Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 29.09.1978, Blaðsíða 3
FÉLAGSTÍÐINDI
3
breytt af launadeild Fjármálaráðuneytisins án samráðs
við starfsmann og án þess að hann væri látinn vita.
Jafnhliða þessu máli vakti BSRB athygli á því að al-
geng virtist þessi framkvæmd launadeildar, ef marka
mætti kvartanir, að breyta undirrituðum samningi án
samráðs við hlutaðeigandi starfsmann, sem með undir-
skrift sinni væri orðinn lögmætur aðili að hinu undir-
ritaða skjali.
Fjármálaráðuneytið hafnaði alfarið þeirri kröfu BSRB að
breyting sem gerð væri á ráðningarsamningi Arngunnar
dæmdist ógild. Ráðuneytið taldi að breytingin hefði
verið "x samræmi við gildandi kjarasamninga og því
fyllilega réttmæt".
I ^reinargerð ráðuneytisins er bent á fyrirvara 1
sjalfum samningnum um að hann öðlist ekki gildi fyrr en
hann hafi hlotið staðfestingu Fjáxmálaráðuneytisins.
Þá er og bent á það að leiðrétting launadeildar hafi
síður en svo einskorðast við að tryggja hagsmuni
ríkissjóðs, heldur einnig hagsmuni starfsmanna ef mis-
tök í gerð ráðningarsamninga hafi verið þeim í óhag.
Hinsvegar gerðu fulltrúar fjármálaráðuneytis þá tillögu
um málsmeðferð að, ef launadeild gæti ekki af einhverjum
ástæðum fallist á ráðningarsamning, skyldi hann endur-
sendur án áritunar með viðeigandi athugasemdum, t.d.
þannig að ritað væri inn á aukaeintak af ráðningar-
samningi hverju launadeild teldi rétt að breyta.
Fulltrúar BSRB féllust á þessa málsmeðferð, með þeirri
takmörkun að "starfsmaður verði að fá tilkynningu um
staðfestingu samnings eða hugsanlega tillögu um breytingu|
á honum innan eins mánaðar frá undirskrift hans undir
samninginn". Að þessum tíma loknum sé óheimilt að breyta|
samningi.
Fulltrúar fjármálaráðherra hafa hafnað slíkri tak-
mörkun.
Stjóm BSRB hefur falið Guðmundi Ingva Sigurðssyni,
lögfræðingi bandalagsins að höfða mál fyrir bæjarþingi
Reykjavxkur vegna þessa máls.
4. Mál varðandi túlkun á fylgiskjali nr. 4 með aðalkjara-
samningi BSRB og ríkisins. "Um vinnutxma við skóla-
stofnanir, sem ekki starfa allt árið".
Málið snýst um það hvort að aðstoðarmenn kennara yrðu
að una níu mánaða ráðningu eða hvort þeir féllu undir
nefnt fylgiskjal og vinnufyrirkomulag miðaðist við 12
mánuði.
Full viðurkenning náðist fram á sjónarmiðum SFR.
5. Mál er varöar grein 1.1.11 í aðalkjarasamningi, en
skv. þeirri grein er heimilt að taka til greina
starfstíma hjá öðrum vinnuveitendum en því opinbera,
skv. sérstökum reglum, ef um algjörlega hliðstæð störf
er að ræða.
Máliþessu var hafnað og þar með staðfest sú stefna ráðu-
neytis að "hota ekki" þessa heimild í aðalkjarasamningi.
Guðmundi Ingva Sigurðssyni hefur verið falið að sækja
málið fyrir Félagsdómi.
6. Erindi vegna ágreinings um túlkun á grein 1.1.10 um
starfsaldur vegaeftirlitsmanns hjá Vegagerð ríkisins,
og erindi vegna ágreinings um greiðslu launa til mæl-
ingamanns hjá Vegagerð ríkisins. Hvortveggja erindið
samþykkt í samstarfsnefnd.' Framh. á bls. 7
í R-vík og skrifstofu-
stjórum í stjórnarráðinu.
Enn var haldinn fundur
1. júní með trúnaðarmönnum
félagsins. Formaður skýr-
ir þar frá fundi stjómar
BSRB, sem haldinn hafði
verið þennan sama dag
ásamt stjórnum flestra
bandalagsf élaga. Rakti
síðan sögu málsins í
stuttu máli. Benti á nokkra
agnúa, sem félögunum bæri
að varast, hvatti trúnaðar-
menn til að halda málinu
vakandi á vinnustöðunum.
Zóphónías Jónsson, starfs-
maður Vinnumiðlunar taldi
að félögin ættu að reka
mál þetta á algerlega stétt-
arlegum grundvelli, og al-
mennur félagsfundur eigi
að taka ákvörðun um hvað
gera skyldi, og stjórnir
félaganna að taka sínar
ákvarðanir í samræmi við
það.
Samþykkt var einróma
svofelld tillaga:
"Trúnaðarmannafundur
SFR haldinn l.júní 1950
lýsir ánægju sinni yfir
samþykkt þeirri, sem
stjómir BSRB og starfs-
mannafélaganna gerðu í
dag um að fylgja beri
launalögum og fyrri reglu-
gerð um vinnutxma o.fl.,
og hvetur félagsmenn
eindregið til þess að fara
eftir þeirri tillögu".
Á^reiningur um leiðir
í malinu kemur fram a
st'i'órnarfundi. ~
Það skeður á stjómar-
fundi 2 dögum síðar,
þegar rætt er um afstöðuna
til lengingar vinnutxmans.
Ritari félagsins, JÓnas
Haralz "la^ði fram ályktun
samþykkta á fundi starfs-
manna fjárhagsráðs þann
2. júní, þar sem því er
lýst yfir, að fundurinn
sé andvígur því, að ekki
sé unnið samkv. ákvæðum
hinnar nýju reglugerðar,
enda þótt hún sé án
stuðnings í lögum.
Telur fundurinn að
starfsmönnum beri að leita
réttar síns fyrir dóm-
stólum. Þrátt fyrir þetta
muni fundarmenn taka til