Bæjarins besta


Bæjarins besta - 29.07.1998, Blaðsíða 3

Bæjarins besta - 29.07.1998, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1998 3 Um Verslunarmannahelgina verður hljómsveitin BUTTERCUP á ferð og flugi um landið. Föstudaginn og kvöldið verða þeir með dúndurball á NEISTAFLUGI á Neskaupstað. Laugardagskvöldið verða þeir svo með dúndur sveitaball í Sævangi Hólmavík og á sunnudagskvöldið verða þeir svo á stóra sviðinu á ÞJÓÐHÁTÍÐ í EYJUM verslanir. Heimsóknir af þessu tagi skipta miklu máli fyrir byggðarlagið og skapa miklar tekjur og vinnu fyrir heimafólk. Halldór Halldórsson bæjar- stjóri í Ísafjarðarbæ afhendir skipstjóranum á Saga Rose allar upplýsingar um byggð- arlagið og vonast til að skipið komi hér sem oftast. Auk bæjarstjórans voru boðnir um borð bæjarfulltrúar Ísa- fjarðarbæjar, fulltrúar skipa- félaga og fleiri gestir. Sýslumaðurinn á Ísafirði, Ólafur Helgi Kjartansson, stendur hér íhugull við rúllettuborð í hinu stóra og vel búna spilavíti Saga Rose. Ekki fylgir sögunni hvort hann er að kynna sér þetta illræmda tæki sem embættismaður eða hvort hann langar til að prófa smá… Síðasta Sumarkvöldið í Neðstakaupstað Aðstandendur kvöldanna hætta eftir fjögurra ára starf Síðasta Sumarkvöldið í Neðstakaupstað á þessu sumri verður annað kvöld, fimmtu- dag kl. 20.30. Viðfangsefni kvöldsins er Arnarfjörður og sérstakur gestur verður Pétur Bjarnason, sem fjalla mun um menn og málefni í Arnarfirði. Þetta er sjöunda Sumar- kvöldið í ár og jafnframt hið síðasta sem haldið verður af þeim hópi sem staðið hefur að Sumarkvöldum í Neðsta- kaupstað sl. fjögur ár. Á þess- um fjórum árum hefur verið víða komið við og hefur hvert kvöld haft ákveðið viðfangs- efni. Fluttir hafa verið fyrir- lestrar um ólík málefni sem öll tengjast Vestfjörðum, og má þar nefna þjóðtrú, konur í sögu Vestfjarða, mannlíf á Hornströndum, galdra, sögu Ísafjarðar sem verslunar- og menningarbæjar, hvalveiðar, Ísafjarðardjúp og margt fleira. Sumarkvöldin hafa verið skemmtileg og fróðleg viðbót í fjölbreyttu menningarlífi Ísa- fjarðar. Þau sem staðið hafa að Sumarkvöldunum vilja þakka öllum þeim sem komið hafa og tekið þátt í þessum sam- komum og gert þær að þeim skemmtunum sem þær hafa reynst vera. Vonast er til að sem flestir láti sjá sig og geri þetta síðasta Sumarkvöld skemmtilegt og eftirminni- legt. Hrafnseyri í Arnarfirði Safn Jóns Sigurðsson- ar opið í allt sumar Safn Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri í Arnarfirði er opið alla daga í sumar til ágústloka. Í burstabænum, sem er hluti af safninu, er rekin greiðasala í samvinnu við Hótel Flóka- lund og fæst þar kaffi með heimabökuðu meðlæti og fleira. Húsfreyja í burstabæn- um í sumar er Jóna Sigur- jónsdóttir. Bærinn er í stórum dráttum eins og hann var þegar Jón Sigurðsson var að alast þar upp, nema hvað nú eru þar timburklædd gólf en ekki moldargólf eins og á tím- um Jóns, og eins eru veggir flestir þiljaðir og fleira er þar frábrugðið. Sérstaklega gott aðgengi er bæði innan bæjar og utan fyrir fatlaða og þá sem eru í hjólastólum. Bærinn var tekinn í notkun 17. júní í fyrra og hafði þá verið þrjú ár í endurbyggingu á vegum Hrafnseyrarnefndar. Upphaflega var bærinn byggður um aldamótin 1800 af afa og alnafna Jóns Sigurðs- sonar. Telja má öruggt, að bærinn hafi á sínum tíma verið byggður eftir teikningum séra Guðlaugs Sveinssonar í Vatnsfirði, en hann hefur verið nefndur faðir íslenska bursta- bæjarins. Ýmsir munir frá 19. öld og eldri eru til sýnis í bænum og eru þeir úr Byggðasafni Vest- fjarða á Ísafirði. Þar á meðal er hinn þekkti brúðhjónastóll úr Hraunskirkju í Keldudal í Dýrafirði og skriftastóll úr sömu kirkju. Báðir þessir gripir eru verk dýrfirskra út- skurðarmeistara, en þar tíðk- aðist sérstakur útskurður sem hvergi þekkist á landinu utan Vestfjarða. Allir sem koma til Hrafnseyrar fá að leysa gesta- þraut um staðinn. Sæludagar að Núpi um Verslunar- mannahelgina Dinnertónlist Myndlista- og leirmunasýning Veisluhlaðborð laugardags- og sunnudagskvöld Barinn opinn öll kvöld Kaffihlaðborð 3. ágúst Ýmis gisti- og matartilboð Upplýsingar og pantanir í síma 456 8222 Verið velkomin! Starfsfólk Hótel Eddu Núpi Verslunar- manna- helgin 1998 Á safndiski Skífunnar ,,Svona er sumarið ´98" er að finna nýjasta lag BUTTERCUP sem heitir MEIRA DÓT

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.