Fréttablaðið - 01.05.2021, Side 2

Fréttablaðið - 01.05.2021, Side 2
Pepsi Max deildin rúllar af stað Leikmenn ÍA og Vals standa frammi fyrir áhorfendastúkunni á Origo-vellinum að Hlíðarenda í opnunarleik Pepsi Max deildarinnar í knattspyrnu í gær. Áhorfendur voru leyfðir en í ljósi fjöldatakmarkana voru einungis um 200 miðar í boði og var áhorfendum skipt í hólf. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR FERÐAÞJÓNUSTA „Við göngum út frá því að gos haldi þarna áfram og að uppbygging verði í samræmi við það,“ segir Skarphéðinn Berg Stein- arsson ferðamálastjóri og formaður starfshóps um uppbyggingu við eld- stöðvarnar í Geldingadölum. „Við gerum ráð fyrir því að þetta verði talsvert aðdráttaraf l fyrir ferðamenn þegar þeir byrja að tín- ast til landsins,“ segir Skarphéðinn. Starfshópurinn skilaði tillögum sínum í gærkvöldi. Horft mun til þess að framkvæmdasjóður ferða- mannastaða taki þátt í einhverjum kostnaði. „En þetta er náttúrlega land í einkaeigu og á forræði land- eigenda og þeir hyggjast fara í fram- kvæmdir sjálfir,“ segir Skarphéðinn. Gera þurfi leiðina að gosstaðnum greiðfærari. Tillögur hópsins snúa einnig að vöktun svæðisins til lengri tíma litið. Ekki sé hægt að gera ráð fyrir að björgunarsveitar- menn verði til taks til frambúðar. Á meðan gýs séu viðbragðsaðilar þó í lykilhlutverki.“ Nánar er rætt við Skarphéðin á frettabladid.is. – þsh Reikna með að gjósi lengi Starfshópur vill greiða leið göngufólks að gosinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK DÓMSMÁL Aðalmeðferð fór fram í nýliðinni viku í máli gegn Marek Moszczynski, sem ákærður er fyrir manndráp, bruna og tilraun til manndráps með íkveikju á Bræðra- borgarstíg 1. Í vitnisburði sérfræðinga og íbúa kom fram að brunavörnum var verulega ábótavant; enginn reyk- skynjari var í húsinu og varð því enginn var við eldinn fyrr en það var orðið allt of seint. Í skýrslu Húsnæðis- og mann- virkjastofnunar (HMS) um elds- voðann, segir að í húsinu haf i hvorki verið brunahólfandi veggir né brunahólfandi hurðir. Einn íbúanna, sem hlaut alvarleg brunasár og þurfti húðígræðslu á hendur og bak, neyddist til að hlaupa í gegnum eldinn vegna þess að glugginn í herbergi hans var allt of lítill. Kona lést á innan við mínútu eftir að hafa fallið rúmlega sjö metra út um gluggann á þriðju hæð og skollið utan í ruslagám. „Í f lestum tilfellum voru ekki nein björgunarop til staðar, ein- ungis lítil opnanleg fög í gluggum. Það eitt og sér hafði mjög neikvæð áhrif óháð því að ekki hafi verið fellistigar, svalir eða annar bún- aður til björgunar. Björgunarop hefðu mögulega bjargað mannslífum í þessu til- felli,“ segir í skýrslu HMS. Lögmaðurinn hefur krafist þess að eignir eigandans verði kyrrsett- ar til tryggingar fullnustu væntan- legra bótakrafna umbjóðenda sinna. Málið verður rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í maí. „Ef dómurinn telur að skilyrði séu ekki uppfyllt um að kyrrsetja eigur, þá munu umbjóðendur mínir skoða að höfða sjálfstætt skaðabótamál á hendur honum,“ segir Guðbrandur Jóhannesson, lögmaður aðstandenda þeirra sem létust í brunanum. Málið yrði fordæmisgefandi en hingað til hefur gengið illa að draga eigendur til ábyrgðar vegna vankanta á lögbundnum bruna- vörnum. Guðbrandur segir mikilvægt að ábyrgð húseigenda og skyldur þeirra varðandi brunavarnir séu skýrðar nánar með atbeina dóm- stóla. ingunn@frettabladidl.is Vilja draga eiganda til ábyrgðar vegna bruna Fyrrverandi íbúar og aðstandendur þeirra sem létust á Bræðraborgarstíg hyggjast draga húseigandann til ábyrgðar. Lögmaður þeirra segir að munn- legur málflutningur fari fram í maí í kyrrsetningarmáli gegn eigandanum. Í flestum tilfellum voru ekki nein björgunarop til staðar, einungis lítil opnanleg fög í gluggum. Það eitt og sér hafði mjög neikvæð áhrif. Guðbrandur Jó- hannesson, lög- maður aðstand- enda þeirra sem létust í brunanum á Bræðraborgar- stíg Þrír létust í eldsvoðanum á Bræðraborgarstíg 1. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI SKÁK Íslandsmótinu í skák lauk í gær og stóð Hjörvar Steinn Grétars- son uppi sem Íslandsmeistari. Þetta er í fyrsta skipti sem Hjörv- ar hampar titlinum. Hann hefur verið stigahæsti skákmaður Íslands undanfarin ár. „Þetta er búin að vera ansi erfið fæðing,“ segir Hjörvar í samtali við Fréttablaðið. „Ef við værum að tala saman fyrir tíu árum hefði ég verið hæstánægður en nú er mér fyrst og fremst létt.“ Hjörvar vann Íslandsbikarinn í skák 14. mars og tryggði sér þátt- tökurétt á Heimsbikarmótinu í Sotsjí í Rússlandi. Þó ekki sé búið að fastsetja hvenær það fari fram segist hann hlakka til. „Ég ætla svo sem ekkert að breyta neinu,“ segir Hjörvar aðspurður um undirbúninginn. „Ég sinni skákinni gríðarlega mikið og það hefur núna skilað sér með tveimur stórum sigrum með stuttu millibili. Núna er ég fyrst og fremst glaður að hafa hampað titlinum sem hefur háð mér aðeins. Það er ekki nóg að vera bestur á blaði.“ – atv Hjörvar er Íslandsmeistari Hjörvar Steinn Grétarsson 1 . M A Í 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.