Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 29.09.1978, Blaðsíða 5

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 29.09.1978, Blaðsíða 5
FÉLAGSTÍÐINDI 5 Svipmyndir frá fundi sjukraliða 21. september s.l. "Sjúkraliðum skal skipa í launaflokka 6., 7., 8. og 9. samkvænt áunnum stigum fyrir störf sem sjúkraliði. Sjúkra- liði sem hefur færri en 12 stig skal taka laun skv. 6.lfl., stig á bilinu 12-24 svara til 7. lfl., 24-36 stig svara til 8. lfl., en 36 stig og fleiri svara til 9. lfl. Stig ávinnast fyrir störf í hálfu starfi eða meira í 3 mán. minnst; sbr. 1.1.9 og 1.1.10 í aðalkjarasamningi og fást 4 stig fyrir 12 mánaða starf á almennum deildum en 6 stig fyrir 12 mánaða starf á sérdeildum. Samningsaðilar eru sammála um að sérdeildir í þessum samanburði teljist þessar: Skurðstofa Landsspítalans, vökudeild fæðingar- deildar, gjörgæsludeild, deild fyrir gerfinýra, barnageð- deild Dalbraut, deildir 1,3,7,9 og 11 á Kleppi. Skipan þessi er talin fullnægjandi lausn á lokamálsgrein 4. liðar 2. kafla kjaranefndarúrskurðar um 4 ára reglu". Framhald á bls.6 kunnugt er að stjom BSRB mun ekki styðja óhlýðnis- leiðina, er ég fylgjandi því að lagaleiðin sé farin. 1. varamaður í stjórn: (Ólafur Bjarnason). Með tilliti til þess, að nauð- synlegt er að halda uppi virðingu féar'ssamtakanna, tel ég þriðju leiðina rétta. Ritari: (JÓnas Haralz). Ég tel, að ekki komi til greina, að samtökin beiti sér fyrir ólöglegum að- gerðum, ekki síst þar sem þau skírskota til þess, að framið hafi verið réttar- brot gagnvart þeim. Ég er því fylgjandi fyrstu leiðinni, en tel þó að áður beri að reyna aðra leiðina". Gunnar Eydal: LAGA KRÓKUR Veikindi barna starfsmanna. Veikindaforföll geta aðeins náð til starfs- mannsins sjálfs. Það myndi þó einnig teljast veikindaforföll, ef t.d. smitnasmur sjúkdómur á heimili hans veldur því að hann verður að vera í sóttkví. En almennt eru> ekki viðurkennd veikindaforföll ef starfsmaður mætir ekki til vinnu vegna veikinda annarra á heimilinu. Það veitir t.d. einstæðu for- eldri ekki rétt til veikindaleyfis frá starfi þótt börnin veikist. Að sjálfsögðu væri þó heim- ilt að semja um slíkt í kj arasamningum. Auðvitað er þetta í framkvæmd mis- munandi eftir vinnustöðum og þrátt fyrir að starfs- menn eigi ekki þennan rétt geta venjur um annað hafa skapast á vinnu- staðnum. Eins er ljóst að fjöldi atvinnurekenda notfærir sér ekki þrengstu túlkun á kjarasamningum og reglum sem gilda á vinnumarkaðinum.

x

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana
https://timarit.is/publication/1544

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.