Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.10.1998, Blaðsíða 12

Bæjarins besta - 21.10.1998, Blaðsíða 12
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ Stofnað 14. nóvember 1984• Sími 456 4560 •Fax 456 4564 • Netfang: bb@snerpa.is • Verð kr. 200 m/vsk HAMRABORG Sími: 456 3166 Góð aðstaða fyrir fundi og árshátíðir Gisting Veitingar Bensínsala Opið allt árið Sími 456 4844 - Fax 456 4845 Kvöldmáltíð KFÍ á toppinn Poki af fílum fylgir hverri vídeóspólu! á hafs- botni er óttinn þinn versti óvinur Hver er að blekkja hvern? Allir klárir í bátANA Hver er að blekkja hvern? Undirstöður fyrir efsta mastrið í nýju skíðalyftunni á Seljalandsdal voru steyptar á sunnudaginn, í um 600 metra hæð yfir sjávarmáli. Undirbúningur hófst um níuleytið um morguninn og var verki lokið um ellefu tímum síðar. Steypan var flutt með kláfferju um 700 metra leið. Þegar Dúi á Pizza 67 frétti af svöngum sjálfboðaliðum í steypuvinnu í sex stiga frosti uppi í fjallsufsum, brá hann við og sendi pizzur og kók upp á Dal. Veitingarnar voru að sjálfsögðu fluttar á sama hátt og steypan. Menn urðu fegnir að fá einu sinni eitthvað annað en tóma steypu úr sílóinu og settust að kvöldmáltíð, þar sem útsýnið var ekki síðra en úr Perlunni og loftið að líkindum hreinna. Körfuknattleikfélag Ísafjarðar komst á toppinn í úrvalsdeildinni með tveimur sigrum um helgina. Á föstudagskvöldið sigruðu Ísfirðingar Tindastól í Jakanum á Torfnesi og á sunnudagskvöld lögðu þeir Þór á Akureyri að velli fyrir norðan. Á stærri myndinni er Tony þjálfari („lottóvinningurinn okkar“) að útlista leyndardómana fyrir mönnum sínum í leikhléi en á þeirri minni ber James Cason höfuð, herðar og miklu meira yfir andstæðinga sína undir körfunni. Tíu-eitt á þremur dögum\2 Sjötíu tonna bátur keyptur Suðureyri Básafell í Ísafjarðarbæ hefur keypt 70 tonna línubát sem gerður verður út frá Suðureyri. Ekki er að efa, að tilkoma hans verður lyftistöng fyrir atvinnulífið í plássinu, sem mest hefur byggst á smábátum. Hér í blaðinu er auglýst eftir áhöfn á bátinn. Nýjung í ísfirsku atvinnulífi Stórfellt landabrugg Uppvíst hefur orðið um stórfellt landabrugg á Ísafirði, sem reyndar var (að minnsta kosti að mestu) útflutnings- grein í byggðarlaginu fremur en til sölu á heimaslóðum. Þrír menn eru grunaðir um að standa að fyrirtækinu, einn sem annaðist bruggið á Ísa- firði og tveir menn í Reykjavík sem önnuðust framkvæmda- stjórn og sölu afurðanna, en sölumaðurinn vinnur jafn- framt við bílasölu syðra. Landinn var fluttur flugleiðis til Reykjavíkur á markað. Hér er um óvenju stórhuga framtak að ræða í ísfirsku atvinnulífi, sem lögreglan hefur að vísu bundið enda á.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.