Fjarðarfréttir - 01.03.1983, Qupperneq 10

Fjarðarfréttir - 01.03.1983, Qupperneq 10
10 Fjarðarfréttir LISTAVERK í VÍÐISTAÐAKIRKJU Á SÝNINGU AÐ KJARVALSSTÖÐUM. Kirkjusmíði Víðistaðasóknar miðar vel áfram og verður hin veglegasta bygging. Listamaðurinn Baltasar var fenginn til þess að gera freskumál- verk á veggi kirkjunnar, samtals um 200 fm, og mun það vera stærsta lista- verk í kirkju á íslandi. Hluti þessa verks er nú á sýningu að Kjarvalsstöðum og hefur vakið mikla athygli og aðdáun. Ættu Hafnfirðingar að leggja leið sína að Kjarvalsstöðum og sjá þetta fagra listaverk sem prýða mun kirkju Víðistaðasóknar. Myndin hér að ofan var nýlega tekin af Víðistaðakirkju í byggingu. SJÁLFVIRKT BRUNA- VARNARKERFI SETT UPP í FJARÐAR- KAUPUM Bruninn mikli að Álafossi á dögun- um leiðir hugann að því hvernig brunavörnum er víða háttað hjá fyrirtækjum hér í bæ. Fjarðarfréttir ræddu þessi mál fyrir rúmu ári og og kom þar fram að víða væri pottur brotinn í þess- um efnum. Það er því ánægjulegt þegar fyrirtæki taka myndarlega á þessum málum og setja upp vandað brunavarnakerfi. Fjarðarkaup eru þessa dagana að setja upp slíkt brunavarnakerfi og mun það vera það eina sinnar tegundar hér á landi ef undan er skilinn Keflavíkurflugvöllur. Er þetta vatnsúðun sem fer í gang við visst hitastig. Þá er einnig sjálfvirkt samband við slökkvistöð ef um eldsvoða er að ræða. FRUMLEGT NAFN — FJÖLBREYTT VÖRUVAL Þær eru hressar og kátar stúlkurnar í Nafnlausu búðinni. í desember tóku nýir eigendur við rekstri verslunar þeirrar sem áður hét Hafnarborg. Eru það Ragnheiður Valdimarsdóttir og Eggert Gunnarsson. Segja má að nafn hinnar nýju verslunar veki almenna athygli vegna frumleika en hún heitir Nafnlausa búðin. Tíðindamaður Fjarðarfrétta brá sér á staðinn fyrir skömmu. Öll er verslunin hin viðkunnanlegasta og er þar á boðstólum úrval af peys- um, blússum, treflum, hönskum og margt fleira. Einnig má nefna snyrtivörur í úrvali fyrir dömur og herra. Nýkomnar eru í verslunina hand- hægar rakvélar með rafhlöðum og eru þær mjög hentugar bæði fyrir dömur og herra. Eru þær fyrir- ferðarlitlar, komast fyrir í vasa eða handtösku. Ganga þær fyrir Sanyo rafhlöðum og má þarna á staðnum fá hleðslutæki fyrir þessar raf- hlöður sem eru í þremur stærðum. Má þar spara sér rafhlöðukaupin. í versluninni er einnig ýmiss konar gjafavara sem er mjög hentug til fermingargjafa. Fjarðarfréttir óska hinum nýju eigendum til hamingju með versl- unina og vona að hún megi blómstra í framtíðinni. NÝIR EIGENDUR MYNDRAMMANS 1. febrúar sl. tóku hjónin Elísa- bet Ingibersdóttir og Rúnar Karlsson við rekstri MYNDA- RAMMANS SF. Þar munu þau halda áfram hvers kyns inn- römmun og selja auk þess myndaramma og innrammaðar myndir og málverk að ógleymd- um korktöflunum vinsælu. Fjarðarfréttir óska þeim hjón- um til hamingju með fyrirtækið og góðs gengis í framtíðinni. Rúnar Karlsson í Myndarammanum. HÁRGREIÐSLU- OG SNYRTISTOFAN < ii—1- Reykjavíkurvegi 68 Sími 51938 Fyrir fermingarnar: Öll almenn snyrting Permanent ATH: Hef nýlega tekið upp Klippingar ÍLP’’ MmínÆ hinar vinsælu frönsku Litanir < 3 1Æ MAKE-CIP vörur frá Blástur t; ”“3! ORLANE. oq .4 J- jBí. Einnig úrval af snyrti- Allt sem þú getur hugsað ^ vörum frá GERMAINE þér fyrir hár þitt á - * “ Jf MONTEIL fermingardaginn / jjr' EIGENDASKIPTI Á VERSLUNINNI FRÍSTUND Nýr eigandi, Guðrún Aðalsteins- dóttir hefur tekið við versluninni Fristund í verslunarmiðstöðinni við Miðvang. í samtali við Fjarðar- fréttir sagði Guðrún að verslunin yrði rekin með svipuðum hætti og áður, þ.e. seldi föndur- og gjafa- vörur. Páskalegt er nú I Frístund enda setur páskaföndur sinn svip á verslunina. Sýndi Guðrún blaða- manni það sem versl. hefur upp á að bjóða, m.a. túpupenna til mál- unar á tau. Þessir Iitir eru þvottekta og má nota á nánast hvaða efni sem er. Selur verlsunin dúka, myndir og straumynsturbækur fyrir þessa liti. Þarna er líka að finna einfalt tæki til glerskurðar, sem notað er til að skreyta glös, vasa og annað úr gleri. Það má einnig nefna að verslunin selur módellakk og glerliti að ógleymdum fatalit, sem getur gert snjáða flík sem nýja. Að lokum gat Guðrún þess að námskeið í hnýtingum, glerskurði og glermálun hæfust nú eftir páska. Þú færð permanentið hjá okkur Hárgreiðslustofan CARMEN Miðvangi 41 sími 54250 1 Mjólkur- og nýlenduvörur, 2 tóbak, sælgæti, öl r og gosdrykkir Úrval af páskaeggjum Gjörið svo vel og lítið inn Opið til kl. 23.30 alla daga OLLUBÚÐ Suðurgötu 71 — Hafnarfirði — sími 51226 Mikið úrval af stereo ferðatækjum frá Hitachi til fermingagjafa. Verð frá 5.840-14.500 RADIORÖST Dalshrauni 13 sími 53181

x

Fjarðarfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.