Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 29.09.1978, Blaðsíða 8

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 29.09.1978, Blaðsíða 8
8 FÉLAGSTÍÐINDI Uppeldis- fulltrúar fá hækkun Kjaranefnd hefur úrskurð- að að störfum "uppeldis- fulltrúa" skuli raðað í níunda launaflokk, og að byrjendur í starfi skuli taka laun samkvæmt átt- unda launaflokki fyrstu tvö ár starfstímans. Hér er um verulega hækk- un að ræða, þ.e. úr sjötta launaflokki í 8-9 launafl. Starfsmannafélag ríkis- stofnana hefur hins vegar af gefnu tilefni varpað fram þeirri spurningu til kjaranefndar, hvort úr- skurður þessi eigi ekki að ná til allra uppeldisfull- trúa innan vébanda félags- ins. Enn sem komið er hefur þessi úrskurður að- eins verið viðurkenndur gagnvart Upptökuheimilunum 1 Kópavogi og Breiðuvík, en uppeldisfulltrúar starfa einnig við Öskjuhlíðarskóla, HLíðaskóla og í Kjarvals- húsi. Tekist hefur, eftir langt samningaþóf, að ná samkomulagi um röðun húsvarða eða umsjónar- manna húseigna í launa- flokka, og gildir þessi nýja röðun frá 1. jan. síðastliðnum. Samkvæmt nýja samkomu- laginu eru umsjónarmenn I í B 6, umsjónarmenn II í B 7, umsjónaxmenn III í B 9 og umsjónarmenn IV í B 12. Margir húsverðir hafa fengið launaflokkshækkun vegna samkomulagsins. Leikhúsferðir í Iðno í vetur — Miðaverðið verður aðeins 1600 krónur Samið hefur verið um leikhúsferðir x Iðnó í vetur með svipuðum hætti og var í fyrra, og væntanlega verður einnig um sérstakar afsláttarferðir að ræða hjá Þjóðleikhúsinu. Þegar tillit hefur verið tekið til afsláttarins verður miðaverð í Iðnó 1600 krónur, en 1700 ]<rónur í Þjóðleikhúsinu. Afslátturinn í Iðnó er 20%, en 15% í Þjóðleikhúsinu. Að því er Þjóðleikhúsið varðar munu einstakar stofnanir geta fengið afslátt á hvaða sýningu sem er ef pantaxSir eru 40 miðar eða fleiri. Samkomulagið við Iðnó. Samkomulag það, sem gert héfur verið við Leikfélag Reykja- víkur, er í meginatriðum hið sama og gilti s.1. vetur. Félagsmenn 1 SFR fá afslátt á 12. sýningu hvers leikrits og verður stefnt að því að hún beri upp á föstudögum. Miðaverð fyrir félagsmenn verður 1600 krónur, og er það fast verð fyrir allan veturinn. Miðapöntunum þarf að skila niður í Iðnó ekki síðar en viku fyrir sýningardag, þ.e. föstudeginum áður. Æskileg- ast er að frá hverri stofnun komi heildarpöntun um fjölda miða, sem svo verði sóttir í einu lagi. Hins vegar er einnig heimilt að hver sæki sinn miða. Sækja verður miðana ekki síðar en þremur dögum fyrir sýningardag, þ.e. á þriðjudegi í síðasta lagi. Athygli skal vakin á því, að Iðnó tekur mun færri í sæti en Þjóðleikhúsið, og getur því farið svo, að allir, sem vilja, komist ekki á 12. sýningu einhvers leikritanna. Þegar þannig stendur á verða það þeir, sem fyrst panta miða sína, sem komast á 12. sýninguna. Leikverk í Iðnó í vetur. Verkefni vetrarins í Iðnó verða sem hér segir: 1. OG SVO KOM SÖLIN UPP, nýtt íslenskt leikrit eftir Jónas Jónasson. í leiknum berst ofdrykkjumaður við hugaróra, minningar og beiskan raunveruleikann. Frum- sýning var um miðjan september 1978. 2. LÍFSHÚSKI (Deathtraþ) eftir bandaríska höfundinn Ira Levin. Margslungið leikrit um glæpamál, sem frumsýnt var á Broadway í New York fyrir skörrmu, og verúur sýn- ing L.R. hin fyrsta utan Bandaríkjanna. Sjónleikur- inn er þrunginn spennu frá upphafi til enda. Þýðandi er Tómas Zoega. Frumsýning um 10. nóvember 1978. GEGGJAÐA KONAN í PARÍS (La Folle de Chaillot) eftir Jean Giraudoux, sem er meðal sígildra leikritahöfunda Frakka á 20. öldinni. Framhald á bls. 7 lwvwv> AAÍWW ELISA8ET GUDJOHNSEN SöRLASKJOL 6 107 REYKJAVIK

x

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana
https://timarit.is/publication/1544

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.