Fréttablaðið - 10.04.2021, Side 40
Skóla- og frístundasvið
Réttarholtsskóli – tvö störf
Réttarholtsskóli – deildarstjóri stoðþjónustu
Laus er staða deildarstjóra stoðþjónustu í 100% starfshlutfall frá og með 1. ágúst 2021.
Réttarholtsskóli er í Bústaðahverfi í Reykjavík og er unglingaskóli fyrir nemendur í 8. – 10. bekk. Í skólanum erum um 400
nemendur og starfsmenn rúmlega 40. Skólinn hefur á að skipa vel menntuðu og hæfu starfsfólki og er stöðugleiki í starfs-
mannahaldi. Einkunnarorð skólans eru virðing- virkni – vellíðan og áhersla er lögð á að bjóða nemendum upp á nám við hæfi,
fjölbreytt námsval og skólaanda sem einkennist af virðingu, jákvæðni og samvinnu allra sem skólanum tilheyra. Skólinn er í
grónu hverfi og gott samstarf er við foreldra og nærumhverfi.
Réttarholtsskóli – kennari/þroskaþjálfi
Laus er staða kennara eða þroskaþjálfa í 100% starfshlutfall frá og með 1. ágúst 2021
Réttarholtsskóli er í Bústaðahverfi í Reykjavík og er unglingaskóli fyrir nemendur í 8. – 10. bekk. Í skólanum erum um 400
nemendur og starfsmenn rúmlega 40. Skólinn hefur á að skipa vel menntuðu og hæfu starfsfólki og er stöðugleiki í starfs-
mannahaldi. Einkunnarorð skólans eru virðing- virkni – vellíðan og áhersla er lögð á að bjóða nemendum upp á nám við hæfi,
fjölbreytt námsval og skólaanda sem einkennist af virðingu, jákvæðni og samvinnu allra sem skólanum tilheyra. Skólinn er í
grónu hverfi og gott samstarf er við foreldra og nærumhverfi.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Margrét Sigfúsdóttir skólastjóri í s: 553-2720
og í tölvupósti margret.sigfusdottir@rvkskolar.is
Starfshlutfall 100%
Ótímabundin ráðning
Helstu verkefni og ábyrgð
Staðan er ný staða innan skólans og mun deildarstjóri stoð-
þjónustu vera í stjórnendateymi skólans og hafa yfirumsjón
með allri stoðþjónustu í samvinnu við aðra stjórnendur.
Stoðþjónusta skólans heldur utan um almennan stuðning,
skipuleggur sérkennslu nemenda, kennslu nemenda með
annað móðurmál en íslensku og hefur yfirumsjón með deild
fyrir einhverfa nemendur.
• Fagleg umsjón með skipulagningu og stefnumótun stoð-
þjónustu skólans í samstarfi við skólastjóra.
• Fagleg umsjón með gerð einstaklings- og stuðnings-
áætlana nemenda.
• Hefur yfirumsjón með samskiptum og fræðslu/ráðgjöf til
foreldra nemenda í stoðþjónustu.
• Samskipti við foreldra og kennara.
• Veita markvissa kennslufræðilega leiðsögn og endurgjöf
til starfsmanna.
• Vera í inntökuteymi SFS fyrir einhverfudeildir í Reykjavík.
Hæfniskröfur
• Kennaramenntun og leyfisbréf kennara.
• Viðbótarmenntun í sérkennarafræðum æskileg.
• Víðtæk reynsla og þekking á starfsemi grunnskóla.
• Víðtæk reynsla og þekking á hugmyndafræði um skóla
án aðgreiningar.
• Reynsla og þekking á sérkennslu og stuðningi
í grunnskóla.
• Reynsla af þátttöku á þróun skólastarfs og
innleiðingu verkefna.
• Reynsla af stjórnun æskileg.
• Góð íslenskukunnátta.
Helstu verkefni og ábyrgð
Staðan er ný staða innan stoðþjónustu skólans í deild fyrir
einhverfa nemendur sem tekur til starfa næsta skólaár.
• Vinna að uppeldi og menntun barna með sérþarfir þar með
talið að skipuleggja nám í samvinnu við deildarstjóra stoð-
þjónustu og aðra starfsmenn.
• Gerð einstaklings- og stuðningsáætlana nemenda í deild
fyrir einhverfa nemendur.
• Ráðgjöf og stuðningur við annað starfsfólk varðandi
stuðning við nemendur deildarinnar.
• Önnur verkefni í samstarfi við deildarstjóra stoðþjónustu
og aðra stjórnendur.
Hæfniskröfur
• Kennaramenntun og leyfisbréf kennara eða
þroskaþjálfa menntun.
• Reynsla af starfi með einhverfum börnum.
• Reynsla og áhugi á að starfa með unglingum.
• Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
• Faglegur metnaður.
• Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Geislagata 9 Sími 460 1000 www.akureyri.is akureyri@akureyri.is
Hvítt letur
Forstöðumaður
Umhverfismiðstöðvar
Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar
eftir að ráða forstöðumann Umhverfismiðstöðvar hjá
sviðinu.
Helstu verkefni:
• Stjórnun daglegs reksturs Umhverfismiðstöðvar.
• Stýring og samræming verkefna á Umhverfismiðstöð
skv. verkbeiðnum.
• Stýring á skipulagi innkaupa, birgðahaldi og
starfsmannahald.
• Vinna að gerð fjárhags- og starfsáætlana fyrir
Umhverfismiðstöð.
• Stefnumótun og þróunarvinna á Umhverfismiðstöð.
• Samstarf og samskipti við hagsmunaaðila.
Menntunar- og/eða hæfniskröfur:
• Gerð er krafa um háskólamenntun (BS.) í
byggingartæknifræði, byggingarverkfræði,
viðskiptafræði eða sambærilega menntun sem nýtist
í starfi.
• Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er kostur.
• Þekking og reynsla af verklegum framkvæmdum sem
nýtist í starfi.
• Góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg.
• Þekking á One System skjalakerfi og SAP
bókhaldskerfi er kostur.
• Hæfni til skipulagningar, stýringu verkefna,
nýsköpunar og innleiðingar hugmynda og vinnubragða.
• Góð íslensku- og enskukunnátta.
• Færni í mannlegum samskiptum og samstarfsvilji.
• Sveigjanleiki, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott
orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og
utan hans samrýmist starfinu.
Nánari upplýsingar um starfið er að finna á heimasíðu
Akureyrarbæjar, www.akureyri.is þar sem sótt er um
rafrænt.
Umsóknarfrestur er til og með 20. apríl 2021
Starf umsjónaraðila með
vinnuskólanum í Kjósinni
Kjósarhreppur auglýsir eftir einstaklingi, 25 ára eða eldri,
til að hafa verkstjórn með unglingavinnu hreppsins í
sumar ásamt ýmsum öðrum tilfallandi verkefnum.
Starfið fellst í m.a. að skipuleggja verkefnin, annast verk-
stjórn, kennslu og vinnuuppeldi ásamt því að vinna með
hópnum.
Umsækjandi þarf að hafa nokkra reynslu af útivinnu og
vera vel skipulagður. Reynsla af kennslu og leiðbeiningum
með ungu fólki er góður kostur, lipurð í samskiptum og
samstarfi.
Í samræmi við æskulýðslög nr. 70/2007 er gerð krafa um
heimild til að afla upplýsinga úr sakaskrá.
Ráðningartíminn er frá 1. júní til 31. júlí.
Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2021.
Nánari upplýsingar veitir Karl Magnús Kristjánsson í síma
566 7100. Umsókn skal skila rafrænt inná www.kjos.is
ásamt ferilskrá og kynningarbréfi sem greinir frá reynslu,
menntun og fyrri störfum ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í
starfið. Ráðið er í öll störf óháð kyni.
Öllum umsóknum verður svarað.
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is