Bæjarins besta - 11.11.1998, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1998 9
Gardínubúðin
Hafnarstræti 8, sími 456 3430
Jóla-
handavinna,
dúkar,
dagatöl,
póstur,
myndir.
m vímuefnaneyslu unglinga
r hættunni?
um hafa komið fyrir að börnin
bera ekki alveg rétt skilaboð á
milli foreldranna. Hver hefur
ekki heyrt eins og þetta ,,pabbi
og mamma Jóhannesar leyfa
honum að…….. af hverju má
ég ekki…….”
Ég hvet foreldra unglinga í
Bolungarvík, Ísafjarðarbæ og
í Súðavíkurhreppi til að koma
saman þ.e.a.s. hver bekkjar-
deild og ræða ,,foreldrasamn-
ing fyrirmyndarforeldra”.
Samningurinn er eitt skrefið í
þá átt að minnka líkurnar á
því að unglingarnir okkar leið-
ist út í neyslu vímuefna.
Foreldrafélög eru hvött til
að nálgast samningseyðu-
blöðin hjá Heimili og skóla
og hafa forgöngu um umræður
um samninginn í hverri bekkj-
ardeild.
Að lokum vil ég nota tæki-
færið og segja frá mjög merki-
legum fyrirlestri sem stendur
öllum foreldrum leikskóla- og
grunnskólabarna í Bolungar-
vík, Ísafjarðarbæ og í Súðavík,
til boða þriðjudaginn 24.
nóvember nk. Fyrirlesturinn,
sem heitir ,,Uppeldi og agi”,
er haldinn af sálfræðingunum
Þórkötlu Aðalsteinsdóttur og
Margréti Halldórsdóttur.
Fyrirlesturinn verður hald-
inn þann 24. nóvember nk.
kl.20:30 í sal Grunnskólans
á Ísafirði. Þar verður mörg-
um áleitnum spurningum
um aga og uppeldi væntan-
lega svarað.
Hlynur Snorrason,
lögreglufulltrúi og
verkefnisstjóri VÁ VEST.
Hlynur Snorrason.
Úrval af
gardínuefnum.
Tilbúnir kappar.
Rauð blúnda
í jólagardínurnar.
Jólakappar.
T
I
L
B
O
Ð20% afsláttur
af diskamottum,
dúkum, rúmfötum,
grillhönskum
og fleiru.
Ódýrar jólagjafir.
Bátur keyptur og
annar í viðskipti
Fiskvinnslufyrir tækið
Unnur ehf. á Þingeyri keypti
nýlega bát og er komið með
annan í viðskipti í vetur. Bát-
urinn sem keyptur var er Sómi
800, um 5 tonn og heitir Unn-
ur. Hinn er frá Hvammstanga,
minni gerðin af Kleópötru,
um 6 tonn og heitir Petra.
Unnur ehf. var stofnsett ár-
ið 1996. Eigendur eru tveir,
Ragnar Gunnarsson og Sigfús
Jóhannsson sem er fram-
kvæmdastjóri. „Það gengur
bara vel með fiskiríið“, segir
Sigfús, „og við erum orðnir
sjálfum okkur nógir með fisk
ef veður leyfir. Vandamálið
hjá okkur hefur alltaf verið
það sama – að fá fisk, nema
þá á markaði, en maður getur
bara ekki keppt í því.“
Á hvorum bát eru tveir
menn og sá þriðji að beita, en
í verkuninni starfa fimm til
sjö manns, þannig að starfs-
menn hjá Unni ehf. eru ellefu
til þrettán. Allt eru það heima-
menn á Þingeyri nema eigandi
Petru. „Allir eru að biðja um
álver sem kostar milljarða að
reisa“, segir Sigfús, „en við
hér á Vestfjörðum eigum
okkar álversígildi við bæjar-
dyrnar ef við mættum vera
hér á tólf til átján mílunum og
fiska það sem við þurfum að
nota.“
Unnur ehf. á Þingeyri
Fiskiríið á Þingeyri gengur vel.