Fjarðarfréttir - 01.03.1983, Page 2

Fjarðarfréttir - 01.03.1983, Page 2
2 Fjarðarfréttir MIKIÐ TILLÖGUFLÓÐ í BÆJARSTJÓRN VIÐ AFGREIÐSLU FJÁRHAGSÁÆTLUNAR — 32 tillögur voru lagðar fram Við afgreiðslu fjárhagsácetlunar 1983 fyrir Hafnarfjarðarkaupstað var lagður fram mikill fjöldi til- lagna. Meirihluti bæjarstjórnar lagðifram 13 tillögur en minnihlut- inn 19. Margar þessara tillagna eru athyglisverðar og verður hluti þeirra birtur hér. Leikvöllur í Hvömm- um. í fjárhagsáætlun er ráðstafað kr. 350.000 til byrjunarframkvæmda við leikvöll í Hvömmum. Af þessu tilefni samþykkir bæjarstjórn að fela bæjarverkfræðingi að láta undirbúa og byrja framkvæmdir á þessu ári við gerð vallarins á leik- vallarlóð við Starhvamm/Lækjar- hvamm. Miða skal við það að fyrst um sinn verði þetta opinn leikvöll- ur, en mögulegt verði síðar að breyta honum í gæsluvöll. Lýsing við gang- brautir. Bæjarstjórn samþykkir að fela Rafveitunni að kanna og gera til- lögur á hvern hátt bæta megi lýs- ingu við gangbrautir í bænum. Framleiðslugjald ÍSALS Bæjarstjórn Hafnarfjarðar mót- mælir harðlega sífelldu óréttlæti ríkisvaldsins hvað varðar hlutdeild Hafnarfjarðar í framleiðslugjaldi álversins í Straumsvík. Skal sérstaklega vakin athygli á þeirri aðför að ákveða einhliða, að Hafnarfjörður skyldi taka þátt í greiðslu kostnaðar vegna athug- unar á starfsemi ÍSAL, án þess að bærinn kæmi þar á nokkurn hátt við sögu. Ennfremur skal sú krafa ítrekuð að nú þegar verði gengið til samn- inga við Hafnarfjarðarbæ um endurskoðun hlutdeildar bæjarins í framleiðslugjaldi ÍSALS, en til slíkra samninga er skylt að ganga samkvæmt samningi milli Iðnaðar- ráðuneytisins og bæjarstjórnar frá maí 1976. Á þennan rétt Hafnar- fjarðar hefur gróflega verið gengið með því að sinna í litlu sem engu kröfum um viðræður þar um. Traust og öruggt at- vinnulíf. Traust og öruggt atvinnulíf er ein meginundirstaða fyrir góðu bæjar- félagi. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar telur því skyldu sína að gera það sem i hennar valdi stendur til þess að stuðla að traustu og fjölbreyttu atvinnulífi í bænum. Bæjarstjórn lýsir yfir stuðningi sínum við þá hugmynd sem kemur fram í fundargerð atvinnumála- nefndar bæjarins frá 26. janúnar síðastliðnum um atvinnumálaráð- stefnu í Hafnarfirði, þar sem farið yrði yfir atvinnuþróun og atvinnu horfur. Bæjarstjórn feiur atvinnumála- nefnd að sjá um undirbúning og framkvæmd slíkrar ráðstefpu í sam- ráði og samvinnu við verkalýðsfé- lögin og atvinnurekendur hér í bænum. Sölu- og leiguíbúðir fyrir aldraða. Bæjarstjórn samþykkir að kjósa þriggja manna nefnd til þess að undirbúa byggingu á sölu- og leigu- íbúðum fyrir aldraða á Ióð við Mið- vang. Nefndin skal í upphafi gera áætlun og drög að reglum um þjón- ustu þá, sem veitt verður í húsinu, rekstarform og fjármögnun. Drög þessi verði lögð fyrir bæjar- stjórn. Málefni strætisvagna Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er ljós nauðsyn þess að leiðir strætis- vagna verði endurskoðaðar. Því samþykkir bæjarstjórnin að taka upp viðræður við Landleiði h/f, bæði um bætt leiðakerfi innan Hafnarfjarðar svo og að leiðum strætisvagnanna innan Reykja- víkur verði breytt á þann veg að þær liggi nær athafnasvæðum og strætisvagnaleiðum borgarinnar en nú er. Jafnframt verði unnið að því að fjölga biðskýlum á viðkomu- stöðum, jafnt innan bæjarins sem utan, og að kanna, hvort unnt er að koma á samstarfi við strætisvagna Reykjavíkur og Kópavogs um notkun skiptimiða. Fegrun miðbæjarins. Bæjarstjórn fagnar hugmyndum, sem fram koma í tillögu að mið- bæjarskipulagi um fegrun mið- bæjarins. Bæjarstjórn samþykkir að láta gera skipulagstillögu af Thorsplani, sem miði að því að svæðið verði fegrað og gert aðgengilegra til úti- vistar fyrir bæjarbúa. Þá er bæjarstjóra falið að taka upp viðræður við eiganda lóðar- innar, Landsbanka íslands, um framkvæmdir þessar. Einnig er samþykkt að fela bæjarverkfræðingi að gera tillögu um stað á miðbæjarsvæði, sem komi til greina fyrir pall, sem not- aður yrði til útihátíðahalda, tón- leika og ýmissa sýninga. Skólanesti Það er viðurkennd staðreynd, að hollt og gott skólanesti er mikil- vægur þáttur til að stuðla að hreysti og heilbrigði nemenda sem hafa langan skóladag. Bæði Reykjavík og Kópavogur hafa þegar gert til- raunir til þess að leysa þessi mál með viðunandi hætti fyrir nem- endur. Með tilliti til þessa felur bæjar- stjórn Fræðsluráði Hafnarfjarðar og fræðslustjóra að kynna sér þá reynslu sem fengist hefur í þessum málum í fyrrnefndum bæjarfélög- um og kynna bæjarstjórn niður- stöður þeirrar könnunar. Það vekur œtíð nokkra athygli hversu tillöguglaðir bœjarfulltrúar eru við afbreiðslu fjárhagsáætlun- ar. Stórum hluta tillagnanna var vísað til bæjarráðs til frekari skoð- unar og eins til samræmingar þar sem tillögur meiri- og minnihluta gengu í svipaða átt. /--------------------------------\ Kaffi, smurt brauð og kökur. Heitur matur í hádeginu. Ö1 og sælgæti. Opið frá kl. 7.00 - 19.00 mánudag til föstudaga. HAFNARKAFFI Vesturgötu 6, sími 54242 Bílastöð Hafnarfjarðar óskar öllum Hafnfirðingum gleðilegra páska. Munið að hjá okkur er opið allan sólarhringinn. BILASTOÐ HAFNARFJARÐAR Reykjavíkurvegi 58 símar: 51666 - 51667 50888 - 50889 FJARÐARFRÉTTIR t---------------------------------------------■> Fjarðarfréttir Ritstjóri og ábyrgðarmaöur: Guðmundur Sveinsson, sími 51261 Útgáfuráð: Ellert Borgar Þorvaldsson (s. 53454) Guðmundur Sveinsson (s. 51261) Rúnar Brynjólfsson (s. 51298) Ljósmyndarar: Arnar Halldórsson Ellert Borgar Jóhann G. Reynisson Heimilisfang: Pósthólf 57, Hafnarfirði VERSLUNIN býður upp á fullkomna þjónustu, mikið og gott úrval gleraugnaum- gjarða. Annast alla gleraugnaþjónustu, ný- smíði sem viðgerðir Hert öryggisgler á staðnum Linsuvökvi fyrir flestar gerðir contactlinsa Flest resept afgreidd samdægurs. Reynið viðskiptin GLERAUGNAVERSLUNIN AUGNSÝN Reykjavíkurvegi 62 220 Hafnarfirði sími 54789 Bílastillingar með fullkomnustu tækjum Við yfirförum 15 atriði í vélastillingu 1. Skipt um kerti og platínur. 2. Mæld þjappa. 3. Stilltir ventlar. 4. Hreinsuð eða skipt um loftsíu. 5. Hreinsuð eða skipt um bensínsíu. 6. Hreinsuð geymasambönd. 7. Hreinsaður öndunarventill. 8. Athuguð og stillt viftureim. 9. Mældir kertaþræðir. 10. Mældur startari. 11. Mæld hleðsla. 12. Mældur rafgeymir. 13. Stilltur blöndungur og kveikja. 14. Mæld nýtni á bensíni íióíaÞess VÉLASTILLING SF. P9 ..... Auðbrekku 51 inj m /% Ijosastilling KóPav0gi. sími 4o140 l____________________________________ ÚTVEGSBANKANS ÞU SAFNAR OG BANKINN EÆTIR VIÐ o -ONEITANLEGA STÓR PLUS Reykjavlkurvegi 60 — Hafnarfirði — Slmi 54400

x

Fjarðarfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.