Börn og menning - 01.09.2000, Blaðsíða 26

Börn og menning - 01.09.2000, Blaðsíða 26
BÖRN OG /saENN|N6 um í aldanna rás. Samkvæmt skilgreiningu Ólafs Briem eru þær aðallega þessar: Jötnar voru stærri og sterkari en menn og miklu ljót- ari, nema hvað sumar jötunmeyjar voru forkunnarfríðar. Þeir bjuggu langt frá mannabyggðum, í ijöllum og hellum. Jötnar hafa lifað áfram í þjóðsögum og þjóðtrú Islendinga sem tröll: menn sem risar og konur sem skessur. Barátta jötnanna við æsi leið undir lok um leið og goðatrúin, en þess í stað hatast jötnar (eða risar) við kristnina og þola til að mynda ekki kirkjuklukkur. Grýla er sennilega þekktasta tröllið á Islandi og um hana hafa verið ritaðar margar bamabækur, meðal annars Grýla gamla og jólasveinarnir eftir Kristján Jóhannsson (1969), Jólasveinafjölskyldan á Grýlubæ eftir Guðrúnu Sveinsdóttur (1984) og Grýlusaga Gunnars Karlssonar (1999) sem hlaut Bamabókaverðlaun Reykjavíkurborg- ar vorið 2000. Auk bókanna um Grýlu eru til ótal ís- lenskar bamabækur um tröll, til dæmis hin þekkta bók Guðrúnar Helgadóttur, Ástarsaga úr jjöllunum (1981) með ógleymanlegum myndum Brians Pilkington - sem hafa reyndar gefíð tröllunum „andlit“ ásamt myndum Asgríms Jónssonar sem skreyttu bamabækur og lestrar- bækur framan af tuttugustu öldinni. Bók Brians Pilk- ington og Hildar Hermóðsdóttur, Allt um tröll (1999) hefúr einnig vakið athygli. Aðrar tröllabækur em meðal annars Tröllið hans Jóa eftir Margréti Jónsdóttur (1991) og Gegnum holt og hæðir eftir Herdísi Egilsdóttur (1981). Dvergar kviknuðu í holdi Ýmis að sögn Snorra, og búa í jörðu, í steinum og klettum og stundum í svartálfa- heimi. Ólafúr Briem fúrðar sig á því hvað ber lítið á þeim í þjóðtrú síðari alda. Enskar fantasíubókmenntir fýrir böm eru þó fullar af frásögnum af dvergum. í nú- tíma íslenskum bamabókum er einnig að finna þó nokkrar frásagnir af þeim, til dæmis í Dvergasteini Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar (1991), Blómunum í Bláfjöllum eftir Jennu Jensdóttur og Hreiðar Stefánsson (1970) og í bók Ólafar Jónsdóttur frá 1969, Hestastrák- unum og dvergnum. Dísir: Ásatrúarmenn dýrkuðu hvorki jötna né dverga en trúðu þó á tilveru þeirra. Dísir voru hins vegar dýrk- aðar. í Syni Sigurðar eftir Guðlaugu Richter (1987) gef- ur dís aðalhetjunni góð ráð. Þá koma og heilladísir fýrir í bók Guðjóns Sveinssonar, Snjóhjónunum syngjandi (1990). Aðrar kvenlegar vættir vom valkyrjur, nomir og fylgjur. Nomir em vinsælt efni í bamabókum og leggja oft álög á fólk, til dæmis hvíta nomin í Narníu-bókun- um, bókanomin í Töfradal Elíasar Snælands Jónssonar (1997) og nomin í Álagadalnum eftir Heiði Baldursdótt- ur (1989). Jóra í samnefndri bók Guðlaugar Richter (1988) sér fylgju ungs manns og dæmir innræti hans eftir útliti fylgjunnar. Álfar em líklega lífsseigustu vættimar úr ásatrúnni. Snorri talaði bæði um ljósálfa og dökkálfa í Eddu og að sögn Ólafs Briem vom álfar þær vættir sem stóðu í nán- ustu sambandi við goðin. Álfar í ýmsum myndum em vinsælt viðfangsefni íslenskra bamabókahöfúnda og þá er meðal annars að fmna í Búálfunum eftir Valdísi Óskars- dóttur (1979) og Ævintýralegu sambandi Andrésar Indriðasonar (1997). Landvættimar vom dreki, fúgl, griðungur og berg- risi. Landvættir bjuggu í fjöllum og hólum og menn tryggðu sér hylli þeirra með vinargjöfúm. I bók Guð- laugar Richter, Jóra og ég (1988), sem gerist 1104, reynir Jóra að friðþægja vættum í hamri nokkmm með því að færa þeim gjafir; einu sinni tekur hún mat sem þeim var ætlaður og hún er þess fúllviSs að náttúmham- farimar sem koma í kjölfarið stafí af þeim gerðum hennar. Vættimar hurfu algerlega úr sagnaritun á 14. öld, en hæðir vom enn fúllar af ósýnilegum vemm, sem nú nefnast álfar eða huldufólk. Huldufólkið tók nú á móti þeim gjöfúm sem landvættimar þáðu áður. Þessi upptalning sýnir að þó svo að goðin eigi erfitt uppdráttar hjá okkur hafa vættir úr norrænni goðafræði haldið lífi í ótal bamabókum og þá sérstaklega tröll, nomir og álfar. Jafnvel þótt bamabók fjalli ekki beint um þessar vættir kemur það fyrir í ótrúlega mörgum ís- lenskum bamabókum að einhver segi sögu af tröllum, álfúm, eða öðmm vættum, sérstaklega í tengslum við 24

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.