Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 15.03.1991, Side 3
Félagstíðindi SFR
3
Fundargerð trúnaðar-
mannafundar
Fundurinn var haldinn á
Grettisgötu 89 þann 20.
febrúar 1991 og hófst klukk-
an 13.00. Þetta gerðist.
1. Sigríður Kristinsdóttir
setti fundinn en síðan las
fundarstjóri, Olafur Þ. Ragn-
arsson, upp dagskrá fundarins
og síðan var gengið til dag-
skrár. Páll H. Einarsson var
fundarritari.
2. Áfangaskýrsla um
framleiðslu sauðfjárafurða.
Annar frummælenda Ög-
rnundur Jónasson, formaður
BSRB, var forfallaður en hinn
frummælandinn, Björn Arn-
órsson, hafði framsögu. Hann
rakti það að hlutverk nefndar-
manna hefði verið að kanna
möguleika á aðhaldi í rekstri í
búvöruframleiðslu, bæði
bænda og milliliða. Hann taldi
núverandi skipulag sauðfjár-
búskapar vera úrelt en tak-
markið vera að nota spamað-
inn til uppbyggingar. Utflutn-
ingur á kjöti vegna kjötfjalls-
ins er örþrifaráð. Tillaga um
óheftan innflutning mundi
valda hruni. Þess vegna var
bent á niðurskurð lil styrking-
ar atvinnugreinarinnar. Nauta-
kjöt, svínakjöt og kjúklinga-
kjöt hefur lækkað um 20% á
síðustu 10 árum en þar af leið-
andi hefur lambakjötsneysla
minnkað. Einnig má búast við
auknum útflutningi á lamba-
kjöti frá Nýja-Sjálandi á næst-
unni.
Helstu markmið í áfangaá-
liti sjömannanefndar eru að
aðlaga sauðfjárframleiðsluna
og neysluna á árunum fram til
1997. Tryggja lægra vöruverð
án minni gæða. Lækka rfkisút-
gjöld til landbúnaðarins.
Reiknað er með að sauðfjár-
bændum fækki vegna þessara
aðgerða en nefndin taldi sig
ekki eiga að fjalla um byggða-
vandann. Markaðstengja þarf
framleiðsluna og auka sparn-
að, t.d. með því að færa fram-
leiðsluna á færri býli og auka
nýtingu á vinnutækjum og
mannafla. Veitt verði leyfi til
að kaupa fullvirðisrétt. Ekki er
rniðað við að ríkisútgjöld
lækki í ár vegna þessa en frá
og með næsta ári munu þau
taka að lækka. Gert er ráð fyr-
ir 20% verðlækkun kindakjöts
á næstu 5-6 árum.
Nú hófust umræður um
skýrslu sjömannanefndar.
Fyrstur tók til máls Ragnar
Stefánsson og benti á að með
aukinni sölu á erlendum mark-
aði mætti bæta stöðu kinda-
kjötsframleiðslunnar. Um er
að ræða mjög góða vöru sem
er dýr erlendis. Hann taldi að
finna yrði framleiðslu sem
hentaði byggð í landinu.
Guðmundur Ingi Waage
spurði: Hvers vegna er kinda-
kjötið dýrara en svínakjötið?
Bjöm svaraði því þannig
að það taki lengri tírna að
framleiða kindakjötið og
einnig væri 30-40% meiri fjár-
festing í sauðfjárframleiðsl-
unni en nauðsynlegt væri.
Jóna Málfríður Sigurðar-
dóttir velti upp þeirri spum-
ingu hvað bændur fengju í
raun og veru fyrir sinn hlut af
smásöluverðinu og taldi að
þeirra hlutur væri ekki of stór.
Lauk þar með umræðum um
þennan lið.
3. Ályktanir fyrir
aðalfund SFR.
(Alyktanirnar eins og þœr
voru samþykktar á trúnaðar-
mannafundinum eru á bls. 2
en hér verður greint frá um-
rœðum.)
Marías Guðmundsson
gerði grein fyrir kjaramálatil-
lögum ályktunarnefndar.
Hann taldi að nú lægi á að
móta stefnu félagsins í kjara-
málurn. Urn ályktunina urðu
fjörugar umræður og tóku
þessir til máls: Ema Kristjáns-
dóttir, Hjörleifur Olafsson,
Jens Kristinsson, Guðmundur
Ingi Waage, Jóna Málfríður
Sigurðardóttir, Ragnar Stef-
ánsson, Erna Kristjánsdóttir,
Anna Atladóttir, Einar Olafs-
son, Skúli B. Árnason, Jónína
Þ. Arndal og Karl Stefánsson.
Var síðan gert kaffihlé.
Að hléi loknu kynnti Skúli
B. Ámason tillögu um at-
vinnumál og Anna Atladóttir
ályktun um heilbrigðismál og
urðu engar umræður um þær
tillögur.
Marías Guðmundsson
gerði grein fyrir tillögu um
jafnréttismál og lífeyrissjóðs-
mál. Jafnframt lagði hann til
að ákvörðun um að reglur um
að félagsgjald skuli óbreytt
yrði frestað til aðalfundar.
Hjörleifur Olafsson vildi
að lífeyrisgreiðslur yrðu mið-
aðar við öll greidd laun og var
eindregið á móti hækkun fé-
lagsgjalda. Hann sagðist vera
á móti fulltrúalýðræði því að
meiningu sumra landsbyggð-
armanna mundi vægi lands-
byggðarinnar þá minnka.
Einnig varpaði hann því fram
hvort þörf væri á SFR þar sem
félögin hefðu orðið sjálfstæð-
an samningsrétt og hvort
BSRB gæti ekki tekið við
hlutverki SFR.
Marías tók aftur til máls
og síðan Guðmundur Ingi
Waage sem vildi ekki að líf-
eyrisgreiðslur væru miðaðar
við heildarlaun.
Tillögur ályktunamefndar
voru síðan allar samþykktar
með smávægilegum breyting-
um.
4. Næst voru kynntar til-
lögur til lagabreytinga sem
lagðar verða fyrir aðalfund.
Árni Stefán Jónsson fram-
kvæmdastjóri SFR gerði grein
fyrir þeim. (Þessar tillögur
voni kynntar í síðasta hefti
Félagstíðinda - febrúarblað-
inu.)
5. Kosning fulltrúa á þing
BSRB. I uppstillingamefnd
sátu Eiríkur Helgason, Ingi-
björg Oskarsdóttir, Jens Andr-
ésson, Kolbrún Gestsdóttir og
Trausti Hermannsson. Jens
gerði grein fyrir tillögu upp-
stillingarnefndar (sjá bls. 4 og
5) en SFR á 49 fulltrúa á þingi
BSRB.
Marta Sigurðardóttir taldi
tillöguna vel unna enda væri
starf uppstillingamefndar
vandasamt. Hún kvaðst samt
sakna nokkurra nafna og
stakka upp á Hjörleifi Olafs-
syni, Jónínu Amdal, Stefáni
Arngrímssyni og Tómasi Sig-
urðssyni sem aðalmönnum en
Daðey Þóru Olafsdóttur sem
varamanni. Margrét Tómas-
dóttir stakk þá einnig upp á Ó-
lafíu Herborg Jóhannsdóttur
sem aðalfulltrúa. Meðan kosn-
ingin var undirbúin var fyrir
tekinn sjötti liður dagskrárinn-
ar.
6. Önnur mál. Hjörleifur
Ólafsson taldi að opnun fé-
lagsins sem nýja sjómin ætlaði
að beita sér fyrir hefði mistek-
ist. Þegar launamálaráð væri
kallað saman væru aðeins að-
almenn boðaðir en ekki vara-
menn eins og verið hefði.
Ragnar Stefánsson sagði
að það væri við margan vanda
að etja í stóru félagi. Hann
hvatti til þess að hætt yrði að
lesa skýrslur á aðalfundi held-
ur yrði fjallað því meira um
þær.
Sigríður Kristinsdóttir,
formaður SFR. svaraði gagn-
rýni Hjörleifs um launamála-
ráðið með því að stjómin vildi
hafa launamálaráðið sem
virkast. Með því að boða vara-
menn einnig á fundi væri
hætta á að þeir yrðu of þungir í
vöfum. Með aðalfulltrúum
eingöngu yrðu fundirnir virk-
ari þannig að þeir sem mættu
tækju allir þátt í fundarstarf-
inu.
5. Nú fór fram kosning um
fulltrúana á þing BSRB. Urslit
urðu þau að listi uppstillingar-
nefndar um aðal- og varafull-
trúa á þingið var samþykktur
óbreyttur með þorra atkvæða
gegn 12.
Fundi var síðan
slitið kl. 18.30.
Páll H. Einarsson
fundarritari.