Bæjarins besta - 21.10.1998, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1998
Guðrún Katrín Þorbergsdóttir
ánægjuleg sú heimsókn var. Engum duldist að samtaka
hjón voru á ferð og létu sér annt um íbúana og
byggðarlagið.
Heimsóknin stóð fjóra daga og var víða farið, ekið
og siglt samkvæmt strangri dagskrá. Ljúft viðmót
Guðrúnar Katrínar og glæsileg framkoma hvarvetna,
en um leið einstakur alþýðleiki, náði til almennings.
Ferðin reyndist mér og okkur hjónum ánægjuleg. Þau
hjón voru hvort öðru betri ferðafélagar, en því má
ekki gleyma að forseti lýðveldisins og forsetafrú voru
í sinni fyrstu opinberu heimsókn. Miklu skipti að vel
tækist til. Guðrún Katrín lagði þar sitt af mörkum svo
eftir var tekið og máli skipti. Við áttum þess kost að
eiga með þeim hjónum einkar ánægjulega stund.
Framkoma hennar var með sama hætti í fjölmenni
og þegar fáir hittust, ljúfmennska, alúð og virðing
fyrir viðmælandanum. Ekkert óvænt kom henni úr
jafnvægi. Ekki duldist að þroskuð, vel gerð og menntuð
kona átti í hlut.
Forseti Íslands og þau hjón bæði sýndu Vestfirðingum
enn á ný virðingu sína er þau komu í heimsókn til
Ísafjarðarbæjar og Bolungarvíkur 14. maí síðast
liðinn, ásamt Margréti drottningu Danmerkur og
Henrik prins. Þá hafði Guðrún Katrín átt í erfiðum
veikindum. Það var gleðiefni að hitta hana, því heilsa
hennar virtist góð. Glæsileiki og reisn einkenndu
hana sem fyrr og hinir tignu gestir voru velkomnir.
Íbúarnir fögnuðu þeim eftirminnilega.
Tilviljanir ráða því oft hvernig leiðir fólks skerast í
lífinu. Þá skiptir miklu að fólk mætist með opnum
huga og fordómalaust og líti til framtíðar. Þessa
eigind fundum við hjón í fari Guðrúnar Katrínar. Við
þökkum henni fyrir vinsemd og alúð þeirra beggja í
okkar garð. Mikill harmur er kveðinn að forseta
Íslands. Við sendum honum og dætrum þeirra djúpar
og innilegar samúðarkveðjur fyrir okkar hönd og
íbúa á norðanverðum Vestfjörðum sem hafa átt þess
kost að taka á móti þeim hér tvívegis.
Guð blessi minningu Guðrúnar Katrínar Þor-
bergsdóttur. Þjóðin harmar hana.
Ólafur Helgi Kjartansson,
sýslumaður á Ísafirði.
Þær harmafregnir hafa borizt, að Guðrún Katrín
Þorbergsdóttir hafi látizt að kvöldi hins 12. október
1998. Hún átti við erfið veikindi að stríða og tókst á
við þau af einstöku æðruleysi og með reisn.
Þegar Ólafur Ragnar Grímsson forseti háði
kosningabaráttu sína 1996 vakti athygli, hve virkan
þátt hún átti að málum. Framganga þeirra hjóna var
sameiginlegt átak. Tilviljun réð því að leiðir okkar
lágu saman í júní, þegar unnið var að kjöri til æðsta
embættis lýðveldisins. Annað skipti á förnum vegi í
Reykjavík. Fjögurra ára tvíburum var það ánægjuefni,
að þessi glæsilega kona gaf sér tíma til að ræða við
þau. Hitt skiptið var á Ísafirði á kosningafundi. Reisn
og tignarlegt yfirbragð hennar og hve samhent þau
hjón voru og ætlun þeirra að sinna embættinu saman,
ef tilætlaður árangur næðist, hreif án nokkurs efa
marga.
Síðar um sumarið var ákveðið að fyrsta opinbera
heimsókn nýkjörins forseta Íslands yrði til norðan-
verðra Vestfjarða – Ísafjarðarbæjar, Bolungarvíkur
og Súðavíkurhrepps. Flestum er í góðu minni hve
Fagraholt 5:
140,6m² einbýlishús á einni hæð í mjög góðu standi, ásamt
bílskúr. Áhv. ca. 4,7 milljónir. Verð kr. 11,500.000,-
Upplýsingar gefur Tryggvi Guðmundsson hdl.
í síma 456 3940
TRYGGVI GUÐMUNDSSON HDL
HAFNARSTRÆTI 1 • ÍSAFIRÐI
456 3940 & 456 3244 • Fax: 456 4547 • Netfang: tryggvi@snerpa.is
Fasteignaviðskipti
Einbýlishús / raðhús
Fasteignir í þessari auglýsingu eru aðeins
sýnishorn af söluskrá skrifstofunnar.
Allar frekari upplýsingar varðandi söluskrá
fasteigna eru veittar á skrifstofunni að
Hafnarstræti 1, 3. hæð.
Bakkavegur 39: 201 m² ein-
býlishús á tveimur hæðum
ásamt innb. bílskúr. Húsið
nýmál-að, nýtt þak. Áhv. ca.
3,8 millj. Verð kr. 13,500,000,-
Fagraholt 5: 140,6 m² einbýlis-
hús á einni hæð í mjög góðu
standi ásamt bílskúr.
Verð kr. 11,500,000,-
Góuholt 1: 142 m² einbýlishús
í góðu standi á einni hæð ásamt
bílskúr. Áhv. ca. 5,8 millj.. Verð
kr. 11,600,000,-
Góuholt 3: 140,7 m² einbýlis-
hús á einni hæð ásamt bílskúr.
Möguleg skipti á minni eign.
Áhv. ca. 2,7 millj. Laust strax.
Verð kr. 12,000,000,-
Hafraholt 22: 144,4 m² e n d a
raðhús á tveimur hæðum ásamt
22,4 m² bílskúr. Áhv. ca. 2,5
millj. Verð kr. 9,500,000,-
Hjallavegur 4: 242 m² einbýlis-
hús á tveimur hæðum ásamt
bílskúr. Fallegt útsýni.
Tilboð óskast
Hjallavegur 19: 242 m² einbýlis-
hús á 2 hæðum ásamt inn-
byggðum bílskúr. Sér íbúð á
n.h. Ýmis skipti möguleg. Áhv.
ca. 5 millj.
Verð kr. 10,500,000,-
Hlíðarvegur 31: 130 m² einb.hús
á 2 hæðum ásamt bílskúr. Húsið
er nær allt uppgert að utan sem
innan. Mjög gott útsýni. Verð
kr. 10,700,000,-
Hnífsdalsvegur 13: 160 m² ein-
býlishús á tveimur hæðum ásamt
kjallara og geymsluháalofti.
Áhv. ca. 1,7 millj.
Verð kr. 5,300,000,-
Kjarrholt 2: 173,6 m² einbýlis-
hús á einni hæð ásamt góðum
tvöföldum bílskúr. Áhv. ca. 3,7
millj. Verð kr. 13,200,000,-
Móholt 3: 142,4 m² einbýlishús
á einni hæð ásamt bílskúr.
Möguleg skipti á minni eign.
Áhv. ca. 2,3 millj.
Verð kr. 11,000,000,-
Tangagata 15b: 103 m² einb.-
hús á 2 hæðum ásamt
geymsluskúr (nýtist sem
herbergi). Laust fljótl. Áhv. ca.
3,3 millj.. Verð kr. 6,200,000,-
Urðarvegur 26: 236.9 m² raðhús
á tveimur hæðum ásamt
innbyggðum bílskúr. Ekkert
áhvílandi. Verð kr. 11,800,000,-
Urðarvegur 27: 190,5 m² einb.-
hús á 2 hæðum ásamt bílskúr,
góðum garði, svölum og
sólpalli. Skipti á minni eign
mögul. Verð kr. 13,500,000,-
Holtagata 26: 86,9 m² parhús
á einni hæð byggt 1996.
Verð kr. 5,500,000,-
Súðavík
skipti á stærri eign. Áhv. ca. 3
millj. Verð kr. 5,800,000,-
Stórholt 7: 76 m² íbúð á 1. hæð
fyrir miðju í fjölbýlishúsi ásamt
sér geymslu. Áhv. ca. 2 millj.
Verð kr. 4,800,000,-
Stórholt 13: 79,2 m² íbúð á
3ju hæð til hægri í fjölbýlishúsi
ásamt sér geymslu.
Verð kr. 6,000,000,-
Túngata 21: 84,9 m² íbúð á 1.
hæð í þríb.húsi ásamt bílskúr.
Áhv. ca. 3,8 millj. Góð kjör í
boði Verð kr. 6,500,000,-
Aðalstræti 20: 98 m² íbúð á 2.
hæð t.h. í fjölbýlishúsi ásamt sér
geymslu. Áhv. ca. 4,2 millj.
Verð kr. 7,200,000,-
Brunngata 12a: 68 m² íbúð á
efri hæð, að hluta undir risi, í
tvíb.húsi ásamt sér geymslu.
Áhv. ca. 1,8 millj.
Verð kr. 3,000,000,-
Fjarðarstræti 13: 80 m² íbúð á
efri hæð í tvíbýlishúsi. Tvö auka-
herbergi, eitt í kjallara og eitt í
risi. Áhv. ca. 1,5 millj.
Verð kr. 5,700,000,-
Sólgata 8: 80 m² íbúð á neðri
hæð í þríbýlishúsi. Möguleg
3ja herbergja íbúðir
Fjarðarstræti 4: 120 m² 4ra herb.
íbúðá 3. hæð í fjölbýlishúsi. Skipti
á minni eign á Eyrinni möguleg.
Verð kr. 6,500,000,-
Fjarðarstræti 32: 112,7 m² 4ra
herbergja íbúð á tveimur hæðum
í tvíbýlishúsi ásamt bílgeymslu.
Verð kr. 5,900,000,-
Fjarðarstræti 38: 130 m² 4ra
herb. íbúð á tveimur hæðum í
þríbýlishúsi. Áhv. ca. 3,4 millj.
Möguleiki á lánum að fjárhæð
4,9 millj. Verð kr. 7,000,000,-
Hjallavegur 12: 113,9 m² 4-5
herbergja íbúð á neðri hæð í
tvíbýlishúsi. Áhv. ca. 1,9 millj.
Verð kr. 5,500,000,-
Seljalandsv. 20: 161,2 m² 5-6
herb. íbúð á efri hæð í tvíb.húsi
ásamt bílskúr. Íbúðin mikið
uppgerð. Áhv. ca. 5,2 millj. Verð
kr. 10,700,000,-
Stórholt 9: 164,30 m² 6 herb.
íbúð á 1. h.t.v. ásamt kjallara m/
sér inng. Hægt er að ganga í
garð af svölum. Áhv. ca. 3,8
millj. Verð kr. 7,700,000,-
Tangagata 8a: 106,5 m² 4-5
herbergja íbúð á þremur
hæðum.Tilboð óskast
Túngata 18: 89,2 m² 4ra herb.
íbúð í fjölb.húsi í góðu standi.
Húsið allt uppgert. Mögul.sk. á
minni eign. Áhv. ca. 3,6 millj.
Verð kr. 6,900,000,-
Urðarvegur 25: 154,6 m² 5-6
herb. íbúð að hluta á 2 hæðum í
tvíb.húsi ásamt bílskúr. Skipti á
ódýarari eign möguleg. Áhv.
ca. 1,6 Verð kr. 9,300,000,-
4-6 herbergja íbúðir
2ja herbergja íbúðir
Hlíðarvegur 18: 64,5 m²
íbúð á neðri hæð í tvíbýlishúsi.
Áhv. ca. 1,7 millj.
Tilboð óskast
Túngata 18: 50,4 m² íbúð á í
góðu standi á 3ju hæð í
uppgerðu fjölbýlishúsi.
Tilboð óskast
Túngata 20: 53,4 m² íbúð á 3.
hæð í fjölb.húsi í góðu standi.
Húsið nýlega gert upp að
utan. Áhv. ca. 2 millj.
Verð kr. 4,900,000,-
Pólgata 5a:
121m² glæsileg 4ra herbergja íbúð á n.h. í þríbýlishúsi ásamt bílskúr og helm. kjallara.
Íbúðin er nýlega uppgerð. Verð kr. 6,300.000,-
Loksins með snjó undir fótum í Tungudal. Frá vinstri
Guðmundur Geir Einarsson, Markús Björnsson, Ólafur
Thorlacius Árnason, Jakob Einar Jakobsson, Þorsteinn
þjálfari, Katrín Árnadóttir, Elísabet Heiðarsdóttir og
Aðalbjörg Sigurjónsdóttir.
Skíðagöngulið Önfirðinga
og Ísfirðinga 13 ára og eldri,
sem kepptu hvort í sínu lagi í
fyrra, hafa nú verið sameinuð
undir merki Skíðafélags Ís-
firðinga. Þjálfari er Þorsteinn
Hymer í Holti í Önundarfirði.
Fyrsta raunverulega vetrar-
æfingin var á miðvikudag í
síðustu viku í Tungudal, þegar
snjórinn var kominn, og þá
var myndin tekin. Framundan
eru æfingar og aftur æfingar,
en skíðamótin byrja í lok
janúar.
Af þeim sem eru á mynd-
inni er Ólafur Th. í lands-
liðinu, en Katrín og Jakob eru
í hópi sem valið verður úr til
að senda á Ólympíudaga
æskunnar í Slóveníu í mars. Í
þeim hópi eru einnig Jóhanna
Halldórsdóttir og Sandra Dís
Steinþórsdóttir, en auk þeirra
vantar á myndina Sigrúnu S.
Halldórsdóttur, sem í fyrra
varð Íslandsmeistari í 7,5 km
göngu kvenna, Einar Svein-
björnsson og Magnús Ring-
sted Sigurðsson.
Sameinað göngulið