Fréttablaðið - 01.05.2021, Side 10
arionbanki.is Þægilegri bankaþjónusta Arion banka
Nú eru fyrstu mánaðamótin eftir að við
innleiddum nýtt innlána- og greiðslukerfi. Við
munum því hafa opið í þjónustuverinu okkar
þessa helgi og getum aðstoðað þig í síma
444 7000 eða á netspjallinu á arionbanki.is
laugardag og sunnudag kl. 10–16.
Þjónustuverið er
opið kl. 10–16 um
þessa helgi
SUÐUR-AFRÍK A Drottning Zulu-
manna í Suður-Afríku, Shiyiwe
Mantfombi Dlamini Zulu, er látin
65 ára að aldri, einungis nokkrum
vikum eftir að hún tók við völdum.
BBC greinir frá.
Dlamini Zulu var ein sex eigin-
kvenna Zwelithini konungs og tók
hún við völdum eftir að hann lést
þann 12. mars síðastliðinn, þá 72
ára gamall. Talsmenn drottning-
arinnar segja andlát hennar hafa
komið mjög á óvart.
Líklegt þykir að elsti sonur Dlam-
ini Zulu taki við völdum eftir móður
sína. – bdj
Drottning lést
eftir valdatöku
ÍSRAEL Benjamin Netanjahú, forseti
Ísraels, hefur heitið því að láta rann-
saka hvað olli því að áhorfenda-
pallur gaf sig á fjölmennri trúarhá-
tíð í þorpinu Meron í norðurhluta
landsins aðfaranótt föstudags. Þetta
kemur fram á vef BBC.
Að minnsta kosti 45 manns létu
lífið og á annað hundrað eru slösuð
eftir að pallurinn hrundi. Leyfi var
fyrir 30 þúsund manns á hátíðinni
en þangað mættu allt að 90 þúsund
manns. – bdj
Netanjahú
lofar rannsókn
Dlamini Zulu var 65 ára gömul.
SVÍÞJÓÐ Maður í vesturhluta Sví-
þjóðar rakst óvænt á forngripi sem
taldir eru vera frá bronsöldinni. Á
meðal munanna sem fundust voru
hálsmen, armbönd og nælur, um
fimmtíu talsins. Gripirnir eru taldir
vera um 2.500 ára gamlir.
Thomas Karlsson sem fann fjár-
sjóðinn er kortagerðarmaður og
var að undirbúa ratleik í skóginum
þegar hann kom auga á eitthvað
sem glampaði á jörðinni. Talið er
að gripunum hafi verið komið fyrir
sem fórn.
Að sögn sænskra fornleifafræð-
inga er sjaldgæft að finna slíka
forngripi í skógum, en ættbálkar á
svæðinu skildu slíkar fórnir venju-
lega eftir í ám eða votlendi.
Sænsk lög krefjast þess að hver
sem finnur fornleifar á borð við
þessar láti yfirvöld vita þar sem
litið er á þær sem eign ríkisins sem
ákveði svo hvort viðkomandi skuli fá
umbun fyrir. Karlsson segir að þótt
þau yrðu vel þegin þá skipti verðlaun
hann ekki miklu máli.
„Það eru engar skriflegar heim-
ildir til um þessa menningu frá
þessum tíma,“ segir Bjarni F. Einars-
son, fornleifafræðingur á Fornleifa-
fræðistofunni, um fundinn. „Það
er oft miðað við að bronsöldin hafi
byrjað um 1500 fyrir Krist og að
henni hafi lokið um 500 fyrir Krist
svo þessir munir eru frá síðari hluta
tímabilsins.“
Fornleifafundir á borð við þenn-
an eru sjaldgæfir en sambærilegur
fundur átti sér stað skömmu fyrir
1970 en var þó minni í sniðum. Að
sögn Bjarna eru gripir frá tíma-
bilinu mjög einkennandi og erfitt
að fara villur vegar um að munirnir
séu frá bronsöld.
„Þetta var tímabil stórhöfðingja
sem réðu yfir misstórum landsvæð-
um og nýttu sér dýrgripi á borð við
þessa til að sýna fram á veldi sitt,“
segir hann. „Þarna er ef til vill um að
ræða fórn frá höfðingja til að sýna
fram á ríkidæmi sitt og vald eða þá
til að þóknast guðunum.“
Bjarni segir að vafalítið muni
fundurinn veita aukna innsýn í
bronsaldarmenningu í Svíþjóð
þótt rannsóknir á gripunum séu
enn á frumstigi. Hann segir einnig
að óvenjuleg staðsetning fundarins
veki upp möguleikann á að forn-
leifar sé að finna á svæðum þar í
kring þar sem áður var talið að væru
engar frá þessum tíma.
„Það voru auðvitað ekki forn-
leifafræðingar sem fundu þessa
muni heldur vökull áhugamaður
sem átti leið hjá,“ segir Bjarni sem
hefur sjálfur grafið á svæðinu. „Í
skráningarvinnu er talað um hvít
svæði þar sem ólíklegt þykir að
minjar finnist en þessi fundur segir
okkur að við þurfum alltaf að vera
vakandi.“ arnartomas@frettabladid.is
Óvæntur forngripafundur
kortagerðarmanns í Svíþjóð
Um fimmtíu forngripir í góðu ástandi fundust óvænt í skógi í vesturhluta Svíþjóðar. Fundurinn er einn
sá stærsti sinnar tegundar en sérfræðingar segja sjaldgæft að slíkir munir finnist í skógum. Fornleifa-
fræðingur segir að fundurinn gæti veitt aukna innsýn í bronsaldarmenningu á Norðurlöndunum.
Hluti af bronsaldargripunum sem fundust. Bjarni segir fundi á borð við þennan sjaldgæfa. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Þessi fundur segir
okkur að við
þurfum alltaf að vera
vakandi.
Bjarni F. Einarsson,
fornleifafræð-
ingur á Fornleifa-
fræðistofunni
INDLAND Í gær létust um 3.500
á Indlandi af völdum COVID-19
og hafa nú þrjátíu þúsund látist á
síðustu tíu dögum. Um 210 þúsund
hafa látist síðan faraldurinn hófst.
Yfirvöld standa nú í ströngu við að
finna nýja staði fyrir líkbrennslur
þar sem útfararþjónustur og lík-
brennslustöðvar halda ekki í við
gríðarlegan fjölda látinna.
Smit eykst enn og voru ný tilfelli
í gær 386.452 talsins en talið er að
þau kunni að vera mun fleiri. Yfir
átján milljónir hafa greinst með
smit í landinu.
Fyrsta sending af neyðarbirgðum
frá Bandaríkjunum barst til Ind-
lands í gær með herf lugvél. Um
borð voru um milljón hraðgrein-
ingarpróf og 100 þúsund andlits-
grímur. Bandaríska ríkisstjórnin
hefur heitið að gefa landinu 15 millj-
ón grímur.
Þó er enn mikill skortur á súr-
efnisbirgðum og sjúkrarýmum víða
um landið. Indverska ríkisstjórnin
hefur sætt vaxandi gagnrýni vegna
viðbragða sinna við faraldrinum
en heilbrigðisráðherra varði ríkis-
stjórnina og sagði að dánartíðni
landsins væri sú lægsta í heimi og
að súrefnisbirgðir væru „ásættan-
legar“. – atv
Líkbrennslur halda ekki í
við mikinn fjölda látinna
Fjöldi látinna af völdum veirunnar vex hratt á Indlandi. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Í gær greindust 386.452
smituð af COVID-19 á
Indlandi.
Benjamin
Netanjahú,
forseti Ísraels
1 . M A Í 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð