Börn og menning - 01.09.2000, Side 40

Börn og menning - 01.09.2000, Side 40
BÖRN OC /v\ENN|N6 SAMTÍÐARSKÁLD Vió höldum áfram að kynna íslensk skáld sem skrifa fyrir börn og unglinga. Að þessu sinni eru kynnt samtíðarskáldin Helga Möller og Þórarinn Eldjárn. Upplýsingarnar hér að neðan eru fengnar frá höfundunum sjálfum og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Helga Möller (f. 1950) Helga er danskennari að mennt og kenndi í nokkur ár. Hún hefur starfað í tæp tuttugu ár við tímaritaskrif, fyrst Tískublaðið Líf, en lengst af við Hús & híbýli, ásamt því að skrifa greinar og viðtöl í ýmis tímarit Fróða. Hún hefur einnig unnið sem fréttamaður hjá Sjónvarpinu svo og samið og myndskreytt sögur fýrir Stundina okkar þar á bæ. „Það er mjög gefandi að skrifa sögur fyrir börn. Þau koma auga á ævintýrin sem er að finna í hvundeginum, nokkuð sem oft fer fram hjá okkur fullorðna fólkinu í annríki og amstri dagsins. Það er því gaman að setja sig í spor barns og gefa ímyndunar- aflinu lausan tauminn, gefa gaum að efniviðnum í lít- il ævintýri sem hægt er að finna við hvert götuhorn og í hverri manneskju og lifandi veru. Eigin æska var uppspretta bóka minna eftir að ég uppgötvaði að dóttir mín og vinir hennar höfðu gam- an af að hlusta á frásagnir mínar af atvikum og upp- ákomum frá því ég var lítil. Það er í sjálfu sér ævin- týri líkast að sitja við tölvuna og sjá persónur spretta fram á tölvuskjánum og sögurnar spinnast áfram, líkt og maður sé sjálfur lesandi. Að fá bréf frá þakk- látum lesendum kórónar svo ánægjuna og er ómetan- leg hvatning til frekari framkvæmda á ritvellinum.“ Útgejin verk: Puntrófur og pottormar 1992 Leiksystur og labbakútar 1993 Prakkarakrakkar 1996 Við enda regnbogans 1999 Forlag: Fróði / Iðunn

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.