Börn og menning - 01.09.2000, Page 7

Börn og menning - 01.09.2000, Page 7
BÖRN OC /aENN|NG Börn gleðjast auðvitað yfir sögunum og upplifa kannski fyrst og fremst öryggi í krafti endurtekn- ingarinnar en hafa þau einhverja óljósa þrá eftir að hugsa um og glíma við það sem kalla mœtti „æðri sannindi“? Já, bæði er að þau vilja heyra um og afla sér reynslu sem þau geta ekki fengið sjálf með því að ganga í gegn- um þessa hluti. Svo kemur mjög snemma fram hjá litl- um krökkum þessi þrá mannsins til að skilja - þessi grunur um eitthvað sem er öllu æðra. Það býr í bömum. Jafnvel þótt þau hafí aldrei verið frædd um neitt slíkt, þá kviknar samt með þeim þessi kennd og þau búa sér til eigin heim. Sumir ætla sér að ala bömin upp svo óskaplega raun- sætt og vilja ekki fylla þau af ranghugmyndum heldur halda að þeim „raun- verulegum“ hlutum og halda jafnvel að ævintýri geti spillt þeim. Eins hefur ver- ið gert dálítið af því á seinni tímum að taka ævintýrin og breyta þeim með því að gera vondar skessur og óvætti meinlaus og gera þau að elskuleg- um leikfélögum og vinum barnanna. Mér finnst þetta rangt. Böm vilja fá að reyna á þanþol sitt, þeim fmnst svo spennandi að verða hrædd og þjálfa sig í því. Enda er það nauðsynlegt, þau þurfa að sigrast á óttanum. Saga á að vera þannig að þau gangi í gegnum þessa tilfinningalegu reynslu og síðan slaknar á og þau læra að sigrast á óttanum. Oft fjalla sögumar um ferð út í hið ókunna, átökin við hið óumflýjanlega. Þær fjalla um að skilja hin dularfullu tákn sem em alls staðar og um það beinlínis að ná sér í meiri þekkingu. Ævintýrin virðast líka stundum til þess gerð að þjálfa bömin í að koma auga á eigin möguleika, því oft getur lítilmagninn í sögunni breytt því sem virðist óum- breytanlegt og ósigrandi. Þetta er einmitt svo algengt í sögunum. Það er sá litli, það er Hans klaufí sem sigrar hina gáfuðu, stóm og flinku bræður sína. Sá yngsti í ævintýrunum leysir oft allar þrautimar. Litla bamið samsamar sig þessu auð- veldlega. Það er mjög ríkt í litlum krökkum að bera sig saman við þá sem eldri em og finnast þeir sjálfir vera lítils megnugir. Þess vegna er það dýrmætt fyrir bömin að sjá að það er einmitt sá minnsti sem stendur sig og hlýtur sigurlaunin. Með því að setja sig í spor söguhetjanna læra bömin líka rétta breytni og að vera ábyrg gerða sinna. Ég vil nefna sem dæmi eina uppáhaldssögu mína sem er Lítill, trítill og fuglarnir. Ég var ansi lítil þegar ég heyrði þessa sögu fyrst. Hún var til heirna, það var Magnús Grímsson sem skráði hana fyrst og hún er ótrúlega skemmtileg. Þegar söguhetjan fer út í heim sýnir hann sinn rétta mann, hann er góður, hann gefur af nestinu sínu og síðar þegar hann er lentur í ógöngum hjá skess- unni og á að leysa ómögulegar þrautir, þá koma þeir til hjálpar sem hann hefur reynst vel. Fuglarnir finna til dæmis allt fiðrið úr sæng skessunnar. Skessan getur ekki rönd við reist og segir alltaf: „Ekki ert þú einn í ráðum, karl, karl, en læt ég svo vera.“ Þannig sigrar hann, leysir allar þrautimar og verður auðugur maður - af því að hann fór rétt að og vék góðu að þeim sem urðu á vegi hans ...sögurnar gagn- ast þannig í sið- ferðilegu uppeldi? Öll samfélög inanna eiga sér sögur sem geyma sí- gildan siðaboðskap og kennslu ætt- eða þjóðflokksins. Þetta eru sögur sem hægt er að segja litlum bömum, ýmist dæmisögur eða ævintýri sem em í því fonni að nær til bama. Þetta em ekki flóknar siðareglur fyrir ofan þeina skilning, til dæmis eru dýr oft sögupersónumar, eins og í mörgum afrískum þjóðsögum. Þetta em mynd- rænar sögur sem bömin geta skilið og notað til að byggja upp sinn hugmyndaheim. Og verða síðan bmnn- ur sem þau ausa af alla ævi. Eru einhverjar afþeim harnabókum sem eru þér sérstaklega handgengnar dœnii um nákvœmlega þetta? 5

x

Börn og menning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.