Bæjarins besta - 21.10.1998, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1998 3
Á
línunni hjá Hlyni Þór
Hafnarstræti 9 • Ísafirði • Sími 456 5280
af öllum undirfatnaði út þessa viku!
TÖFF TREFLAR
fyrir stráka!
Vorum að taka upp smart klúta (einskonar sjöl)
með kögri. Tilvalið við t.d. ermalausa kjóla.
EINNIG...
...fallegir háir Dior sokkar með blúndu yfir lærið...
...og sokkabuxur með saum að aftan
FALLEGIR SKINNHANSKAR
fyrir bæði kynin!
NÝTT
Sexí náttkjóll og
sloppur í stíl!
Árshátíð 31. október!
Pantið
förðun
tímanlega!
Síminn er:
456 5280
Í tilefni afmælisins
bjóðum við upp á
20% afslátt
af öllu út
þessa viku!
OPNUNARTÍMI:
Mánud. til fimmtd. kl. 10-12 og 13-18
Föstudaga kl. 10-12 og 13-19
Laugardaga kl. 10-14
BASIL Hafnarstræti 14 Sími 456 5210
Aðalfundur
Ferðamálasamtaka
Vestfjarða 1998
Aðalfundur Ferðamálasamtaka Vestfjarða
verður haldinn á Tálknafirði laugardaginn 7.
nóvember kl. 11.00.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður
aðalmál fundarins samgöngumál á Vest-
fjörðum.
Sameiginlegur kvöldverður að loknum
aðalfundi.
Á föstudagskvöldið 6. nóvember verður
haldið málþing um stöðu og tækifæri í
ferðaþjónustu við þröskuld nýrrar aldar.
Allir áhugamenn um ferðamál á Vest-
fjörðum velkomnir.
Atvinna
Skipstjóra, stýrimann, vélstjóra og
beitningarmenn vantar á 70 tonna bát, sem
gerður verður út frá Suðureyri.
Upplýsingar í síma 456 6105, 892
2482 eða 894 3026.
Aðalfundur
og kynning
Aðalfundur Styrktarfélags fatlaðra á
Vestfjörðum verður haldinn fimmtudaginn
29. okt. á Hótel Ísafirði kl 9. Einnig verða
stuttar kynningar á starfsemi Íþróttafélagsins
Ívars og mikilvægi sjúkraþjálfunar fyrir
fatlaða.
Dagskrá
Starf Íþróttafélagsins Ívars
(fulltrúi frá Ívari).
Mikilvægi sjúkraþjálfunar fyrir fatlaða
(Sigurveig Gunnarsdóttir).
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kosning í stjórn.
Önnur mál.
Kaffi.
Stjórnin
Kristján Jóns-
son, fyrrum
hafnsögumaður
á Ísafirði
Átti aldrei
neinn ein-
kennisbúning
Bæjarins besta? Komdu
blessaður, Hlynur minn. Ég
var að lesa viðtalið við
hafnsögumenn og hafnar-
stjóra á Ísafirði í síðasta
blaði og mig langar til að
gera dálitlar athugasemdir
við það sem þar kemur fram.
Það stingur mig svolítið. Ég
var starfsmaður þarna í átján
ár, frá 1974 til 1992, og ég
varð aldrei var við neina
einkennisbúninga á þeim
mönnum sem þar þjónuðu á
þeim tíma. Sú krafa var
heldur aldrei gerð til mín að
ég sýndi nein skilríki, heldur
var alltaf látið duga að
maður væri með hafnsögu-
húfuna á höfðinu. Einu sinni
sá ég af tilviljun kollega
minn einhvers staðar í ein-
hverjum búningi sem ég
man ekki lengur hvernig var,
en slíkan búning átti ég ekki
til.
Ég dreg í efa frásagnir
þessara manna um kröfur
um búninga. Ég hefði gam-
an af því að fá að sjá myndir
af þeim í einkennisbúningi.
Sem gömlum starfsmanni
finnst mér dálítið loft á bak
við þetta. Mér finnst þessir
menn vera að gera heldur
lítið úr okkur sem unnum
þarna áður. Ég hygg að það
séu afar fá skip sem þeir
þurfa að lóðsa inn til Ísa-
fjarðar miðað við það sem
áður var, þegar Grænlend-
ingarnir og Norðmennirnir
voru að koma. Þeir fóru í
innri höfnina og tóku alltaf
hafnsögumann.
Hafnarstjórinn sagðist
hafa farið um borð í
skemmtiferðaskipið Evr-
ópu. Ég fór tvívegis þar um
borð, sem ég man eftir, en
skipið kom oft til Ísafjarðar
í minni tíð í starfi. Skip-
stjórinn óskaði yfirleitt ekki
eftir neinum hafnsögu-
manni því að hann þekkti
alveg leguplássið og fór
aldrei nema inn að ytri
hafnarmerkjum sem þá
voru.
Og loks má geta þess, að
á minni tíð var enginn
sérstakur hafnarstjóri, held-
ur gegndi bæjarstjórinn því
hlutverki og ég veit ekki til
að hann hafi nokkru sinni
farið um borð í skip sem
hafnsögumaður.
Aukin ökuréttindi
Námskeið til aukinna ökuréttinda
hefst á Ísafirði miðvikudaginn
28. október nk.
Hastætt verð og góðir greiðsluskilmálar
Visa og Euro raðgreiðslur til allt að 36 mánaða
Skuldabréf til allt að 24 mánaða
Vinsamlega tilkynnið þátttöku í síma 581 1919 og 892 4124