Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.05.2021, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 01.05.2021, Qupperneq 16
Gunnar ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir Þessarar dellu hefur reyndar orðið vart áður í öðrum birtingar- myndum en blessunarlega ekki komist í burðarliðinn. Jón Þórisson jon@frettabladid.is Einhver sú alfurðulegasta hugmynd sem skotið hefur upp kollinum nýverið er sú að vernda þurfi sérstaklega opinbera starfs-menn fyrir afleiðingum gerða sinna.Þessarar dellu hefur reyndar orðið vart áður í öðrum birtingarmyndum en blessunarlega ekki komist í burðarliðinn. Nokkuð kemur á óvart að sá sem kveikir umræðuna nú sé seðlabankastjórinn. Orð hans og æði fram til þessa í starfi bankastjóra hafa borið merki skynsemi og yfir- vegunar. Í þessu máli kveður við annan tón. Málið er sprottið úr farvegi máls bankans gegn Samherja þar sem fyrirtækið freistaði þess að láta reyna á ábyrgð þeirra starfsmanna bankans sem hrundu málinu af stað innan hans. Það mál er út af fyrir sig ekki frekar til umræðu hér en síðasta vending í því var að lögreglustjórinn á Vestfjörðum vísaði kæru fyrirtækisins á hendur fimm starfsmönnum bankans frá nýlega. Það er við þau tímamót sem seðlabankastjórinn kallar eftir skýrari vernd opinberra starfsmanna í lögum og hefur Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tekið varlega undir og sagt það þurfa ítarlega skoðun. Rétt er að gera grein fyrir því að opinberir starfs- menn njóta nú þegar talsverðrar verndar í lögum, umfram aðra á vinnumarkaði. Til dæmis er í almennum hegningarlögum sérstakt verndarákvæði í kaflanum um brot gegn valdstjórninni sem segir að hver sá sem ræðst með of beldi eða hótunum um það á opinberan starfsmann skuli sæta fangelsi allt að sex árum. Fyrir nú utan atvinnuverndina sem þeir njóta. Yfirleitt er þannig á litið að menn séu ábyrgir gerða sinna nema fyrir liggi sérstakar ástæður sem leiða eiga til annars. Opinberum starfsmönnum er falið mikið vald og það getur reynst borgurunum bæði kostnaðarsamt og þungbært að rétta sinn hlut gagn- vart ofríki og ranglæti hins opinbera. Í marsmánuði árið 2013 var gefin út ákæra á hendur fjórum mönnum í svonefndu Aserta-máli og þeim gefið að sök að hafa brotið gegn reglum um gjaldeyris- mál. Héraðsdómur Reykjaness sýknaði mennina af öllum ákæruliðum í desember 2014. Saksóknari áfrýj- aði málinu til Hæstaréttar en féll frá áfrýjun og var sýkna í héraði því endanleg niðurstaða máls. Undir rannsókn málsins máttu mennirnir þola kyrrsetn- ingu eigna sinna, húsleitir, aflað var gagna úr símum þeirra og við upphaf rannsóknarinnar var haldinn sérstakur blaðamannafundur á vegum lögreglu með fulltrúum Seðlabankans þar sem aðild þeirra var kynnt. Þeir höfðu þá enn ekki verið yfirheyrðir. Gefa má sér að lítil stemning sé fyrir því að víð- tækari friðhelgiákvæði til handa opinberum starfs- mönnum verði leidd í lög, nema ef vera skyldi á meðal þeirra sjálfra. Við viljum að opinberu valdi sé beitt hóflega af hálfu þeirra sem með það fara. Það er engin ástæða til að vernda opinbera starfs- menn sérstaklega fyrir afleiðingum gerða sinna. Nær að það væri á hinn veginn. Á röngunni John Sweeney er einn fremsti rannsóknarblaða-maður Bretlands. Hann hefur fjallað um stríð, pólitík og þjóðarmorð. Hann hefur f lutt fréttir frá Bosníu, Tsjetsjeníu og Írak. Hann hefur lent í loft- árásum, kúlnaregni og upplifað það að serbneskur stuðningsmaður Slobodan Milosevic styngi dínamít- túpu upp í nefið á honum. Verkefnið sem kom honum úr jafnvægi var hins vegar af öðrum meiði. Vorið 2007 hélt Sweeney til Bandaríkjanna til að gera fréttaskýringaþátt um Vísindakirkjuna fyrir Breska ríkisútvarpið BBC. Meðan á gerð þáttarins stóð voru Sweeney og samstarfsfólk hans elt á röndum af skuggalegum einkaspæjurum og starfs- fólki kirkjunnar. Þau voru áreitt, þeim var hótað, á þau var öskrað og um þau var njósnað. „Ég er ekki hræðslugjarn,“ sagði Sweeney nýverið um atvikið sem markaði feril hans. „En þarna var ég hræddur – og ég er enn hræddur.“ Í heila viku stóð Sweeney af sér ógnartilburði háttsettra embættismanna kirkjunnar sem jusu yfir hann svívirðingum á meðan þeir beindu að honum sínum eigin kvikmyndavélum. En á sjöunda degi brást honum æðruleysið. Hann svaraði fyrir sig fullum hálsi og öskraði á ofsækjendur sína. Vísindakirkjan var stofnuð árið 1953 af vísinda- skáldsagnahöfundinum L. Ron Hubbard. Kirkjan boðar að innra með fólki búi andar utan úr geimn- um. Meðlimir safnaðarins greiða kirkjunni fúlgur fjár fyrir að hreinsa sig af neikvæðum tilfinningum. Þótt Vísindakirkjan kalli sig trúarsöfnuð hafa aðrir sagt samtökin eiga meira skylt við alþjóðlegt stór- fyrirtæki. Enn aðrir hafa sakað kirkjuna um að vera hættulegan sértrúarsöfnuð, eða költ. Þegar John Sweeney hóf að búa til fréttaskýr- ingaþátt um Vísindakirkjuna upphófst ekki aðeins skipulegt átak til að hræða hann. Vísindakirkjan fór einnig í herferð til að sverta mannorð hans. Mynd- skeiðið af Sweeney þar sem hann öskrar á kvalara sinn varð uppistaðan í „heimildarmynd“ sem kirkjan framleiddi. Í myndinni voru Sweeney og teymi hans sögð brjóta verklagsreglur BBC. Myndinni var komið til yfirmanna Sweeney og afhent breskum þing- mönnum á DVD-diskum. Meðferð Vísindakirkjunnar á Sweeney var langt frá því að vera handahófskennd. Það var L. Ron Hubbard sjálfur sem gerði það að opinberri stefnu kirkjunnar að ráðast harkalega og með öllum ráðum gegn þeim sem gagnrýndu hana. Fyrir barðinu á stefnunni sem gengur undir heitinu „réttmætt skot- mark“ (e. „fair game“) hafa orðið fyrrverandi með- limir kirkjunnar, blaðamenn, opinberir starfsmenn og stofnanir á borð við skattinn í Bandaríkjunum. Ef aðferðafræðin hljómar kunnuglega er skýr- ingarinnar ekki langt að leita. Á dögunum birti útgerðarfyrirtækið Samherji enn eitt myndbandið til höfuðs Helga Seljan, blaðamanni hjá fréttaskýringa- þættinum Kveik. Samherji hefur sótt hart að gagn- rýnendum sínum í kjölfar fréttaflutnings af athæfi fyrirtækisins í Namibíu. Blaðamenn eru ataðir auri svo að atvinnuöryggi þeirra er ógnað, uppljóstrarar eru hundeltir af skuggalegum einkaspæjurum og óbreytt starfsfólk eftirlitsstofnana lifir í ótta við málshöfðanir. En stjórnunarstefnan „réttmætt skotmark“ er ekki það eina sem Samherji og Vísindakirkjan eiga sam- eiginlegt. Þingmaðurinn Brynjar Níelsson fann sig á dögunum knúinn til að brýna fyrir landsmönnum mikilvægi Samherja sem hann kvað „öflugt fyrir- tæki“ sem gerði „mikil verðmæti úr auðlindum okkar“. Samherji er ekki aðeins útgerðarfyrirtæki. Sam- herji er sértrúarsöfnuður sem, rétt eins og Vísinda- kirkjan, byggir tilvist sína á trú fólks á helberan uppspuna. Samherji segist breyta vatni í vín. En upp- spretta verðmætanna sem Brynjar talar um er ekki milliganga Samherja heldur fiskurinn í sjónum. Það verður ekki fyrr en við látum af trúnni sem ægivaldi költ-leiðtoganna linnir. Brynjar og geimverurnar það byrjar at með fjórum fræjum ENN HOLLARI OLÍA OMEGA 3 & 6 + D - & E-VÍTAMÍN 1 . M A Í 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R16 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.