Bæjarins besta - 11.11.1998, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1998 5
Inga S.
Ólafsdóttir,
ferðafræðingur
á ÍsafirðiÁ
Nefndu
það bara!
línunni hjá Hlyni Þór
jafnlangt fram úr kostnaði og
framkvæmdirnar í kaupfé-
lagshúsinu og kemst að þeirri
niðurstöðu að heildarkostnað-
urinn hefði getað numið 88
milljónum króna. Ljóst er því
að sú leið sem valin var, er í
alla staði mun ódýrari.
Í upplýsingablaði sem bæj-
arstjóri Ísafjarðarbæjar hefur
afhent bæjarfulltrúum sveitar-
félagsins kemur fram að
heildarkostnaður við breyt-
ingar á skólahúsnæði grunn-
skólans í gamla kaupfélags-
húsinu hafi numið tæpum 50
milljónum króna. Eru þá kaup
sveitarfélagsins á tveimur
hæðum í húsnæðinu ekki
meðtaldar, en kaupverð þeirra
var 15 milljónir króna. Heild-
arkostnaður við skólahúsnæð-
ið nemur því um 65 milljónum
króna.
Í bréfi bæjarstjórans er einn-
ig gerður samanburður á svo-
kallaðri Torfnesleið, sem fall-
ið var frá, þ.e. að breyta vallar-
húsinu og reisa þar kennslu-
stofur, en samkvæmt útreikn-
ingi bæjarverkfræðings hefði
sú leið kostað rúmar 76 millj-
ónir króna. Í þeirri fjárhæð er
ekki gert ráð fyrir verðmæti
vallarhússins né heldur flutn-
ingi íþróttamannvirkja af
svæðinu. Bæjarstjórinn veltir
því einnig fyrir sér í bréfinu,
hver kostnaður hefði orðið við
Torfnesleiðina, hefði hún farið
að mati bæjarstjórans á Ísafirði og miðar hann þá við að kostnaðurinn hefði farið jafnlangt fram úr áætlun og við Austurveg
Kostnaður við skólahúsnæði við Austurveg nemur 65 milljónum króna
Kostnaður við Torfnesleiðina hefði get-
að numið allt að 88 milljónum króna
yrða að íslenska kvenfólkið
sé það allra fallegasta!“
– Hvernig er andinn innan
liðs KFÍ?
„Ég hef einungis saman-
burð við þau lið sem ég hef
leikið með áður, en þetta er
fyrsta liðið þar sem hvaða
leikmaður sem er sættir sig
umyrðalaust við að vera tek-
inn út af, enda þótt hann hafi
verið í byrjunarliðinu. Andinn
er mjög jákvæður og góður
og ég gæti ekki hugsað mér
betri félaga. Mér líður ákaf-
lega vel í þessum stórkostlega
hópi og undir stjórn þessa
þjálfara.“
– Hefurðu nokkru sinni
fundið fyrir einhverri andúð
eða fordómum vegna hör-
undslitar þíns síðan þú komst
hingað?
„Nei, ég hef ekki orðið var
við neina óvinsemd. Annars
staðar þar sem ég hef spilað
hefur komið fyrir að einstakir
leikmenn hafa sagt eitthvað
ósmekklegt í hita leiksins eða
að áhorfendur hafi hrópað eitt-
hvað leiðinlegt að manni inn
á völlinn. Það getur farið illa í
mann meðan á leik stendur.
En eftir leik takast leikmenn í
hendur og klappa hver öðrum
á öxlina og áhorfendur koma
til manns og þakka fyrir
leikinn. Nei, hér hef ég ekki
orðið var við nein leiðindi.“
– Ef veturinn verður ekki
allt of kaldur fyrir þig og leik-
tímabilið í vetur verður gott –
gætirðu hugsað þér að vera
áfram á Íslandi eða langar þig
frekar til að halda áfram að
kynnast fleiri löndum og
þjóðum?“
– Þessir þrír mánuðir mínir
hér hafa verið stórkostlega
góðir og ég vona að það breyt-
ist ekki. Ef KFÍ byði mér að
vera áfram, þá sé ég ekkert
því til fyrirstöðu eins og nú
standa sakir.“
– Er Tony góður þjálfari?
„Já, hann er mjög góður.
Mjög harður, en mjög góður.“
– Nokkuð sérstakt að lok-
um?
„Mig langar til að segja, að
Ísfirðingar eru eins og ein stór
fjölskylda. Guðjón [Þorsteins-
son, framkvæmdastjóri KFÍ]
hefur sannarlega komið fram
við mig eins og vin miklu
fremur en mann sem hann er
með í vinnu. Ísfólkið, stuðn-
ingslið KFÍ, hefur verið mér
ákaflega gott og mig langar
til að koma á framfæri sér-
stökum þökkum til Dóra
[Halldórs Sveinbjörnssonar]
og Dúa [Steinþórs Friðriks-
sonar]. Það skiptir ekki máli
hvort liðið leikur vel eða illa
hverju sinni, þeir hafa alltaf
eitthvað jákvætt og gott að
segja eftir leikinn. Flestir
íþróttamenn hafa þörf fyrir
uppörvun og í því sambandi
vil ég þakka þessum tveimur
alveg sérstaklega fyrir hlýju
þeirra.
Nýr golfskáli í Tungudal tilbúinn í vor
Gjörbylting í þeirri
þjónustu sem við
getum veitt
segir Tryggvi Guðmundsson, formaður Golf-
klúbbs Ísafjarðar
Í vor mun Golfklúbbur
Ísafjarðar taka í notkun nýj-
an og glæsilegan tveggja
hæða golfskála í Tungudal.
Heildarflatarmál hans verð-
ur um sexfalt til sjöfalt frá
því sem er í gamla skálan-
um. „Þetta verður gjörbylt-
ing í þeirri þjónustu sem
við getum veitt“, segir for-
maður GÍ, Tryggvi Guð-
mundsson. „Hér verður um
að ræða stærstu þáttaskil í
sögu klúbbsins og við vonum
að þetta verði til þess að hann
eflist og það fjölgi í honum.“
Verksamningur um bygg-
ingu hins nýja skála var und-
irritaður í síðustu viku. Tvö
fyrirtæki taka að sér verkið í
sameiningu, Naglinn ehf. og
Trésmiðjan ehf. í Hnífsdal.
Vegna þess hversu áliðið er
orðið og hversu hratt þarf að
vinna treystu þau sér ekki til
að vinna verkið hvort í sínu
lagi, en með þessu geta þau
samnýtt mannskapinn betur.
Nýi golfskálinn verður á
hæðinni beint fyrir ofan gamla
skálann, á veginum sem liggur
þar upp, og þess vegna er nú
búið að leggja lykkju á veginn
framhjá þeim stað þar sem
skálinn verður. Gamli skálinn
verður fjarlægður og gengið
frá vellinum og verður braut
þar sem hann er nú.
Nýi skálinn verður um 130
m² að grunnfleti og hæðirnar
verða tvær, þannig að heild-
arflatarmál verður um 260 m².
„Neðri hæðin verður notuð
annars vegar sem geymsla
fyrir áhöld og tæki, en við
höfum verið á hrakhólum með
slíkt á liðnum árum, og hins
vegar verður þar vagna- og
kerrugeymsla ásamt skipti-
klefum. Uppi verður félags-
heimili með góðri veitinga-
aðstöðu og allri þeirri þjón-
ustu sem golfskálar þurfa að
hafa“, segir Tryggvi.
Neðri hæðin verður steypt
og miðað er við að lokið verði
við að steypa upp fyrir áramót.
Efri hæðin verður síðan timb-
urhúsið að Fitjateigi 6 í
Hnífsdal (eitt af uppkaupa-
húsunum svonefndu), sem
klúbburinn keypti fyrr á
þessu ári. Það verður ein-
faldlega sett ofan á neðri
hæðina. Ætlunin er að það
verði komið á sinn stað um
miðjan janúar, þannig að
klúbbfélagar geti þá farið
að byrja á innréttingum og
annarri innivinnu og hægt
verði að byrja að nýta
skálann að fullu í vor þegar
klúbbstarfið byrjar. „Þessi
framkvæmd kostar auð-
vitað verulegt fé og klúbb-
urinn þarf að mæta henni
með fjárhagslegu átaki og
lántökum“, segir Tryggvi
Guðmundsson.
Gamli blái skálinn sem
nú hverfur senn er gamall
vigtarskúr sem keyptur var
af Hafnarnefnd Ísafjarðar-
kaupstaðar árið 1985 og var
hann kominn á sinn stað
15. júní það ár.
Fitjateigur 6 í Hnífsdal. Þetta 130 m² timburhús verður efri hæð hins nýja skála Golf-
klúbbs Ísafjarðar í Tungudal.
Við undirritun verksamings um byggingu nýja golfskálans: Tryggvi Guðmundsson,
formaður GÍ, Halldór Antonsson f.h. Naglans ehf., Magnús Helgason f.h. Trésmiðjunnar
ehf. í Hnífsdal, og Pétur Bjarnason, varaformaður GÍ.
Mikil ferðagleði Íslend-
inga til útlanda í haust
og vetur hefur verið í
fréttum að undanförnu.
Hefur þú sömu sögu að
segja af fólki hér á norð-
anverðum Vestfjörðum?
Já, vissulega. Ferðagleð-
in hér er ekki slakari en hjá
öðrum landsmönnum.
Og hvert fer fólk héðan
helst?
Hreinlega út um allt.
Núna var að fara héðan fólk
til Ítalíu, Kúbu, Kenýa,
Dublin, Bandaríkjanna og
Mið-Evrópu, svo það
helsta sé nefnt.
Verður mannauðn hér
fyrir vestan á jólunum?
Verða þá allir í útland-
inu?
Nei, ætli það. Ísfirðingar
hafa jafnan verið fremur
fastheldnir á jólin, en þó
eru allmargir héðan sem
verða á Kanaríeyjum um
jólin og svo eru mjög marg-
ir sem fara þangað í vor.
Hefur salan aukist
mikið milli ára?
Já, vöxturinn er mikill,
bæði innanlands og utan.
Innanlands? Ég hélt að
þú værir bara með utan-
landsferðir og svo Gjugg
í borg...
Það er nú eitthvað annað.
Ég tek að mér allt sem við-
kemur ferðalögum innan-
lands. Til dæmis er nýaf-
staðin á Kirkjubæjar-
klaustri stór ráðstefna
krabbameinslækna og
hjúkrunarfræðinga. Hér
innanlands skipulegg ég
viðskiptaferðir, flug og bíl
og hótel, allskonar
skemmtiferðir, svo sem í
Bláa lónið og víkingaveisl-
ur, og síðan nefndirðu
Gjugg í borg, en það er
helgarferð til Reykjavíkur
sem mikið er farið í.
Nefndu það bara!
Verða ekki allir búnir
að fá nóg á næsta ári?
Ég vona að næsta ár verði
ennþá betra. Ég vona að
Vestfirðingar hætti ekki að
ferðast þó að þeir séu svona
ferðaglaðir núna, heldur
þvert á móti!