Jólablaðið - 20.12.1952, Blaðsíða 8

Jólablaðið - 20.12.1952, Blaðsíða 8
8 JÓLABLAÐIÐ * stærsti útgerðarmaður vélbáta og rak mikla verzlun og fiskkaup. Þróun vélbátaútgerðar þar var í öndverðu sú, að formaður og út- gerðarmaður áttu saman bátinn. Ef illa gekk lenti báturinn venju- lega algerlega á útgerðarmannin- um. I Bolungarvík voru einnig bræðumir Jóhann, Þorsteinn og Jón Eyfirðingar, formenn og eig- endur vélbáta. Jóhann Reyndal, bakarameistari, hafði líka verzlun og vélbátaútgerð, að ótöldum mörg um einstaklingum. I Súðavík og víða annars staðar við Djúp var og nokkur vélbátaútgerð. Fyrsta vélbátinn í Súðavík átti Ásgeir I. Ásgeirsson, kaupm. Bátur þessi var almennt nefndur Kogarinn. Eflaust af einhverju sérstöku til- efni. Á Suðureyri í Súgandafirði voru það samtök einstaklinga sem fengu fyrstu vélbátana. Sá útgerð- armaður þar, sem á sér lengsta sögu og merkilegasta fyrir mikinn dugnað og harðfengi er Friðbert Guðmundsson. Hann var lengi for- maður á vélbátum og fiskkaup- maður. Einnig má nefna Jón Ei- ríksson, Jón Grímsson, kaupmann, Ömólf Valdimarsson og Sturla Jónssson. Á Flateyri í önundarfirði fengu þeir bræður Páll og Kristján Torfasynir (Halldórssonar, skip- stjóra) fyrsta vélbátinn. Hann var með Wolwerine-motor, og var Páll umboðsmaður þessara motora fyr- ir Vestfirði. Vélbátaútgerð á Flat- eyri og í Önundarfirði var í hönd- um einstaklinga. Munu þeir feðg- ar Guðmundur Jónsson á Görðum og Finnur og Hinrik hafa verið með þeim fyrstu sem eignuðust vélbát þar, og bræðumir Kristján og Jón Eyjólfssynir frá Dalshús- um í Valþjófsdal. Á Þingeyri í Dýrafirði var Carl Proppé, þá verzlunarstjóri og síðar kaupmaður, forgangsmaður um út- breiðslu vélbátanna. Hann var um- boðsmaður nýrrar vélategundar — Stabil. Fyrsti vélbátur í Dýra- firði mun smíðaður af Lámsi Björnssyni, skipasmið, sem þá bjó að Höfða í Dýrafirði. Kristján Andrésson,skipstjóri í Meðaldal og Andrés sonur hans eignuðust fljótlega vélbát. Var Andrés for- maður. Og það er áberandi, að flestir þeirra manna, sem verið höfðu skipstjórar á seglskipum, vom meðal þeirra fyrstu sem tóku höndum saman um kaup og út- gerð vélbáta. 1 þessari einstæðu atvinnubyltingu var hvorki gam- alt né ungt, heldur þetta hvort- tveggja sameinað. Oft hvöttu þeir eldri þá ungu. Þar sem bankar vom þá ungir og lánuðu jafnan í smáum stíl, og helzt til fasteigna, vom vélbátakaupin víðast gerð með sameinuðum átökum félítilla manna, sem áttu bjartsýni og á- ræði til þess að ryðja sér nýja braut með vélknúnum fleytum, Bolungapvík iiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiTiliiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiRiiiiiiiiiiiiriiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!i sem vom betur útbúnar og gátu leitað lengra, en gömlu áraskipin og litlu seglskipin. Og þó héldu áraskip og seglskip velli, í sam- keppni við vélbátaútgerðina um nokkurt árabil; hér á ísafirði fram undir 1912, en heltust úr lestinni með hverju líðandi ári. Sigurður Fr. Einarsson á Þingeyri, Ólafur Guðbjartur í Haukadal og Jón Ara- son í Hvammi vom og í hópi þeirra fyrstu. Á Bíldudal og annars staðar við Amarfjörð vora það einstakling- ar, sem áttu mestan þátt í þróun vélbátaútvegsins. I Tálknafirði varð snemma nokkur vélbátaútvegur, en allt vom það smærri bátar; miðaðir við þeirra hæfi. Aðallega var sjór sóttur yfir vorvertíð, og einnig nokkuð að haustinu. Útgerðarstað- ir vom aðallega Sveinseyri og Suðureyri, en einnig var sjór sótt- ur frá nokkmm heimilum úti í firðinum, t.d. frá Bakka. Guð- mundur Jónsson frá Sveinseyri var á þessum ámm einn af aflakóng- um í Tálknafirði, og fékk sér fljót- lega vélbát. Hann hefir um langa hríð verið sveitarhöfðingi þar, sem kunnugt er. I Patreksfirði var Pétur A. ól- afsson, verzlunarstjóri á Geirseyri, brautryðjandinn í útgerð vélbáta. Hann var umboðsmaður motor- verksmiðjunnar Dan á Vestfjörð- um, og mun fyrst hafa fengið lít- inn bát með Danvél; aðallega til ferðalaga um fjörðinn. Bátur þessi, var af almenningi nefndur Græni báturinn, eftir litnum á bátnum. Litlu síðar fékk Pétur þilfarsbát frá Danmörku, um 10 smál. að stærð, með 12 hestafla Danvél. Bát þennan keypti Skúli | GLEÐILEG JÓL! FARSÆLT NÝTT Á R! = Þökkum viðskiptin á líðandi ári. | Verzlun Einars Guðfinnssonar. | Fiskimjölsverksmiðja Bolungarvíkur h.f. Ishúsfélag Bolungarvíkur h.f. Lifrarbræðsla Bolungarvíkur. | Brauðgerðarhús Bolungarvíkur h.f. | Völusteinn h.f. | Rún h.f. ■2» = I!ll1lllllllllllllllllll1lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll!llllllllllllllíllllllllllllll1lllllllllll!llllllllll!lllllllllllllllllllll!l!llllll | W | SPARISJÖÐUR BOLUNGARVIKUR I óskar öllum sýslubúum | gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. (lllllllllllllll!llllllllllllllllllllllllllllllllllllllll!lllllllllllllllllillllll!llllllllllllllll!IIMIIII1llllllllilll!ll!Illini!llllltll[||lllllll!IMI!l iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!iiiiiiiiiiiii!iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiaiiiiiRiia‘ii!iiiiiiiiiiiii>iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!iiiii!iiiiiiiiii VÉR BJÓÐUM YÐUR ALLAR með beztu og haganlegustu kjörum, svo sem: Brunatryggingar Bifreiðatryggingar Sjó- og stríðstryggingar Ferðaslysatryggingar Farangurstryggingar Rekstursstöðvunartryggingar Flugvélatryggingar FARÞEGUM, sem ferðast með flugvélum Flugfélags íslands h.f., viljum vér sérstaklega benda á hinar hagkvæmu slysatryggingar, sem gilda fyrir hverja einstaka flugferð. Skírteinin fást á afgreiðslu Flugfélagsins, og getið þér tryggt yður um leið, og þér innleysið farseðilinn. FJÖRUTIU ÁRA reynsla tryggir viðskiptin Trolle & Rothe h.f. lslenzkt vátryggingarfélag Stofnað 1910 — Klapparstíg 26 — Reykjavík Umboðsmaður á Isafirði JÓN PALL HALLDÓRSSON — Sími 289 ||iaillllllllllllllllllllilllJI!lllllllllllllllllllllll!llllllltlllllllllllllllllllllll!!lllllllllllllllllllllllllllllll!llllllllllllll!llllllllllllll!llllllllllllllllllllllllllllllll!lllllllllllllllllMlllllllllllllllllll!llllllllllllllll| ííiiniiiiiiiiiiiiiiiiiRiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiRiiiuaiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiliiai!iiiiiiiiiiiiiiiiiiiifiiiiiiRiiiiiiiiii!iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiii “ " iMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiaiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiuiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiitiuiiiiiiiiiiuiiiitiiiiiiiiiiiuiu

x

Jólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jólablaðið
https://timarit.is/publication/1540

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.