Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.02.2021, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 19.02.2021, Qupperneq 18
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Kristín Björg Hrólfsdóttir er annar eigenda Hermosa og hún segir markmið fyrirtæk- isins vera skýrt. „Við horfum ekki á Hermosa sem verslun heldur þjónustufyrirtæki. Við viljum einfaldlega verða besta netverslun á landinu, hvort sem við erum að tala um kynlífstækjaverslanir eða aðrar netverslanir.“ Hún nefnir nokkur atriði sem geri þeim kleift að uppfylla mark- mið sín. „Þetta gerum við með einfaldri vefsíðu, gegnsæi í verðum (sem þýðir að viðskiptavinir þurfa ekki óttast um falin verð sem bætast við í kaupferlinu) og með spjallinu okkar þar sem hægt er að hafa beint samband við starfs- mann. Eins og sjá má á umsögnun- um okkar er þjónustunni hrósað mikið.“ Toppþjónusta og lágt verð Þjónustan miðar öll að því að tryggja ánægju viðskiptavina og einfelda kaupferlið. „Við státum okkur af betri þjónustu en það sem að við gerum sem aðrir eru ekki að gera er til dæmis það að við bjóð- um upp á 30 daga skilafrest í stað 14 daga sem er samkvæmt lögum og við erum með þetta „live“ spjall á síðunni. Við erum með fría afhendingu á öllum vörum, óháð verði, þannig að jafnvel þó að þú kaupir bara sleipiefni þá geturðu treyst því að afhendingin sé frí,“ segir Kristín. „Þá bjóðum við enn fremur upp á að samdægurs af hendingu, ekki einungis á höfuðborgarsvæðinu heldur líka í nærumhverfi. Vörur sem eru pantaðar lengra í burtu úti á landi eru yfirleitt af hentar daginn eftir. Við leggjum líka gríðarlega mikla áherslu á lágt verð og erum oftast með betra verð á vörunni þótt að heims- endingin sé frí. Síðan viljum við benda fólki á við erum með svokallaðan Unaðsklúbb þar sem viðskiptavinir fá afslátt af næstu kaupum.“ Hermosa er eingöngu á netinu en býður viðskiptavinum úrval afhendingarmáta þar sem valið stendur á milli þess að sækja vörur í vöruhús, fá heimsent (höfuð- borgarsvæðið), sækja á N1 eða útibú flytjanda, hvað sem hentar hverjum viðskiptavini fyrir sig. Vinsælustu vörurnar í fyrra Kristín segir vinsælustu vöruna í fyrra hafa verið Fullnægingar- vöndinn eða Satisfyer Wand, sem sé í senn öf lugur, mjúkur við- komu og fallegur á að líta. Hann henti líka vel í forleik og er full- kominn í að nudda líkamann og uppgötva og örva næmu staðina á bólfélaganum. Næstvinsælust var Multifun 3 sem er hægt er að nota á marga, eða nánar tiltekið 32, vegu og jafnvel f leiri ef þú ert hugmynda- rík/ur. Það er frábært hvort sem maður er ein/n síns liðs eða með félaga og það er tilvalið að prófa það á hvort öðru í forleik. Þriðja vinsælasta varan var Satisfyer Pro 3 sem er sogtæki en þau eru ein árangursríkasta leiðin til þess að örva snípinn. „Það sem er líka svo stórkostleg við tækið er að það er einnig með titring og hægt er að velja á milli 11 sogstill- inga og 10 stillinga af titringi. Það er því hægt að leika sér endalaust með tækið og það er líka svo nett að það er ákaf lega þægilegt í notkun,“ útskýrir Kristín. „Fyrir þau sem eru að stíga sín fyrstu skref í heimi unaðstækja er svo sérstök síða í netversluninni þar sem hægt er að skoða vörur sem eru fullkomnar fyrir byrj- endur. Þar eru sogtækin áberandi en þau hafa reynst afar vel og hvað titrara snertir þá er Slimline kanínutitrarinn óviðjafnan- legur.“ Strangt og kröfuhart ferli Kristín segir ríkan metnað lagðan í að finna og bjóða upp á bestu hugsanlegu vörurnar. „Fyrst skoðum við hvað er að seljast mikið hjá okkar byrgjum. Við förum yfir þessar vörur og tökum út þær vörur sem ekki eru endur- hlaðanlegar því við viljum þær ekki. Næst skoðum við umsagnir um vörurnar. Ef að umsagnir eru góðar, byrginn staðfestir að lítið sé um bilanir og framleiðandinn er áreiðanlegur þá pöntum við inn.“ Ferlið tryggir það að vörurnar geti uppfyllt ítrustu kröfur viðskipta- vina. „Við erum með mjög strangt ferli í að taka inn nýjar vörur, sérstaklega ef það er framleiðandi sem við höfum ekki prófað áður, sem verður til þess að við tökum bara inn hágæðavörur. Um leið og við sjáum að vara bilar oft (um 5% skil vegna galla sem almennt telst eðlilegt þó) þá tökum við ekki inn þá vöru aftur. Það hefur þó eingöngu gerst einu sinni hjá okkur þar sem að við erum með ítarlegt ferli áður en við tökum vörurnar inn.“ Meðal þeirra vara sem hafa fengið afar góðar viðtökur eru FunFactory vörurnar. „Við hófum að flytja inn vörurnar frá þeim á síðasta ári en þetta eru háklassa vörur frá Þýskalandi og fer öll framleiðsla fram þar með tilheyrandi gæðastimpli. Þetta er líka mun umhverfisvænna þar sem þetta er ekki f lutt langar vegalengdir eins og frá Kína til Þýskalands og þaðan hingað svo dæmi sé tekið.“ Bjóða upp á ánægju- vernd Kristín segir þau sífellt leita nýrra leiða til að auka ánægju viðskiptavina. „Sérstaðan okkar er vissulega þjónusta og við erum alltaf að hugsa upp á einhverju nýju til að bæta þjónustuna enn frekar. Núna erum við að byrja á „ánægjuvernd“ (Satisfaction guaranteed) sem þýðir að ef við- skiptavinurinn er ekki ánægður með vöruna getur hann skilað henni og fengið nýja sambærilega vöru í staðinn.“ Þessi þjónusta njóti algjörrar sérstöðu, ekki einungis hér á landi heldur sennilega einnig á heims- vísu. „Þetta er engin kynlífstækja- verslun á landinu að bjóða upp á, og í raun fáar í heiminum sem bjóða þetta. Ánægðir viðskipta- vinir okkar auka metnaðinn okkar í að finna nýja hluti til að gera enn betur.“ Kristín segir þau mikið hafa velt fyrir sér hverjir séu þeirra helstu viðskiptavinir en hópurinn er fjölbreyttur og á öllum aldri. „Það er gaman að segja frá því að karlmenn eru ekki síður að versla hjá okkur en konur og eru þeir ótrú- lega duglegir að versla fyrir konurnar sínar.“ Hægt er að skoða úrvalið á: her- mosa.is Kristín Björg segir viðskiptavinum Hermosa nú standa til boða enn rýmri skilafrestur ef varan uppfyllir ekki þeirra kröfur. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Fun Factory Ladi Bi titrarinn býður upp á ótal ánægjulegra möguleika. Satisfyer Monoflex er æðislegur. Love Triangle sogtækið er vinsælt. Fun Factory Lava Egg er í senn kraftmikið og mjúkt. Unaðsleg múffa sem svíkur engan. Framhald af forsíðu ➛ Eins og sjá má þá eru tækin ákaflega nett og fallega hönnuð. 2 KYNNINGARBLAÐ 1 9 . F E B R ÚA R 2 0 2 1 F Ö S T U DAG U RUNAÐSVÖRUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.