Fréttablaðið - 01.05.2021, Side 11
BRETLAND Símanúmer forsætis-
ráðherra Breta, Boris Johnson, var
á veraldarvefnum í 15 ár. Sérfræð-
ingar sem BBC ræddi við sögðu að
auðvelt væri fyrir óprúttna aðila að
nýta sér að vita persónulegt númer
forsætisráðherrans.
Númerið birtist með fréttatil-
kynningu árið 2006 og slúðurmið-
illinn Popbitch vakti athygli á að
númerið væri enn aðgengilegt. Til-
kynningin hefur nú verið fjarlægð
af vefnum.
Símanotkun forsætisráðherrans
hefur verið töluvert á milli tannana
á fólki eftir að BBC birti skilaboð
milli hans og milljarðamærings-
ins James Dyson þar sem Johnson
lofaði að laga skattaumhverfi fyrir
Dyson.
Þá sagði Guardian frá því að krón-
prins Sádi-Arabíu, Mohammed bin
Salman, hefði sent Johnson skila-
boð þegar hann vildi kaupa New-
castle. – bb
Áhyggjur vegna símanúmers Boris Johnson
Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Að lifa eða lifa af?
EITT
SAMFÉLAG
FYRIR ALLA
ertu
ekki að
skilja
okkur
-eftir?
Fátækt?
-nei takk
örorka er
ávísun á
einangrun
1. MAÍ
við
viljum
efndir
Við höfum viðurkennt rétt fatlaðs fólks til sífellt batnandi lífskjara
og að það verði að veruleika án mismununar
(úr samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks SRFF)
Með staðfestingu SRFF hafa stjórnmálamenn skuldbundið sig til
að tryggja þann rétt. Það er löngu kominn tími efnda.
Persónulegt símanúmer
Boris Johnson birtist í
fréttatilkynningu fyrir
fimmtán árum og mun enn
vera aðgengilegt.
Leikskólapláss skortir í borginni.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
REYKJAVÍK Borgarráð Reykjavíkur
ætlar að taka á leigu 100 til 110
einingar af færanlegu húsnæði til
að geta boðið ný leikskólapláss á
næsta skólaári.
Þá var óskað heimildar á borgar-
ráðsfundi til að hefja útboðsferli við
tvær fullbúnar leikskólarútur.
Kostnaðarmat á búnaði er um
250 milljónir. Áætlaður kostnaður
vegna tveggja fullbúinna leikskóla-
rúta er um 120 milljónir.
Sjálfstæðismenn bókuðu að sam-
kvæmt síðustu birtu tölum væru
737 börn, 12 mánaða og eldri á bið-
lista eftir leikskólaplássi í borginni.
„Þetta ástand er óviðunandi og
hefur því miður verið viðvarandi
um árabil. Það er mikilvægt að þær
lausnir sem hér eru kynntar mæti
þessari miklu þörf, verði útfærðar
með hraði og tryggi bætta þjónustu
við fjölskyldur í borginni,“ segir í
bókuninni. – bb
Leigja einingar
og kaupa rútur
AKRANES Þórdís Kolbrún Reykfjörð
Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og
nýsköpunarráðherra Íslands, ætlar
að hoppa til góðs í sjóinn í dag.
Viðburðurinn Stokkið f yrir
Svenna er áheitasöfnun fyrir Svein-
björn Rey sem lenti í alvarlegu slysi í
fyrra og er það árgangur ‘71 á Akra-
nesi sem stendur fyrir viðburð-
inum.
Fyrir utan Þórdísi ætla Sævar
Freyr Þráinsson bæjarstjóri, Gísli
Einarsson sjónvarpsmaður, Theo-
dór Freyr Hervarsson veðurfræð-
ingur, Bjarnheiður Hallsdóttir, for-
maður Samtaka ferðaþjónustunnar,
og nokkrir bæjarfulltrúar að láta sig
vaða út í sjó.
Tilgangurinn er að safna áheit-
um til kaupa á sérstöku raf hjóli
fyrir Sveinbjörn. Draumurinn er,
samkvæmt tilkynningu, að fá 71
stökkvara til að stökkva í sjóinn af
smábátabryggjusvæðinu á Akra-
nesi. – bb
Þórdís Kolbrún
hoppar í sjóinn
Þórdís Kolbrún
Reykfjörð Gylfa-
dóttir
SJÁVARÚTVEGUR Rósa Guðmunds-
dóttir, framleiðslustjóri Guðmund-
ar Runólfssonar hf., er eina konan í
stjórn Samtaka fyrirtækja í sjávar-
útvegi. Alls var 19 manna stjórn
kosin, þar af 18 karlar.
Ólaf u r Mar teinsson, f ram-
kvæmdastjóri Ramma hf., var
endurkjörinn formaður SFS á aðal-
fundi sem haldinn var í gær. Hann
var einn í framboði. – bb
Ein í nítján
manna stjórn
Sagt er að samkvæmt
síðasta yfirliti séu 737 börn
á biðlista eftir leikskóla-
plássi í Reykjavík.
F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11L A U G A R D A G U R 1 . M A Í 2 0 2 1