Bæjarins besta - 21.10.1998, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1998
Útgefandi:
H-prent ehf.
Sólgötu 9, 400 Ísafjörður
% 456 4560
o 456 4564
Netfang prentsmiðju:
hprent@snerpa.is
Stafræn útgáfa:
http://www.snerpa.is/bb
Ábyrgðarmenn:
Sigurjón J. Sigurðsson
Halldór Sveinbjörnsson
Ritstjóri:
Sigurjón J. Sigurðsson
Blaðamaður:
Hlynur Þór Magnússon
Netfang ritstjórnar:
bb@snerpa.is
Bæjarins besta er í samtökum bæjar- og héraðs-
fréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda
og annars efnis er óheimil nema heimilda sé getið.
LEIÐARI
ORÐ VIKUNNAR
Andskoti
,,Hlýtt er
þel alþjóðar
Í dag fer fram útför Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur,
forsetafrúar, sem lést 12. þ.m. á sjúkrahúsi í Banda-
ríkjunum eftir langa og stranga baráttu við veikindi, sem
að lokum reyndust henni ofviða.
Þegar Ólafur Ragnar Grímsson bauð sig fram til
embættis forseta Íslands var strax ljóst að eiginkona
hans, Guðrún Katrín, stóð einhuga við hlið hans enda fór
aldrei á milli mála hversu þýðingarmikið Ólafur Ragnar
taldi hlutverk hennar verða ef hann næði kjöri.
Engum blandast heldur hugur um áhrif Guðrúnar
Katrínar á val íslensku þjóðarinnar á eiginmanni hennar
til embættis forseta Íslands. Í aðdraganda kosninganna
ávann hún sér hylli alþjóðar ekki einungis fyrir fágaða og
glæsilega framkomu heldur ekki síður fyrir þá hlýju er
fólk fann fyrir í nærveru hennar. Þessum eiginleikum
sínum kom Guðrún Katrín vel til skila á þeim stutta tíma
sem hennar naut við sem forsetafrúar. Hvarvetna sem
forsetahjónin komu í opinbera heimsókn, hérlendis sem
erlendis, var haft á orði heillandi viðmót Guðrúnar Katrínar
við háa sem lága. Hún gæddi stöðu maka þjóðhöfðingjans
nýju lífi, nýrri vídd.
,,Haustsvalinn umlykur ykkur, kæra fjölskylda, en hlýtt
er þel alþjóðar sem umvefur ykkur, almenn samúð, dýpsta
virðing, kærleikur, fyrirbæn. Guðrún Katrín er nú komin
heim. Líkami hennar hvílir hér. Lát okkur með sálar-
sjónum sjá að sál hennar fagnar nú á blíðri strönd
föðurlands vors sem er á himni.”
Undir þessi blessunar- og bænarorð biskups Íslands
við komu kistu Guðrúnar Katrínar til landsins tekur öll
þjóðin.
Mikilhæf kona er gengin. Íslenska þjóðin tregar í dag
forsetafrú sína, Guðrúnu Katrínu Þorbergsdóttur. Hennar
er sárt saknað.
Í því mikla trausti og þeirri staðföstu trú og vissu er í
orðum biskups felast ,,að sál hennar fagnar nú á blíðri
strönd föðurlands vors sem er á himni” eru forseta Íslands,
Ólafi Ragnari Grímssyni, dætrum þeirra hjóna, dætrum
Guðrúnar Katrínar af fyrra hjónabandi og öðrum
ættmennum sendar innilegar samúðarkveðjur.
Vestfirðingar minnast hinnar látnu forsetafrúar með
virðingu og þökk.
Blessuð sé minning Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur.
s.h.
Algengt er, að merkingar orða breytist með tímanum. Dæmi
þess er orðið andskoti, sem upphaflega táknar andstæðing í
skotbardaga, löngu fyrir daga byssunnar, t.d. þar sem menn
skutust á með spjótum eða örvum. Síðar fer orðið að merkja
hinn vonda sjálfan skv. kristinni trú. Loks verður það
áhersluorð eða krydd í daglegu tali, oft sárameinlaust og án
nokkurra tengsla við óvin, hvað þá sjálfan djöfulinn.
Fyrst talda merkingin er nú dauð, sú næsta hangir á
horriminni en hin síðasta lifir góðu lífi.
Sigur heildarinnar hjá KFÍ
Tíu-eitt á þremur dögum
Liðsmenn KFÍ léku alls
ellefu leiki á þremur dögum
um síðustu helgi, unnu tíu og
töpuðu einum. Reyndar var
hér alls um þrjú lið í mis-
munandi aldursflokkum að
ræða. Meistaraflokkurinn
skaust upp í efsta sætið í
úrvalsdeildinni með sigrum á
föstudagskvöld og sunnu-
dagskvöld (sjá baksíðu). Átt-
undi flokkur (12-13 ára) fór á
mót suður á Flúðum, lék fjóra
leiki og vann alla stórt, jafnvel
þótt liðsmenn væru aðeins
sex, en fullskipað lið er tíu
manns. Lið 17-19 ára fór á
mót í Grindavík, lék fimm
leiki og vann fjóra þeirra en
tapaði einum. Það er alveg
greinilegt, að efnið er til staðar
og bjart framundan í körfunni
á Ísafirði.
Það vakti athygli í leiknum
við Tindastól á föstudags-
kvöldið, að þrír stigahæstu
menn KFÍ voru allir íslenskir
og heimamaðurinn Baldur
Jónasson stigahæstur. „Þetta
sýnir að við erum ekki að
ætlast til að erlendu leikmenn-
irnir okkar séu að skora 40
stig í leik“, segir Guðjón
Þorsteinsson framkvæmda-
stjóri KFÍ. „Við erum ekki að
byggja liðið á einhverjum
einum rosalegum súpermanni
frá útlöndum sem á að skora
allt, heldur erum við að finna
menn sem falla vel inni í liðið
og eru góðir félagar ekki síður
utan vallar en innan. Þegar
fimm manns eru að skora tólf
stig og meira, þá hlýtur liðs-
heildin að vera góð. Tveir
síðustu leikir hjá hafa verið
mjög góðir, jafnvel þótt Ós-
valdur Knudsen hafi verið frá
vegna meiðsla. Þetta hafa
verið sigrar liðsheildarinnar.
Við vorum slegnir út úr Eggja-
bikarnum um daginn en erum
greinilega búnir að jafna
okkur á því. Það er pressa á
liðinu og fólk ætlast til mikils
af okkur og við ætlumst líka
til þess sjálfir. Við erum að
sýna það hægt og rólega, að
við erum með mjög gott lið.
Þó að einn leikur tapist, þá er
það ein orusta en ekki allt
stríðið“, segir Guðjón.
Barnfóstrunámskeið á Suðureyri
Fjórtán krakkar tóku þátt í barnfóstrunámskeiði, sem Rauða kross deild Súgandafjarðar hélt á Suðureyri, þrettán stelpur
og einn strákur. Leiðbeinendur voru Helga B. Jóhannsdóttir og Margrét Hreinsdóttir. Meðal kennslugreina voru réttindi
og skyldur, ábyrgð, framkoma við börn, umönnun, næring, sjúkdómar og slysavarnir. Í lokin fengu allir í skóinn og Rauða
kross bakpoka með startpakka af sjúkragögnum, plástri, grisju og þess háttar.
Bangsadagur
á bókasafninu
Alþjóðlegur bangsadagur
er næsta þriðjudag, 27. októ-
ber, en þá hefði Theodore
Roosvelt Bandaríkjaforseti
orðið 140 ára hefði hann lifað
(f. 1858, forseti 1901-1909).
Hann gekk undir gælunafninu
Teddy og þá nafngift bera nú
bangsar um víða veröld.
Starfsfólkið á Bókasafni
Ísafjarðar hvetur börn til að
koma í heimsókn á afmælis-
daginn milli kl. 14 og 20. Þar
verður hægt að skoða og fá
lánaðar heim bangsabækur og
myndbönd (fullorðnir geta
væntanlega fengið ævisögu
Teddys Roosevelts í átta
bindum). Auk þess verður
börnum boðið upp á bangsa-
myndir og bangsadúkkulísur
til að klippa út og lita. Krakkar
sem koma með bangsana sína
með sér og leyfa þeim að hitta
hina bangsana fá gefins
bangsalímmiða.
Veturnætur hefjast
Lista- og menningarvikan
Veturnætur hefst á Ísafirði á
föstudag og stendur út mánuð-
inn. Þar er fjölmargt í boði og
of langt mál að telja upp alla
dagskrárliði hér, enda eru þeir
vel auglýstir um allan bæ.
Nánari upplýsingar um þessa
menningarviku veita Finnur
Magnússon í síma 456 3123
og Sigríður Kristjánsdóttir í
síma 456 4111.
Veturnætur á Ísafirði
Minningartón-
leikum frestað
Af óviðráðanlegum ástæðum verður minningartónleikum
um hjónin Sigríði og Ragnar H. Ragnar, sem vera áttu nk.
laugardag, frestað um óákveðinn tíma. Nokkrir nemenda
Ragnars ætluðu að leika hér fjölbreytta dagskrá, en veikindi
valda því að það er ekki hægt að sinni. Væntanlega verða
þessir tónleikar síðar í vetur.
Tónleikarnir áttu að vera liður í ísfirsku menningarhátíðinni
Veturnáttum, sem hefur þegar verið auglýst.
Afmælisveisla Tónlistarskólans
Fjölskylduskemmtun verður í Íþróttahúsinu á Torfnesi nk.
sunnudag kl. 16 í tilefni af 50 ára afmæli Tónlistarskóla
Ísafjarðar í þessum mánuði. Á dagskránni verða fjölbreytt
tónlistaratriði og fleiri uppákomur og í lokin verður gestum
boðið upp á veitingar, afmælistertu og fleira.
Aðgangur að skemmtuninni er ókeypis og öllum heimill.
Tónlistarskólinn vill nota þetta tækifæri til að þakka
Ísfirðingum ómældan stuðning og velvild um áratuga skeið
og óskar þess, að sem flestir komi í veisluna og fagni þessum
tímamótum.