Bæjarins besta


Bæjarins besta - 29.07.1998, Side 5

Bæjarins besta - 29.07.1998, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1998 5 Ákveðið að reisa Fjalla-Eyvindi og Höllu minnisvarða á Hrafnfjarðareyri Sögustaður utan alfaraleiðar Séð frá Hrafnfjarðareyri út eftir Jökulfjörðum. Hvönnin og annar hávaxinn gróður, svo jafnvel minnir á lágvaxið skógarkjarr, sýna glöggt hvar bæirnir stóðu á fyrri tíð. Fremur virðist hafa verið gott undir bú á Hrafnfjarðareyri, miðað við mörg önnur byggð ból á þessum norðlægu slóðum Vestfjarða. Hrafnfjarðareyri í Jökul- fjörðum er einn af þeim sögu- stöðum íslenskum, sem fæstir þekkja af eigin kynnum, enda sannarlega ekki í alfaraleið eftir að byggðirnar norðan Djúps fóru í eyði. Á Hrafn- fjarðareyri bjó á sínum tíma ung ekkja, Halla að nafni, og til hennar kom á einmanaleg- um flótta sínum undan „rétt- vísi“ þeirra tíma útilegumað- urinn, friðsemdarmaðurinn og hagleiksmaðurinn frægi, Fjalla-Eyvindur. Um 1760 lögðust þau Eyvindur og Halla út og bjuggu allvíða á miðhá- lendi Íslands næstu 15 til 20 árin, eins og örnefni og frá- sagnir eru til vitnis um. Síðan sneru þau aftur heim á Hrafn- fjarðareyri og þar lést Eyvind- ur árið 1782, nær sjötugur að aldri. Einnig er Hrafnfjarðareyri ein af sviðsmyndum Fóst- bræðra sögu, en þar dvöldust þeir um skeið, Þorgeir Hávars- son og Þormóður Kolbrúnar- skáld, og eru ýmsar sérkenni- legar frásagnir af dvöl þeirra í Jökulfjörðum og víðar um Vestfirði. Á leiði Fjalla-Eyvindar er hvítmálað krossmark og þar er einnig legsteinn allgamall með áletruninni Hér liggur Félla Eivindur Jónsson. Tóftir og rústir eru margar og dreifð- ar á Hrafnfjarðareyri, bæði af bæjarhúsum og peningshús- um, og eru þær nú ríkulega hvönnum vaxnar eins og önnur bæjarstæði í eyði- byggðum Jökulfjarða og Hornstranda. Bæjarlækurinn er á sínum stað, en á sínum tíma var innangengt í hann, því að Eyvindur byggði yfir hann af hugviti sínu. Ekki þurfti því að fara út að sækja vatnið. Uppsetning minnisvarða um Fjalla-Eyvind og Höllu á Hveravöllum eftir Magnús Tómasson myndlistarmann hefur verið í fréttum í sumar, en einn af forgöngumönnum í því verkefni er Guðni Ágústs- son alþingismaður. Konráð Eggertsson á Ísafirði er áhuga- maður um sögu þessara ást- sælu útlaga og hefur hann ásamt Guðna og í samráði við fleiri góða menn ákveðið að koma upp öðrum minnisvarða á Hrafnfjarðareyri, enda var þar bær Höllu og þar hvílist Eyvindur eftir þrautagöngu sína um óbyggðir Íslands. Ekki er ljóst hvort minnis- merkinu verður komið upp á Hrafnfjarðareyri á þessu ári eða hinu næsta. Konráð Eggertsson og synir hans hafa tekið upp bátsferðir með ferðafólk á Hrafnfjarðar- eyri og hyggjast hafa þar sögustundir. Á sunnudags- kvöldið fór BB með honum og Önnu eiginkonu hans á hraðbátnum Önnu til þess að skoða þennan sögufræga eyðistað. Siglingin frá Ísafirði tók aðeins um eina klukku- stund, enda er báturinn hrað- skreiður í betra lagi. „Hér liggur Félla Eivindur Jónsson“. Konráð Eggertsson við stýrið á hraðbátnum Önnu, en hann og synir hans eru með tvo báta í förum með ferða- menn og farangur um norð- anverða Vestfirði og sjá þeim fyrir gistingu á ýmsum stöð- um ef óskað er. Tveir ráðherrar eru félagar í um tuttugu manna vinahópi, sem fer á hverju sumri saman í frí frá dagsins amstri, gengur á fjöll og gistir eyðibyggðir landsins. Í síðustu viku kom þessi hópur til Vestfjarða og fékk Hafstein og Kiddý til að skutla sér að Látrum í Aðalvík. Þar var höfð bækistöð í tvo daga og meðal annars gengið á Straumnesfjall. Síðan labbaði mannskapurinn yfir á Hesteyri og var þar aðra tvo daga og gisti í Læknishúsinu, en síðan sá Hafsteinn um að koma honum aftur til Ísafjarðar á Kiddý sinni. Sérvalinn vestfirskur leiðsögu- maður var með í ferðinni, Snorri Grímsson á Ísafirði. Enda þótt ráðherrarnir tveir séu framsóknarmenn, er þessi vinahópur blandaður hvað pólitík viðkemur, enda væntanlega eitthvað annað um að hugsa og ræða um á vestfirskum gönguleiðum en argaþras stjórnmálanna. Í hvíld frá dagsins amstri og önnum Ráðherrarnir Finnur Ingólfsson og Halldór Ásgríms- son ásamt Hafsteini Ingólfssyni við komuna til Ísafjarðar. Gimbillinn og börnin Frá aldaöðli hafa heimalningar verið á hverjum bæ, en verk- smiðjubúskapur nútím- ans er jafnt og þétt að útrýma þessum mann- eskjulega þætti í ís- lenskum landbúnaði. Heimalningar eru eigin- lega ekki sauðfé – öllu frekar teljast þeir til heimilisfólksins á bæn- um. Tvífætt ungviðið úr borginni sem fær að kynnast þessum litlu og hrokkinhærðu ferfættu börnum sveitanna öðlast nýja sýn á lífið og upp- götvar að lamb er ekki bara eitthvað sem fæst í kæliborðum stórmark- aðanna. Á myndinni eru ungir gestir í Vigur að heilsa upp á hornaprúð- an gimbil frá því í vor. Sandkastalakeppnin að Holti í Önundarfirði verður laugardaginn 1. ágúst kl. 14:00 Mætum öll með skóflur og fötur! SPARISJÓÐUR ÖNUNDARFJARÐAR

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.