Bæjarins besta


Bæjarins besta - 11.11.1998, Blaðsíða 8

Bæjarins besta - 11.11.1998, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1998 Eins og steinn sem hafið fágar Forlagið hefur sent frá sér nýja bók eftir Guð- berg Bergsson sem ber heitið Eins og steinn sem hafið fágar. Bókin er sjálfstætt framhald af skáldævisögu Guðbergs Faðir og móðir og dul- magn bernskunnar sem kom út í fyrra og hlaut Íslensku bókmennta- verðlaunin. Verkið ber undirheitið ,,skáldævi- saga" og enn sem fyrr kemur höfundurinn les- endum sínum á óvart með stílsnilld sinni. Saga Þorvaldar í Síld og Fisk Forlagið hefur sent frá sér bókina Saga athafna- skálds – Þorvaldur Guð- mundsson í Síld og fisk eftir Gylfa Gröndal. Bók- in er kynnt svo: ,,Þorvald- ur Guðmundsson ólst upp í fátækt hjá einstæðri móður, en varð einn af mestu athafnamönnum síðari tíma og hæsti skatt- greiðandi landsins um áratuga skeið. Hann var jafnframt einstæður fag- urkeri, byrjaði ungur að safna listaverkum og eignaðist stærsta lista- verkasafn í einkaeign hér á landi, þar á meðal um tvö hundruð myndir eftir Kjarval. Þorvaldur, sem lést í ár, var sannkallað athafnaskáld og í hópi merkustu Íslendinga á þessari öld." Höfundurinn Gylfi Gröndal hefur ritað mikinn fjölda ævisagna og má þar nefna ævisögur forsetanna Sveins Björns- sonar, Ásgeirs Ásgeirs- sonar og Kristjáns Eld- járns, Hrefnu Benedikts- son og Jóhönnu Egilsdótt- ur, verkalýðsforingja. Guð hins smáa Forlagið hefur sent frá sér bókina Guð hins smáa eftir Arundhati Roy. Í kynningu bókarinnar segir: ,,Sögusviðið er Keralafylki í Suður- Indlandi undir lok sjö- unda áratugarins. Í þorp- inu Ayemenem búa tví- burarnir Rahel og Estha ásamt móður sinni, Ammu hinni fögru, og sundurleitum hópi ætt- ingja. Þegar Sophi Mol, frænka tvíburanna frá Englandi og móðir henn- ar koma í heimsókn til Ayemenems um jólin komast Rahel og Estha að raun um að allt getur breyst á einni nóttu. Bókin hefur verið met- sölubók víða um lönd og hlaut bresku Bookerverð- launin árið 1997." Hlynur Snorrason, lögreglufulltrúi og verkefnisstjóri VÁ Vest skrifar um Hvernig getum við dregið úr Þessi spurning heyrist oft- ar en ekki þegar vímuefna- vandann ber á góma. Það er eðlilegt að spurt sé á þennan hátt, en erfitt er að finna einhlítt svar. Margir eru sér- fræðingarnir og margar eru skoðanirnar. Í síðasta tölu- blaði Bæjarins besta, sem út kom þann 4. nóvember sl. er grein eftir Soffíu Vagnsdóttur í Bolungarvík. Ég hvet alla foreldra til að lesa það sem Soffía hefur fram að færa í greininni. Þar er móðir með hugleiðingar um uppeldi barna sinna. Soffía rekur vangaveltur sínar á mjög skynsamlegan hátt. Við lestur greinarinnar kom mér í hug að benda foreldrum grunnskólabarna í Bolungar- vík, Ísafjarðarbæ og í Súðavík á eina af mörgum leiðum til að ná settu marki, þ.e.a.s. að búa börnum okkar það örugga og heilbrigða uppeldi sem þau eiga rétt á. Leiðin sú er að efla samstöðu og samvinnu for- eldranna sjálfra. Hver styðji við annan í uppeldi barna sinna. Í þessu sambandi hafa samtökin Heimili og skóli út- búið sérstakt form samnings um samstarf. Þetta er oftast kallaður ,,foreldrasamningur fyrirmyndaforeldra”. Samn- ingurinn er í 8 liðum og verða þeir raktir hér: Við munum standa við lög- boðinn útivistartíma. Við munum ekki leyfa eftir- litslaus partí á heimili okkar. Við munum leitast við að kynnast vinum barna okkar og hafa samráð við foreldra þeirra. Við munum ekki leyfa barni okkar að gista heima hjá vin- um án þess að kanna hvort einhver fullorðinn sé heima. Við munum leitast við að upplýsa aðra foreldra ef við verðum vör við að börn þeirra reykja eða drekka. Við óskum eftir að verða látin vita ef barn okkar sést reykja eða drekka. Við munum ekki leyfa ungl- ingum að neyta áfengis eða nota önnur vímuefni á heimili okkar. Við munum ekki kaupa áfengi fyrir unglinga. Gert er ráð fyrir að foreldrar riti nöfn sín á bakhlið samn- ingsins og ljósrit af honum sé til á hverju heimili. Undirrituðum er kunnugt um að samningurinn hafi ver- ið ræddur og samþykktur af foreldrum 8. bekkja grunn- skólanna í Bolungarvík og Ísafirði. Í ljós hefur komið að þegar foreldrar fá tækifæri til að ræða saman um uppeldi barna þeirra, hafa þeir oftast sömu áhyggjurnar og svipaðar skoðanir á aga og uppeldi. Hins vegar er það stundum svo að foreldrar veigra sér við því að ræða við aðra foreldra um slík mál og gefa sér að þeir hinir sömu hafi aðrar skoðanir. Þá mun það stund- Bolungarvík Hreggnasavöll- ur flóðlýstur Ákveðið hefur verið að koma upp flóðlýsingu á gamla Hreggnasavellinum norðan við Hólsána í Bol- ungarvík, í þeim tilgangi að hann nýtist betur en áður til knattspyrnuæfinga. Komið verður upp 8 tréstaurum sem hver verður 14 metra hár. Ungmennafélag Bolungar- víkur annast sjálft fram- kvæmdina en bæjarsjóður mun greiða rafmagnskostn- aðinn við lýsinguna þegar þar að kemur. Mikið átak hefur verið gert í uppbyggingu íþrótta- svæða í Bolungarvík á und- anförnum árum og hafa fé- lagsmenn UMFB og vel- unnarar þess meðal ein- staklinga og fyrirtækja innt mikla sjálfboðavinnu af hendi. Einnig má ætla, að fjármunir nýtist mun betur í slíkum framkvæmdum þeg- ar íþróttafélög ráðstafa sjálf því sem þau hafa úr að spila og geti náð hagstæðari samningum en þegar bæj- arfélög standa í slíkum framkvæmdum. Leikskólinn Glaðheimar í Bolungarvík Stækkun ákveðin en óvíst enn hversu mikil Fyrirhuguð er stækkun Leikskólans Glaðheima í Bol- ungarvík og hafa fyrstu drög að teikningum verið lögð fram til umfjöllunar. Fræðslumála- ráð Bolungarvíkur hefur látið í ljós það álit, að við stækkun- ina skuli gert ráð fyrir nýrri deild sem rúmi allt að 16 börn, enda sé þörfin þegar fyrir hendi hvað varðar börn yngri en tveggja ára. Þær hugmyndir sem nú þegar liggja fyrir varðandi stækkun leikskólans eru þrí- þættar. Í fyrsta lagi að hægt verði að taka á móti og þjóna fötluðum börnum, í öðru lagi að komið verði upp aðstöðu til þess að leikskólabörnin geti fengið hádegisverð í skólan- um og í þriðja lagi að aðstaða starfsfólksins verði bætt. Á fundi bæjarstjórnar sl. fimmtudag kom fram einhug- ur um að láta fara fram ítar- legri úttekt á þörfum leikskól- ans. Verði niðurstaða hennar sú, að æskilegt þyki að inn taka yngri börn en verið hefur, t.d. til þess að mæður þeirra geti farið fyrr út á vinnumark- aðinn, þá er það talið koma vel til greina. Hins vegar er ekki líklegt að ráðist verði í frekari stækkun en þegar hefur verið gert ráð fyrir nema að vel athuguðu máli, enda hefur verið fólksfækkun í bænum og minna er um stórar fjöl- skyldur en áður. Hver sem niðurstaðan verð- ur, þá er líklegt að fram- kvæmdir við leikskólann verði unnar í áföngum á næstu þremur árum eða svo. Nú rúmar Leikskólinn Glaðheim- ar 20 börn í senn og eru þar tveir hópar daglega, hálfan daginn hvor. Körfuknattleikur Enn tapar KFÍ Fjórði tapleikur KFÍ í röð varð að veruleika á sunnu- dagskvöld er liðið tók á móti KR-ingum í íþróttahúsinu á Torfnesi. Tveimur dögum fyrr tapaði liðið gegn Njarð- víkingum á útivelli og er nú í áttunda sæti DHL-deildar- innar með sex stig að aflokn- um sjö leikjum. Í leiknum gegn KR höfðu gestirnir yfirhöndina mest allan leikinn og komust mest 20 stigum yfir heima- menn. Undir lok leiksins tókst KFÍ-mönnum að rétta úr kútnum og munaði aðeins einu stigi þegar nokkrar sek- úndur lifðu af leiknum. Lokatölur urðu 89-92 fyrir KR, sem höfðu átta stiga forskot í hálfleik 42-50. Í leiknum gegn Njarðvík- ingum á föstudagskvöld varð tapið mun stærra eða 24 stig, en lokatölur leiksins urðu 95-71 eftir að heima- menn höfðu leitt 48-31 í hálfleik. KFÍ-menn byrjuðu vel í leiknum og settu fyrstu sjö stigin. Þá tóku heima- menn leikhlé og endur- skipulögðu leik sinn. Það gaf góða raun því þeir rúll- uðu yfir gestina og nokkurra mínútna kafla og gerðu 40 stig gegn 12 stigum KFÍ. Þar með var rothöggið gefið og tókst KFÍ-mönnum ekki að vinna upp muninn það sem eftir lifði leiks. Eins og að framan greinir er KFÍ í áttunda sæti deild- arinnar með sex stig eftir sjö leiki. Grindavík og Haukar eru einnig með sex stig eftir sjö leiki og Snæfell eftir sex leiki. Básafell, Freyja og Bræðraverk Stefnt að samruna 3ja fiskvinnslufyrirtækja Stefnt er að samruna Fisk- iðjunnar Freyju hf. og Bræðra- verks ehf. á Suðureyri við Básafell hf. á Ísafirði. Eins og fram kemur annars staðar í blaðinu var afkoma Básafells hf. af rækjuveiðum og rækju- vinnslu lakari á nýliðnu rekstr- arári en gert var ráð fyrir. Á hinn bóginn hafa bolfisk- veiðar gengið vel og afurða- verð verið hátt og er þess vænst að svo verði áfram. Væntanlegur samruni fyrir- tækjanna þriggja er liður í því að nýta hráefni til bolfisk- vinnslu enn betur en nú er. Hjálmar rektor Hjálmar Helgi Ragnarsson tónskáld frá Ísafirði hefur verið ráðinn fyrsti rektor hins nýja Listaháskóla Íslands og tekur við starfinu 1. janúar nk. Auk starfa við tónsmíðar, kórstjórn og kennslu hefur Hjálmar lengi verið í farar- broddi í félagsmálum lista- manna og er nú forseti Banda- lags íslenskra listamanna. Afmæli 70 ára Jóhannes G. Jónsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Íshúsfélags Ísfirðinga verður sjötugur 16. nóv. Hann og fjölskylda hans taka á móti gestum laugardaginn 14. nóvember kl. 15-18 í kaffistofu Íshúsfélagsins.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.