Jólablaðið - 20.12.1952, Blaðsíða 13
JÓLABLAÐIÐ
13
ísfirzkir atburðir.
Gamlir
Jólablaðið hefir að undanfömu
flutt frásögn af ýmsum ísfirzkum
atburðum frá eldri tíð, að mestu
tekið eftir blöðum, sem út hafa
komið á Isafirði. En slíku er ekki
til að dreifa fyrr en 30. okt. 1886.
Þá hóf Þjóðviljinn göngu sína. Um
eldri atburði er fátt skráð, svo vit-
að sé, og verður um þá að leita
til gamals fólks, sem man svo
gerla, að frásagnarvert sé.
Ég var nýlega svo heppinn að
hitta Pétur Hjaltested á Sunnu-
hvoli í Reykjavík, sem dvaldi á
Isafirði 1879—1881 hjá hjónunum
Bimi Ámasyni gullsmið og Sigríði
Þorláksdóttur. Fer frásögn Péturs
hér á eftir:
Dvöl mín á ísafirði er meðal
yndisstunda æsku minnar. Þar var
gott fólk, mikið athafnalíf og mik-
ið menningarlíf. Skal ég hér segja
frá nokkru, sem ég man.
Mikill kórsöngur.
Þeir Bjöm Kristjánsson, kaup-
maður og síðar bankastjóri, og
Grímur Jónsson, cand. theol. æfðu
söngflokk mikinn. Minnir að í
söngflokknum væru um 40 manns.
Annan jóladag 1881 söng kór þessi
opinberlega. Á söngskrá voru 12
lög, þar á meðal lög sem þeir
Björn og Grímur höfðu raddsett
að nýju eða samið. Minni mig að
áheyrendur væru um 400. Æfing-
ar söngflokksins hófust í október,
og var mikið látið af því hvað
söngurinn tókst vel. Líklega hefir
samsöngur þessi verið endurtekinn
um áramótin, en ekki man ég það
fyrir víst.
Leiksýningar.
Leiksýningar voru nokkrar með-
an ég dvaldi á ísafirði. Man ég
bezt eftir leiksýningum veturinn
1881—1882. Fyrst var leikinn
Skugga-Sveinn eða Otilegumenn-
irnir eftir Matthías Jochumsson,
en síðan Brúðarhvarfið eftir
Magnús bróðir Matthíasar. Milli
þátta lék ég á stóra tvöfalda
harmoniku, sem Jens Sandholt
átti. Hún var mér býsna erfið,
enda var ég aðeins 11 ára gamall
Þegar Skugga-Sveinn hafði verið
leikinn tvisvar var Brúðarhvarfið
leikið, einnig í tvö skipti. Mig
minnir að leikritið væri í fjórum
þáttum og leiksýningin með hléum
tæki um 2 y2 klst. Efni leiksins var
svipað og í Skugga-Sveini, en mér
þótti Brúðarhvarfið tilkomumeiri
leikur. Þar voru allir leikendur
prúðbúnir og hinir glæsilegustu,
einkum þau frú Sigríður Þorláks-
dóttir og Jens Egill Sandholt.
Leikendur voru margir, milli 10 og
20. Leiktjöldin málaði Björn
Árnason, gullsmiður. Þau voru
bæði falleg og skrautleg. Sýningar
á Brúðarhvarfinu fóru fram í árs-
byrjun 1882 og var leikið í Nord-
polen, húsi Sölva Thorsteinssonar,
sem þá var í byggingu. Söngljóð
voru í Brúðarhvarfinu eins og í
Skugga-Sveini.
Bráður bruni.
Meðan ég dvaldi á ísafirði brann
hús Jóns Sæmundssonar, sem kall-
að var Irafell, þar bjó Björn
Árnason, gullsmiður. Írafells-Móra
var kennt um þennan húsbruna,
og sumir þóttust sjá hann í elds-
glæðunum meðan húsið var að
brenna. En þetta átti allt eðlilegar
orsakir. Húsið brann 16. des. 1880.
Hafði verið mikil skírnarveizla þ.
15. og stóð hún til kl. 2 um nótt-
ina. Klukkan 4 um nóttina var
hrópað: Eldur, eldur! Var húsið
þá nær alelda og bjargaðist fólkið
nauðuglega. Niðri í húsinu var
Björn Árnason, kona hans og
börn, en uppi í norðurendanum
þeir Þorlákur Magnússon síðar
snikkari, og Þórarinn Á. Þor-
steinsson, sem var við nám hjá
Birni. 1 suðurendanum uppi voru
Árni, faðir Björns, Pétur Hjalte-
sted, sá sem hér segir frá, vinnu-
kona og gömul kona, Sigríður að
nafni. Illa gekk að vekja fólkið,
sem sumt var nýsofnað, en eldur-
inn magnaðist ákaflega fljótt,
enda var norðaustan stormur með
snjóhraglanda og 14 stiga frosti.
Pétur Hjaltested var síðastur inni
í húsinu. Var húsið þá nær alelda
og samfelt reykjarkaf, þar sem
ekki var eldur. Bjóst Pétur við
dauða sínum, og hafði gefið upp
alla von um að komast út úr hús-
inu. En Björn Árnason hafði með
harðræði og snarræði tekizt að ná
í stiga í næsta húsi, sem þá var í
smíðum, eign Teits Ingimundar-
sonar, úrsmiðs (síðar Jóns Ebba-
hús). Kallaði Björn til Péturs að
sýna kjark og dug og brjóta
glugga í suðurgaflinum uppi og
skríða þar út, en svo var af Pétri
dregið, að hann gat ekki brotið
gluggann. En Bjöm gat með snar-
ræði brotið neðstu rúðuna í glugg-
anum, og féll Pétur í fang hans
nær meðvitundarlaus. Kom Björn
honum í hús Teits, sem stóð um
12 álnum norðanvert í sömu götu
og Irafell, þangað flutti og annað
heimilisfólk Björns fyrst í stað, og
fengu þar aðhlynningu eftir því
sem hægt var.
Slökkvilið var þá ekkert á ísa-
firði, en kl. 5—6 komu nágrannar
á vettvang, og vörnuðu því að eld-
urinn breiddist til fleiri húsa.
Þegar á daginn leið voru á lofti
margar hendur til þess að bæta úr
tjóni vegna brunans með því að
skjóta skjólshúsi yfir fólkið og
gefa því eitthvað af fatnaði, svo
að það gæti klæðst, því að flest af
fólkinu bjargaðist fáklætt. Sigríð-
ur, kona Bjöms og börn þeirra,
fluttu til Málfríðar, systur Sigríð-
ar og Símonar Alexíussonar, kaup-
manns.
Við þetta tækifæri og oftar kom
fram svo mikil hjálpsemi og mann
dómur hjá ísfirðingum, að ég hefi
jafnan síðan borið til þeirra þakk-
látan hug og hjartahlýjan. Þeir
reyndust mér gott fólk og dug-
mikið. Og ég óska þess, segir Pétur
að lokum, að ísfirðingar meti jafn-
an mikils þessar fornu dyggðir og
íbúar Isafjarðar verði öðrum til
fyrirmyndar í góðvild og dugnaði.
Ekkert er tryggara til farsældar,
segir öldungurinn, en dugnaður og
drengskapur.
S A L E M:
Jóladag: Hátíðasamkoma kl.
4.30 e.h.
Annan jóladag: Barnasamkoma
kl. 11 f.h. Almenn samkoma kl.
8.30 e.h.
Sunnudagur 28. des.: Jólafagn-
aður í Skátaheimilinu fyrir aldrað
fólk kl. 3 e.h.
Mánudagur 29. des.: Jólatré
Sunnudagsskólans. Yngri deild kl.
2. Eldri deild kl. 5 e.h.
Gamlárskvöld: Áramótasam-
koma kl. 11 e.h.
Nýársdag: Almenn samkoma kl.
4.30 e.h.
LEGGIÐ
SKERF
1
JÓLAPOTTINN.
Óskum öllum viðskiptavinum
GLEÐILEGRA JÓLA
O G FARSÆLS NÍÁRS!
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna,
Reykjavík.
GLEÐILEG JÓL! FASÆLT NÝTT ÁR!
Þökkum viðskiptin á líðandi ári.
H. Benediktsson & Co.
Reykjavík.