundarsóknar, ef löglega
er til hans boðað. Aðalfundur og fundargögn verða á íslensku.
Reykjavík 18. febrúar 2021.
Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf.
Sjóvá 440 2000
sjova.is
Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. boðar
til aðalfundar sem haldinn verður í fundar-
sölum H og I á Hilton Reykjavík Nordica,
Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, föstudaginn
12. mars 2021 kl. 15:00. Jafnframt verður
gefinn kostur á rafrænni þátttöku á fundinum.
Mest óþolandi eiginleiki flestra frægra leikara er að þegar öllu er á botninn
hvolft þá eru þeir mjög hæfileika-
ríkir, vinnusamir og þrautseigir.
Vissulega eru þeir jafnan mjög
fríðir ásýndum og þægilegasta
ályktunin fyrir okkur hin er að allt
þetta fólk hafi náð árangri fyrst og
fremst í krafti áskapaðrar fegurðar.
Fyrir nokkrum árum barst mér til
eyrna saga af heimsfrægum amer-
ískum leikara sem fór í hálendis-
göngu í góðum hópi á Íslandi. Hann
er stórstjarna á hvíta tjaldinu þar
sem hann nýtur góðs af því að vera
svo snoppufríður að eiga einnig
ágætan feril sem fyrirsæta.
Hálendisgöngur geta reynt veru-
lega á líkamleg og andleg þolrif
hvers manns, og á það ekki síst við
um fólk sem er óvant „íslenskum
aðstæðum“ – þar sem veður er
býsna ólíkt því sem íbúar byggilegra
heimshorna eiga að venjast. Í göngu-
hópi leikarans vakti það athygli að
þegar komið var í náttstað á kvöld-
in, og lúnir göngumenn bjuggu sig
undir verðskuldaða hvíld og gleði,
þá fór stórstjarnan mjög varlega í
veitingarnar og laumaðist svo afsíðis
þegar líða tók á kvöldið. Í ljós kom
að hann þurfti næði til þess að fram-
kvæma sína daglegu æfingarútínu,
sem hann sleppti aldrei óháð því
hvort hann væri heima eða heiman,
saddur eða svangur, sprækur eða illa
upplagður.
Undantekningalítið kemur í
ljós að dugnaður og seigla eru
mikilvægustu eiginleikar þeirra
sem ná árangri sem stórleikarar í
kvikmyndum; algjörlega burtséð
frá genetískum happdrættisvinn-
ingum. Hið sama gildir vitaskuld
um þá sem ætla að verða góðir lög-
fræðingar, bankamenn, íþrótta-
menn, veitingamenn, sóttvarna-
læknar, kennarar, rithöfundar og
lögregluþjónar.
F-in þrjú
Góður maður sagði mér fyrir
skömmu frá þeirri ágætu amerísku
kenningu að gott væri að meta
starfsánægju út frá þremur þáttum,
á ensku eru það kölluð „f-in þrjú“
– fortune, fame, fun – sem útleggja
má sem fjármuni, frama og fjör. Til
þess að njóta sín í starfi þarf vinnan
að uppfylla að minnsta kosti tvo
þessara þátta og helst alla þrjá að
einhverju leyti. Fjármunirnir skýra
sig sjálfir, há laun geta gert vinnu
aðlaðandi eða þolanlega. Frami
getur hins vegar verið flóknara
fyrirbæri, því í honum getur falist
að maður njóti virðingar meðal
samstarfsfólks eða í jafningjahópi –
eða verið landsfrægur eða heims-
frægur. Fjörið er svo kannski, þegar
öllu er á botninn hvolft, eftirsókn-
arverðasti eiginleikinn í starfs-
vali. Að finnast virkilega gaman
í vinnunni er örugglega eitt það
besta sem getur komið fyrir hverja
manneskju. Og ekki nóg með það
heldur er það beinlínis fallegt
þegar fólk hefur köllun, metnað og
ástríðu fyrir því hlutverki sem því
er treyst fyrir.
Vafalaust er það rétt sem oft er
haldið fram að ein mesta hættan
við nútímalegt starfsumhverfi sé
að fólk brenni yfir eða út. En ef fólki
finnst raunverulega vera fjör að
vinna, þá er ótrúlegt hversu mikið
starfsþrekið getur orðið.
Með vinnuna á heilanum
Stórleikarar sem gera armbeygjur
á hálendi Íslands löngu eftir að
Fjör, frægð og fjármunir
þeir eru orðnir nógu ríkir til þess
að þurfa ekki að vinna framar
eru dæmi um einstaklinga sem
eru drifnir áfram af ástríðu, gleði
og metnaði fyrir hlutskipti sínu
í lífinu – það er fjörið sem drífur
þá áfram löngu eftir að framinn
og fjármunirnir eru tryggðir til
lífstíðar.
Fæst getum við orðið heims-
frægir listamenn. En svipuð lögmál
gilda víða um starfsánægjuna.
Útum allt er til fólk sem sinnir
sínum hlutverkum af sambærileg-
um metnaði og alúð. Þetta höfum
við séð í tengslum við faraldurinn.
Vísindafólk í rannsóknarstofum,
hjúkrunarstarfsfólk og fjölmargir
aðrir um heim allan hafa gefið
allt sem það á – og rúmlega það til
að koma samfélögum sínum og
heiminum til bjargar. Mjög ósenni-
legt verður að teljast að fjárhagsleg
sjónarmið hafi drifið þetta fólk
áfram. Hér heima höfum við horft
upp á fyrirmyndir sem hafa unnið
baki brotnu alla daga í heilt ár en
aldrei látið toga upp úr sér hálft orð
um þreytu. Og bakvið tjöldin, útum
allt, er fólk sem leggur á sig marg-
falda vinnu og er vakið og sofið yfir
verkefnum sínum. Flest af þessu
fólki eru opinberir starfsmenn og
ekki með háar tekjur miðað við
vinnuframlag og mikilvægi – langt í
frá. Þetta er fólk sem þarf að fá laun
til þess að geta sinnt hlutverki sínu,
en er greinilega ekki einungis að
vinna vinnuna sína til að fá launin.
Tímarnir sem við lifum nú hafa
sýnt vel hversu dýrmætt það er að í
samfélaginu sé til fólk sem er tilbúið
að leggja allt í sölurnar til þess að
sinna skyldum sínum. Slíkt krefst
persónulegra fórna og fjárhagslegu
verðlaunin eru gjarnan rýr. En
án fólks sem er tilbúið að leggja á
sig slíkt erfiði með bros á vör – og
hafa vinnuna sína algjörlega á
heilanum – væri samfélagið ekki
bara fátækara, heldur sennilega
óstarfhæft.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9F Ö S T U D A G U R 1 9 . F E B R Ú A R 2 0 2 1