Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.10.1998, Side 7

Bæjarins besta - 21.10.1998, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1998 7 Andlát Frú Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, eiginkona forseta Íslands, andaðist í Seattle í Bandaríkjunum, hinn 12. október síðast liðinn. Hún ávann sér virðingu þjóðar- innar strax í kosningabaráttu Ólafs Ragnars Gríms- sonar 1996. Athygli vakti hve samrýmd og samhent þau hjón voru í baráttunni fyrir kjöri hans til embættis forseta Íslands. Á ferð sinni um Ísland í júní þetta ár komu þau til Vestfjarða og náðu greinilega til Vest- firðinga því hvergi voru úrslit kosninganna glæsilegri fyrir Ólaf Ragnar og þau hjón bæði. Forsetahjónin komu í sína fyrstu opinberu heimsókn til norðanverðra Vestfjarða 30. ágúst til 2. september 1996. Þar komu fram glæsileg hjón, sem gerðu sér far um að koma sem víðast við og hitta íbúa Ísafjarðsýslna, Ísafjarðar og Bolungarvíkur á heimavelli. Guðrún sýndi handverki vestfirskra kvenna einstakan áhuga, enda listfeng og þekkt fyrir áhuga sinn á prjóna- og saumaskap. Ferð þeirra hjóna var vel heppnuð og tókst í alla staði hið besta. Haldin var glæsi- leg samkoma í íþróttahúsinu á Torfnesi. Hrafnseyri, Þing- eyri, Skrúður, Holt, Flateyri, Suðureyri, Ísafjörður, Bol- ungarvík, Súðavík og Vigur voru heimsótt og hvarvetna var þeim hjónum vel fagn- að. Frú Guðrún Katrín kom alls staðar fram af mikilli hlýju, en jafnframt virðingu og glæsileik. Hún ávann sér virðingarsess í hjarta allra þeirra mörgu sem áttu þess kost í þessari fyrstu opinberu heimsókn að hitta hana og þau hjón bæði. Þau fóru fleiri ferðir haustið 1996, þar á meðal í Barðastrandarsýslur. Hið sama var uppi á teningnum. Þau voru aufúsugestir og fólk hreifst af frú Guðrúnu Katrínu. Engum duldist að hún lét sér annt um gestgjafana. Þau hjón fóru til útlanda og hún vakti athygli fyrir glæsileik og fágaða framkomu. Erlendum gestgjöfum var ljóst að þar fóru verðugir fulltrúar íslensku þjóðar- innar. Heimsókn til Danmerkur í boði Margrétar Þór- hildar varð eftirminnileg. Þau Margrét Danadrotting og Henrik prins komu til Íslands í einkaheimsókn í maí á þessu ári. Drottning sýndi kirkjulist sína á Listahátíð í Reykjavík. Forsetahjónin sýndu Vestfirð- ingum enn á ný virðingu. Þau buðu Margréti Þórhildi og Henrik prins í ferð til Vestfjarða. Sú heimsókn tókst mjög vel. Guðrún hafði veikst af hvítblæði, en var á batavegi og allt virtist ganga vel. Sem fyrr kom hún fram af alúð og virðingu og hafði engu tapað af glæsileik sínum. Engum sem staddur var á Silfurtorgi 14. maí 1998 gleymist hvernig tekið var á móti drottningu og prinsi og forsetahjónunum. Ferðin var mikið áhugaefni fjölmiðla af skiljanlegum ástæðum. Af umfjöllun þeirra mátti ráða að frú Guðrún hefði hönd í bagga með undirbúningi heimsóknarinnar. Matarveisla í Turnhúsi vakti óskipta athygli fjölmiðla. Frú Guðrún Katrín hafði mikinn metnað fyrir sína hönd og þeirra hjóna og íslensku þjóðarinnar. Hún lagði mikið upp úr því að Bessastaðir yrðu glæsilegt forsetasetur og um leið heimili fjölskyldu. Sjálf lagði hún á það mikla áherslu í kosningabaráttunni 1996 að láta gott af sér leiða, höguðu örlögin því svo að hún yrði forsetafrú. Hún gerði það. Hennar verður minnst sem mikillar konu sem stóð með manni sínum í blíðu og stríðu, í stjórnmálum og forsetakjöri og síðast en ekki síst við hlið hans í embætti þjóðarleiðtoga. Hún tók virkan þátt í sveitarstjórnarmálum og var bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi í 16 ár, 1978 til 1994. Veikindi hennar voru reiðarslag, en því meiri varð gleðin þegar allt virtist ganga vel. Í erfiðum veikindum stóð hún sig með mikilli prýði. Það var áfall þegar veikindin tóku sig upp á nýjan leik í sumar. Vestfirðingar harma frú Guðrúnu Katrínu. Þjóðin öll er sama sinnis. Ólafi Ragnari Grímssyni forseta Íslands eru sendar samúðarkveðjur. Við metum vin- semd þeirra hjóna í garð okkar Vestfirðinga. Dætrum þeirra og öðrum aðstandendum eru sendar djúpar samúðarkveðjur. Við biðjum þeim guðs blessunar. -Stakkur. Með höfuðklút á Harley Davidson í Ameríku: „Maður verður að vera í hlutverkinu.“ Auðunn Bragi að hjálpa indónesískum ungmeyjum með heimaverkefnin fyrir skólann! „Þar fékk ég vinnu hjá fyrirtæki sem skipuleggur og býr til garða yfir sumartímann en mokar snjó á vetrum og vann þar í eitt og hálft ár. Ég fékk kennitölu (social security number) fyrir útlendinga, en fyrir vinnuveitandann var nægilegt fyrir mig að framvísa ökuskírteininu. Ég borgaði skatt og lagði fram skatta- skýrslu að ári liðnu og fékk meira að segja endurgreitt frá skattinum. Kerfið hjá þeim þarf ekki að vera flóknara en það. Það er tekið mjög hart á því ef maður er tekinn, en fjöldinn er svo gríðarlegur að ekki neitað því.“ Í París voru þau í rúma viku hjá fjölskyldu þar sem Kath- leen hafði verið au pair, en ætluðu þaðan beint til Banda- ríkjanna. Þar í borg villtust þau eitt sinn og rákust af tilviljun á söluskrifstofu Flug- leiða, ventu sínu kvæði í kross og ákváðu að koma við á Íslandi á leiðinni vestur um haf, en síðan var haldið heim til hennar í bænum rétt hjá Boston. Ekkert atvinnuleyfi en fékk endurgreitt frá skattinum það er langt frá því að þeir geti fylgst með öllum ólögleg- um innflytjendum. Þarna lét ég þann draum minn rætast að kaupa mér ekta Harley Davidson og notaði það mikið. Meðal annars fór ég á mótorhjólahátíð í næsta fylki“, segir Auðunn og dregur upp mynd af sér á hjólinu og með klút á höfðinu: „Maður verður að vera í hlutverkinu.“ Djúpsteikir ekki pulsur um borð í Júlíusi Eftir hálft annað ár í Banda- ríkjunum að þessu sinni kom Auðunn heim, en Kathleen varð eftir að sinni. „Við eigum okkur þann draum að opna gistiheimili í Portúgal. Þar sem þénustan var nú ekki upp á marga fiska hjá mér þarna úti og maður safnaði ekki miklum peningum í þeirri vinnu sem ég hafði, þá ákvað ég að koma heim og fara á sjóinn.“ Það var fyrir rúmu ári, og síðan hefur Auðunn verið á Júlíusi Geirmundssyni, en rúmur mánuður er frá því að Kathy kom til Íslands. – Ertu að djúpsteikja pulsur á priki oní mannskapinn á Júlíusi? „Nei, ég er í vinnslunni um borð. Þar blóðga ég fisk í staðinn fyrir að djúpsteikja pulsur.“ – Er draumurinn um gisti- heimilið í Portúgal ennþá lifandi? „Já, það er hann vissulega.“ Kathy´s Famous Potatoes – Af hverju endilega Portú- gal? „Af hverju ekki Portúgal? Annars kviknaði hugmyndin í Ástralíu. Þar var staður með alveg ofboðslega góðar bak- aðar kartöflur og ég sló því fram í gríni hvort við ættum ekki bara að opna svona kartöflustað í Portúgal og skíra hann Kathy´s Famous Potatoes. Upp úr því þróaðist þessi hugmynd.“ – Eruð þið komin með einhverjar raunhæfar áætlan- ir? „Við erum að stefna á Algarve-héraðið í Suður- Portúgal árið 2000. En auðvit- að getur hvað sem er gerst þangað til. Ef það gengur ekki upp, þá er bara að leita á önnur mið.“ – Hvernig er að koma aftur heim eftir svona heimshorna- flakk og langa fjarveru? „Mér fannst ósköp lítið hafa breyst, nema hvað allir mínir vinir voru orðnir eldri og komnir með konu og börn. Það er eins og ég hafi misst úr kafla í lífi þeirra. Þeir sem maður var að skemmta sér með og drekka með eru allt í einu orðnir ráðsettir fjöl- skyldumenn.“ – Er það ekki hálfgerð klikkun að leggjast í svona flakk eins og þú hefur gert? „Fyrir suma kann það að vera klikkun, aðra ekki. Það sem hentar einum þarf ekki að henta öðrum. Fyrir mér er það ekki nein klikkun. Ég reyni bara að fá sem mest út úr lífinu.“ Allt Rússland eftir, öll Afríka... – Þú værir þess vegna til í að fara annan hring í kringum jörðina... „Já. Ennþá er ég ekki búinn að sjá mikið af henni. Það er endalaust hægt að skoða sig um. Til dæmis á ég allt Rússland eftir, Indland, alla Afríku, alla Suður-Ameríku... – og tunglið... „Já, vonandi á næstu öld.“ – Þegar vetrarveðrin taka að lemja Júlíus Geirmundsson úti í Ballarhafi – heldurðu ekki að þér verði þá hugsað austur til Balí, þar sem strápilsin blakta í heitri strandgolunni? „Jú, væntanlega, en maður verður líka að leggja eitthvað á sig til þess að vinna sér inn peninga fyrir framtíðina. Það verður ekki á allt kosið sam- tímis.“ Djúpsteikt pulsa á priki á leiðinni ofan í tómatsósutunnuna.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.