Bæjarins besta


Bæjarins besta - 11.11.1998, Blaðsíða 7

Bæjarins besta - 11.11.1998, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1998 7 Ný viðhorf Í síðustu viku var fjallað um nýja kjördæmaskipan. Vikið var lítillega að breyttum forsendum varðandi fjölda kjósenda og í raun þá misskiptingu sem fólgin er í því kosningakerfi sem nú er við lýði. Þar hefur landfræðilegur hugsunarháttur ráðið meiru en skynsemi. Þjóðin virðist að sumu leyti bundin á klafa landafræði sem hefur breyst mun meira en landakortið gefur til kynna. Með breyttum samgöngum hafa allar fjarlægðir minnkað veru- lega, landakortið breyst. Sé litið til Reykjavíkur má auðveldlega segja að Reykjanes, sé nánast úthverfi höfuðborgarinnar. Keflavík er í þriggja kortera fjarlægð, Reykjanesbær reyndar allur og skammt er þaðan til Grindavíkur. Vogar og Hafnarfjörður eru enn nær. Selfoss og Suðurland eru í einnar til tveggja stunda fjarlægð sé farið í bíl. Akranes er við bæjardyr höfðuborgarinnar og Borg- arnes einnig. Snæfellsnes er að mestu leyti í tveggja stunda fjarlægð, sama er um Búðardal og Vestur-Húnavatnssýslu. Sam- kvæmt þessu hefur miðpunktur landsins teygt sig all nokkuð inn í Norðvesturkjördæmið nýja, ef sú verður raunin. Norðurland er enn í nokkurri fjarlægð, en innan við 400 kílómetrar verða til Akureyrar, sem óneitanlega er miðpunktur Norðurlands. Þeir hlutar landsins sem verða útundan eru Norðausturland, Austfirðir og Vestfirðir að mestu. Að Reykhólum verður nú innan við þriggja stunda akstur enda Gilsfjarðarbrúin veruleg sam- göngubót. Vegasamgöngur við Vestfirði og innan er brýnt að bæta umtalsvert. Það þarf að gera hvort eð er, en nýtt og stærra kjördæmi kallar á greiðari samgöngur, hvort sem það verður að einni stjórnsýslueiningu eða ekki. Viðhorf manna til stjórnsýslueininga verður að vera sveigjanlegt á tímum stöðugt batnandi samgangna. Þingmenn eiga fyrir höndum verulegt verkefni við að hraða vega- bótum. Með þeim hætti einum verður samstaða íbúa og byggð efld. Ný tækni Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson vakti máls á því í opinberri heimsókn 1996 að nauðsynlegt væri að nýta nýja samskiptatækni. Ísfirðingar, Barðstrendingar, Bolvíkingar eða hverjir sem eru tengjast upplýsingahraðbrautinni, internetinu með sama hætti og aðrir, og eru alls ekki fjær því sem þar gerist en þótt þeir byggju í miðri Evrópu. Forsetinn vakti athygli á þeim möguleikum sem búa í sam- skiptatækninni. Á Ísafirði starfar Snerpa, sem sérhæfir sig í tölvuþjónustu. Fleira er unnt að gera. Því miður virðist sem svo að fólk sæki enn þá meira frá Vestfjörðum en til. Oft gengur illa að fá fólk til sérhæfðra starfa utan Reykjavíkur. Oftar en ekki tengist það því að maki þess sem vill taka að sér ákveðið starf þarf líka að fá vinnu. Samskiptatæknin sem forseti Íslands ræddi sérstaklega um býður ýmsa möguleika í þeim efnum. Ýmsa þjónustu bæði einkaðila og opinberra mætti hæglega reka á Vestfjörðum. Nægir að nefna þær miklu breytingar sem ganga yfir bankakerfið nú. Starfsfólki fækkar stöðugt og meira er unnið með tölvum. Í Reykjavík er reiknistofa bankanna. Flest þau störf sem þar eru unnin er alveg eins hægt að vinna á Ísafirði. Öll ökuskírteini landsins mætti gefa út á Ísafirði. Það er enginn stórisannleikur að það sé bara hægt að gefa út ökuskírteini í Reykjavík. Pósturinn fer í báðar áttir. Í síðustu viku var að því vikið að unnt er að fara yfir framtöl Reykvínga á Ísafirði jafnt og í Reykjavík. Með nútíma tækni til samskipta er léttilega hægt að vinna alla álagningarvinnu hér vestra. Hið eina sem þarf eru ný viðhorf. Í Reykjavík er mikill uppgangur, góðærið ríkir ekki bara, það herjar á með fítonskrafti og sogar til sín fólk og peninga. Einka- framtakið tekur til sín. Hið opinbera á ekki að keppa við það um vinnuaflið. Hins vegar er rétt að styrkja vinnustaði hins opinbera úti landi með því flytja þangað fleiri og mikilvægari verkefni. Með þeim hætti er mögulegt að skapa sérhæfð störf á landsbyggðinni til jafnvægis við störf í sjávarútvegi, sem reyndar verða stöðugt sérhæfðari. Jafnvægi Miklar deilur urðu um flutning Landmælinga ríkisins til Akraness á sínum tíma. Sennilega hefði miklu fremur átt að deila um það hvort, leggja bæri starfsemina niður og bjóða hana út á frjálsum markaði. En hún er ekki verr staðsett á Akranesi en hvar annars staðar. Stundum hefur því verið haldið fram með réttu að helstu andstæðingar jafnvægis í byggð landsins í formi dreifingar opinberrar þjónustu séu sveitarstjórnarmenn sem sækja margt til Reykjavíkur og vilja ekki breyta því. Án þess að hér verði farið af stað með umræðu um það í hve miklum mæli færa skuli þjónustu frá ríkinu til einkaaðila eða sveitarfélaga er þó ljóst að breytingar verða miklar á næstu árum. Kjörnir fulltrúar þjóðarinnar ásamt sveitarstjórarmönnum verða taka þar hraustlega á málstað þeirra sem búa á landsbyggðinni. Hitt er skýrt eins og sól í heiðum himni, að til að brjóta ísinn og sýna fram á að nútíma þjónustu á Íslandi er ekki nauðsynlegt að reka í Reykjavík, ber hinu opinbera að hafa forgöngu. Páll Pétursson félagsmálaráðherra hefur ákveðið að undirdeild íbúðalánasjóðs skuli starfa á Sauðárkróki. Hann fullyrðir að það verði ódýrara en að vinna störfin í Reykjavík. Hér hefur verið rudd ný braut. Hvað er til dæmis að því, að vinna við álagningu skatta á fólk og fyrirtæki í Reykjavík fari að hluta eða mestu leyti fram á Skattstofunni á Ísafirði? -Stakkur. áð undirtökunum við að annarri vinnu“ skólanum eru ekki á félags- lega sviðinu. Það snerist allt um námið. Á fyrri árum skól- ans var ef til vill verið að djamma meira á heimavist- inni, en á minni tíð var vistar- búum mjög farið að fækka. Líka var ég að vinna í Sjall- anum með náminu og þar fékk maður andhverfuna við skól- ann. Og svo var ég auðvitað í tónlistarskólanum öll mennta- skólaárin og var að halda tón- leika.“ – Það virðist oft svo, að nemendur sem eru af fullum krafti í t.d. sundþjálfun eða tónlistarnámi og standa sig vel þar, eru jafnframt mjög góðir nemendur í framhalds- skóla. Ástæðan er væntanlega sú, að þetta fólk er kappsamt og duglegt að hverju sem það gengur, hefur mikinn sjálfsaga og lærir að skipuleggja tíma sinn vel... „Líklega er nokkuð til í því. Ég þurfti að hafa heilmikið fyrir náminu.“ Óljós framtíðaráform – Kom aldrei neitt annað til greina hjá þér á ungum aldri en tónlistin eftir að stúdents- prófi lyki? „Jú. Til dæmis þegar ég var að byrja í menntaskólanum ætlaði ég alls ekki að leggja tónlistina fyrir mig. En ég fór eitt ár til Þýskalands sem skiptinemi, veturinn 1983-84, og þá varð eins árs hlé á tón- listarnáminu hjá mér. Og ég hlýt að hafa saknað þess ákaf- lega mikið, því að ég byrjaði af endurnýjuðum krafti þegar ég kom heim aftur og þá var framhaldið nokkurn veginn ráðið.“ – Áttirðu þér áður eitthvert draumanám eða draumastarf í framtíðinni? „Nei, í rauninni ekki. Ég hafði að vísu alltaf áhuga á fluginu, en ég hafði ekki hugs- að sérstaklega út í neitt annað. En varðandi tónlistarnámið átti Ragnar H. Ragnar mikinn þátt í því að hvetja mig áfram. Hann var alveg sérstakur.“ Skortur á söngfólki Tímarnir breytast og þar með kirkjustarfið og ekki allt til hins betra. „Við erum í miklum vandræðum í kirkj- unni vegna skorts á söngfólki. Ég er búin að auglýsa nokkr- um sinnum en það hefur ekki borið neinn árangur. Með þessu áframhaldi verður eng- inn kór starfandi í kirkjunni áður en langt um líður. Þetta er svona um allt land. Ég er búin að kynna mér þetta vel. Meira að segja er búið að gefa út einradda sálmabók. Þetta er þróunin hérlendis jafnt sem annars staðar. Erlendis syngur bara fólkið sem kemur í mess- urnar, en það er enginn kór. Síðan er bara hóað saman við sérstök tækifæri og gestakórar fá að syngja. En okkur finnst þetta mjög miður, sérstaklega við jarðarfarir, vegna þess að hér hefur skapast hefð fyrir stóra kóra við slíkar athafnir. Við skiljum ekki að ungt fólk skuli ekki vilja koma og syngja í kirkjunni. Fyrir nokkrum áratugum var hrein- lega biðröð að komast í kirkju- kór. Mér finnst áhugi fólks á tónlist vera að breytast mjög til hins verra, verð ég að segja. Það er orðið svo mikið um léttmeti, þessi létta danslaga- músík er farin að verða svo ríkjandi. Þetta virðist haldast í hendur við breytingar á mat- aræði, allt skyndifæðið sem fólk er farið að neyta í sívax- andi mæli. Léttmetið er að taka völdin bæði í músíkinni og fæðuvalinu. Í sjálfu sér er þetta skiljanleg þróun, en mér finnst hún eiga illa við í kirkj- unni. Það er til svo mikið af fallegri músík sem kemst ekki að.“ Dansmúsík við jarðarfarir – Undanfarið hefur mátt sjá blaðaskrif og blaðadeilur um tónlistarval við jarðarfarir. Hafa orðið miklar breytingar í þeim efnum hér vestra? „Já. Okkur sem störfum við kirkjuna blöskrar stundum lagavalið hjá aðstandendum, vegna þess að það er farið að velja svo mikið af léttri tónlist. Það er farið að velja danslög og fólk vill helst spila þau af diskum, einhver lög sem hinn látni hélt upp á. En þegar at- höfnin er hafin, þá myndast í kirkjunni andrúmsloft sem á alls ekki við þessa tónlist. Þá finnur fólk loksins að þetta passar ekki saman. Það er verið að kveðja hinstu kveðju og þá er ekki viðeigandi að sitja undir dansmúsík. Hvað sem öllum trúmálum líður, þá verkar tónlist af öðru tagi betur á sálarlífið, jafnvel þó að það sé ekki beinlínis um sérstaka kirkjutónlist að ræða. Það er alltaf verið að tala um stressið í þjóðfélaginu og hraði í músíkinni ýtir undir það. Jarðarfarir eiga að vera friðar- stundir. Þegar dansmúsíkin hefur náð undirtökunum við útfarir, þá fer ég að leita mér að annarri vinnu.“ – Þú hefur búið í Reykjavík, á Akureyri, í Þýskalandi og í Bandaríkjunum og hefur því nokkurn samanburð. Finnst þér gott að vera hérna heima á Ísafirði? „Já, mér finnst hvergi betra að vera en hér. Og hér er allt mitt fólk í báðum ættum. Ég fæ alltaf heimþrá þegar ég er annars staðar.“ – hþm.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.