Bæjarins besta - 11.11.1998, Page 1
Miðvikudagur 11. nóvember 1998 45. tbl. 15. árg.
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984 Sími 456 4560 Fax 456 4564 Netfang: bb@snerpa.is Verð kr. 200 m/vsk
Ljóninu • Skeiði • Sími 456 4070Ljóninu • Skeiði • Sími 456 3464
Vantar ykkur
spariföt á börnin?
Þau fást í
Legg og Skel.
Opið í hádeginu!
Ný sending frá B-YOUNG
t.d. vesti, blússur, buxur,
peysur og bolir.
Úlpusending frá CHOISE
og flauelsbuxur
Fyrirhugaðar breytingar á
íslenskri kjördæmaskipan,
sem væntanlega taka gildi í
þingkosningum árið 2003,
eða jafnvel fyrr ef þing verður
rofið fyrir þann tíma, munu
einkum hafa í för með sér
róttækar afleiðingar á lands-
byggðinni. Vestfirðingar
munu ekki lengur eiga „sína“
þingmenn og þingmennirnir
munu ekki lengur þekkja bæði
börnin og hundana á bæjunum
með nafni þegar þeir fara í
yfirreiðir, eins og löngum hef-
ur tíðkast. Og hafi stundum
verið erfið togstreita milli
svæða á Vestfjörðum varðandi
röðun á framboðslista, þá
verður nú langtum verra við
slíkt að eiga.
Samkvæmt samkomulagi
formanna allra stjórnmála-
flokka verður fyrirhugað
Norðvesturkjördæmi enn
stærra en kjördæmanefnd
lagði til og mun það spanna
svæðið frá Hvalfirði og allt
norður á Tröllaskaga milli
Skagafjarðar og Eyjafjarðar,
eða frá Botnsá að Illviðra-
hnjúki. Vegalengdir á svæðinu
eru gríðarlegar. Þingmenn
þessa kjördæmis verða tíu en
kjósendur á svæðinu eru nú
um 21.500. Kjósendur að baki
hvers þingmanns í kjördæm-
inu verða því um 2.150, færri
en í öðrum kjördæmum, en í
fyrirhuguðu Suðvesturkjör-
dæmi verða þeir flestir eða
um 3.670.
Hin breytta skipan getur
hæglega haft það í för með
sér, að einungis stærsti stjórn-
málaflokkurinn eigi þing-
mann búsettan á Vestfjörðum.
Hætt er við, að á smærri stöðum á Vestfjörðum, eins og t.d. á Bíldudal, geti orðið æði langt
í næsta þingmann eftir fyrirhugaðar breytingar á kjördæmaskipaninni. Ekki er ósennilegt,
að Sjálfstæðisflokkurinn geti orðið eini stjórnmálaflokkurinn með þingmann búsettan á
Vestfjörðum.
Róttækar breytingar á kjördæmaskipan
Aðeins einn flokkur með
vestfirskan þingmann?
Þegar dansmúsíkin
hefur náð undirtökunum
við útfarir, þá fer ég að
leita mér að annarri vinnu
sjá viðtal við Huldu Bragadóttur organista í miðopnu
Ísfirðingar
eru eins og
ein stór
fjölskylda
sjá viðtal við
körfuboltakappann
James Cason á bls. 4.