Börn og menning - 01.04.2001, Side 4

Börn og menning - 01.04.2001, Side 4
BÖRN OC MENN|N6 Langvarandi áhrif Kæru lesendur A æskuárum mínum hafði ein mynd alveg sérstök áhrif á mig. Hún hékk uppi á vegg hjá afa og ömmu og þegar ég kom þangað sat ég löngum stundum og starði á hana. Ég komst að því seinna að þetta var eftirprentun af verki eftir Van Gogh sem ég veit ekki enn hvað heitir. Myndin sýnir mann á slegnum akri og beygir hann sig yfir kornknippi sem hylur hluta af fótleggjunum þannig að efri hluti líkamans og fætumir eru aðskildir. Ég held það hafi liðið nokkur ár áður en ég tengdi þessa aðskildu líkamshluta mannsins á myndinni og því fór drjúgur tími í að velta vöngum yfir hvað í ósköpunum þetta væri sem ég nú veit að eru fætur. En um leið greyptist þessi mynd svo í huga minn að ég get kallað hana fram hvenær sem er og hlegið yfir heimsku minni eða séð fyrir mér afa og ömmu sitjandi í sófanum undir henni. Oft hef ég heyrt fólk lýsa því að það hafi orðið fyrir svipuðum áhrifum af myndum í bókum sem það átti í æsku. Sagan er kannski löngu gleymd en stöku mynd er ljóslifandi og álíka kær og t.d. uppáhaldsbrúða eða bangsi. í nútímaþjóðfélagi verðum við stöðugt fyrir myndáreitum í umhverfinu. Við horfum á kvikmyndir, sjónvarp og myndbönd, sjáum auglýsingaskilti hvert sem litið er, myndskreyttir bæklingar og blöð detta í stríðum straumum inn um póstlúguna og þannig mætti lengi telja. Mörgum þessara áreita rétt bregður fyrir svo þau festast ekki í sjónminninu og hafa því ekki sterk og langvarandi áhrif eins og ég lýsti hér á undan. Um myndskreytingar í bókum, sem margar eru ætlaðar börnum sérstaklega, gegnir öðru máli. Barnið skoðar og les sömu bækurnar aftur og aftur og því er ekki ólíklegt að enn sé það svo að myndimar sem eiga eftir að verða kærir fylginautar þess í lífinu séu einmitt að finna í barnabókum. Börn og menning er að þessu sinni að miklu leyti helgað myndskreytingum í barnabókum. Áslaug Jónsdóttir myndskreytir og rithöfundur segir umbúðalaust skoðun sína á ástandi myndskreytinga hér á landi í grein sem hún var svo höfðingleg að myndskreyta sjálf. í blaðinu er einnig að finna viðtal sem Kristín Birgisdóttir átti við Ragnheiði Gestsdóttur mynd- og rithöfúnd þar sem hún tjáir sig að mestu um myndskreytingar í barnabókum. Eins og fram kemur hjá þeim stöllum er engin ástæða til að hrópa húrra fyrir framlagi okkar Islendinga til þessarar listgeinar en vonandi eigum við eftir að sjá fleiri listamenn snúa sér að því að myndskreyta bækur í framtíðinni. Að minnsta kosti gefur uppsveiflan í myndskreytingum sem nú á sér stað á Norðurlöndum okkur tilefni til bjartsýni. Hér í blaðinu er einmitt fjallað lítillega um þessa nýbylgju sem einkum ríkir í Danmörku og Noregi. Guðmundur Oddur Magnússon veitir okkur innsýn í hvernig myndsmíðakennslu er háttað í Listaháskóla íslands en ekki síður hvernig sú kynslóð sem hefur alist upp við tölvuskjáinn er í stakk búin til að takast á við myndskreytingar. Loks römmum við þessa myndlýsingaumfjöllun inn með því að kynna tvo íslenska myndskreyta í samtímanum auk þess sem við birtum nokkur verk horfinna snillinga á miðopnunni. Aðrar listgreinar fá einnig sitt rými í þessu blaði auk fastra pistla og ritdóma. Úlfhildur Dagsdóttir fjallar um íslenskar kvikmyndir fyrir börn þar sem hún gefur sérstakan gaum að Ikíngut, nýrri og velheppnaðri barnamynd. Síðast en ekki síst skrifar Soffia Auður Birgisdóttir forvitnilega grein um leikhúslíf fyrir börn hér á landi sem er að sönnu ótrúlega fjölskrúðugt en eins og kemur fram hjá Soffíu Auði er tæpast hægt að segja að um mikla nýsköpun sé að ræða á þessu sviði. Það fer sjálfsagt ekki framhjá glöggum lesendum að nýtt nafn birtist nú undir þessum pistli. Kristín Birgisdóttir sem verið hefur ritstjóri blaðsins um árabil eða allt frá því að það birtist undir nýju nafni og með nýju sniði hefur nú tekið við ritstjórastarfi á öðrum vettvangi. Ég vil nota tækifærið og óska henni velfarnaðar í nýju starfi og þakka henni um leið fyrir samstarfið og alla þá óeigingjörnu vinnu sem hún hefur innt af hendi í þágu Barna og menningar. Guðlaug Richter 2

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.