Fréttablaðið - 01.05.2021, Page 18
ENSKI BOLTINN Manchester United
og Liverpool leiða saman hesta sína
í 34. umferð ensku úrvalsdeildar
innar í knattspyrnu karla á Old
Trafford á morgun. Þetta verður
í þriðja skiptið á árinu sem liðin
etja kappi en þau mættust tvisvar
sinnum á einni viku í lok janúar.
Liðin gerðu þá markalaust jafn
tef li í deildarleik áður en Manch
ester United sló Liverpool úr leik í
enska bikarnum, 32, í fjörugri leik.
Á þeim tímapunkti var Manch
ester United á toppi deildarinnar
á meðan Liverpool var enn í fínum
málum í toppbaráttu deildarinnar.
Margt breyst frá síðasta leik
Síðan þá hefur Manchester United
gefið eftir í titilbaráttunni og eiga
nú nágrannar þeirra, Manchester
City, sigurinn vísan í deildinni.
Sigið hefur hins vegar mun meira á
ógæfuhliðina hjá Liverpool sem er
komið niður í sjötta sæti deildar
innar og er fjórum stigum á eftir
Chelsea sem er í fjórða sæti eins og
sakir standa.
Því gæti verið að Liverpool
verði ekki í Meistaradeild Evrópu
á næstu leiktíð en það gerðist síð
ast tímabilið 2015 til 2016. Jürgen
Klopp hefur ekki mistekist að
koma liðinu áður í Meistaradeild
ina eftir heilt tímabil við stjórn
völinn.
Nú hafa áform um stofnun Ofur
deildar Evrópu verið slegin út af
borðinu í bili hið minnsta, þann
ig að Liverpool þarf að spýta all
hressilega í lófana í síðustu fimm
leikjum sínum ætli félagið ekki að
missa af peningagullkistunni sem
Meistaradeildin er.
Ólíkt gengi hjá liðunum
Liðin koma með mismunandi bragð
í munninum eftir síðustu leiki sína.
Liverpool missti tvö stig í hendur
Newcastle United þegar liðin gerðu
jafntef li í síðustu umferð deildar
innar, á meðan Manchester United
bjó sér til gott veganesti í seinni leik
sínum við Roma í undanúrslitum
Evrópudeildarinnar með 62 sigri á
Old Trafford á fimmtudagskvöldið.
Ole Gunnar Solskjær, knatt
spyrnustjóri Manchester United,
minnti hins vegar á að það hafi
ekki skipt máli í gegnum tíðina hver
staða liðanna í deildinni er þegar að
slag erkifjendanna kemur.
„Þetta hafa ávallt verið leikir sem
beðið er eftir með mikill spennu og
staða liðanna í deildinni hefur hing
að til engu máli skipt hvað úrslitin
varðar. Þannig verður það einnig á
morgun, þetta verður hörkuleikur,“
sagði Solskjær á blaðamannafundi
fyrir leikinn.
Kollegi hans hjá Liverpool, Jür
gen Klopp, tók í sama streng: „Bæði
knattspyrnustjórar og leikmenn
Liverpool gera sér fulla grein fyrir
því hversu mikilvægir þessir leikir
eru.
Burtséð frá rígnum milli liðanna
þá verðum við að vinna til þess að
halda okkur áfram í baráttunni um
að vera með í Evrópukeppni á næsta
tímabili.
Þetta verður leikur sem spilaður
verður af mikilli ákefð og við sáum
í hversu góðu formi Manchester
United er þegar þeir mættu Roma
á fimmtudagskvöldið. Þar sáum
við hvers megnugir þeir eru ef þeir
eru ekki settir undir pressu,“ sagði
Klopp um komandi leik.
Montréttur undir hjá Man.Utd.
Halldór Marteinsson, stuðnings
maður Manchester United, spáir
þægilegum sigri sinna manna.
„Nú styttist í lok tímabilsins í
ensku úrvalsdeildinni. Manchester
United á aðeins fimm leiki eftir í
deildinni og þeirra langstærstur
er þessi leikur gegn Liverpool. Það
er samt dálítið undarlegt að koma
inn í þennan leik því það er eigin
lega ekki að neinu að keppa fyrir
Manch ester United og fókusinn
frekar á Evrópudeildinni.
Eftir frábæran 62 sigur í fyrri
leiknum gegn Roma er liðið í dauða
færi á að komast í úrslitaleikinn og
eiga þar séns á að enda tímabilið
með einn góðan Evróputitil,“ segir
Halldór um komandi leik.
Tveir slæmir kostir í stöðunni
„Liverpool er úr leik á öllum víg
stöðvum en er að rembast við að
reyna að komast í Meistaradeildina
svo það er mikið undir hjá þeim.
Auðvitað er alltaf eitthvað mikið
undir þegar þessi lið mætast, ég segi
það ekki.
Það væri hrikalegt að tapa gegn
þeim og glatað ef Manchester City
tryggir deildartitil af því Liverpool
vinnur Manchester United. Það má
bara ekki gerast.
Það væri líka sætt að koma í veg
fyrir að Liverpool næði Meistara
deildarsæti og helst að þeir næðu
ekki heldur Evrópudeildarsæti
heldur þyrftu að eyða tíma og orku
á næsta tímabili í nýju Evrópu
keppnina, Lengjubikar Evrópu eða
hvað sem hún heitir,“ segir hann
enn fremur, áður en hann skýtur á
að Manchester United fari með 20
sigur af hólmi.
Halldór er á því að Edinson Cav
ani og Bruno Fernandes sjái um
markaskorun Manchester United
í leiknum.
Hinn eitilharði Liverpoolmaður
Kristinn Kjærnested er ekki jafn
sigurviss fyrir hönd sinna manna
og með trega í hjarta spáir hann
heimasigri.
„Nágrannaslagur, en sem fyrr eru
engir áhorfendur. Ég held að það
væri betra fyrir mína menn ef völl
urinn væri stútfullur af áhorfend
um með tilheyrandi svívirðingum
frá stuðningsmönnum Manchester
United.
Það myndi kannski kveikja í
mínum mönnum. Ég held að Manc
hester United muni njóta þess að
spila gegn núverandi Englands
meisturum. Ég hef hins vegar enga
trú á Liverpool í þessum leik," segir
Kristinn svartsýnn.
„Manchester United vann stór
sigur á Roma og þarf ekki að hafa
neinar áhyggjur af seinni leiknum í
Rómarborg og geta sett allt í þennan
leik. Vitandi að ekkert nema sigur
dugir Liverpool munu leikmenn
Manchester United, sem fyrr í
leikjum liðanna, liggja aftarlega og
beita skyndisóknum.
Liver poolmenn mæta dý r
vitlausir inn í leikinn og blása til
sóknar frá fyrstu sekúndu. Eftir
hálftíma verða 10 markskot hjá
mínum mönnum en ekkert þeirra
á markrammann. Marcus Rashford
kemur Manchester United yfir þar
sem Trent AlexanderArnold sefur
á verðinum alltof framarlega á vell
inum.
Bruno Fernandez skorar svo úr
ódýrri vítaspyrnu f ljótlega í síð
ari hálf leik. Digo Jota kemur inn
á í seinni hálf leik en hann mun
minnka muninn þegar korter er
eftir en Manchester United sigla
þessu heim," segir hann í sinni spá
um þróun leiksins.
„Manchester United hefur getað
stillt upp sinni sterkustu vörn
nær allt tímabilið og leikurinn
mun ráðast á því sem og að miðju
menn Manchester United munu
ekki eiga í teljandi vandræðum með
hægt spil og enga ógn frá miðju
mönnum Rauða hersins sem hafa
aðeins skorað fjögur mörk á tíma
bilinu.
Það er er f itt að segja það,
en Manchester United vinnur 21
sigur og þarf að bíða viku lengur
eftir því að óska „hinum grönn
unum" í Manchester City til ham
ingju með verðskuldaðan titil.
Mánudagurinn fer svo í að benda
vinnufélögunum sem halda með
Manchester United á þá staðreynd
á næstu leiktíð.
Þá verður allt annað uppi á ten
ingnum enda munu Liverpool mæta
gríðarsterkir og hungraðir til leiks.
Þá verður tólfti maðurinn á sínum
stað, þetta hörmungartímabil leið
rétt og titilinn fer aftur á Anfield,"
segir Liverpoolmaðurinn enn
fremur um næsta daga í lífi stuðn
ingsmanns Liverpool.
hjorvaro@frettabladid.is
Pressan er á Liverpool í stórslagnum
Liverpool þarf nauðsynlega á sigri að halda þegar liðið sækir Manchester United heim, ætli liðið sér að halda lífi í voninni um
sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta keppnistímabili. Manchester United siglir hins vegar nokkuð lygnan sjó í deildinni.
Thiago Alcantara og Marcus Rashford verða í eldlínunni í leik liðanna á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Liverpool er úr leik
í öllum keppnum en
er að rembast við að komast
í Meistaradeildina.
Halldór Marteinsson, Manchester
United
Það er erfitt að segja
það en Manchester
United vinnur 2-1 sigur.
Kristinn Kjærnested, Liverpool
Þegar fimm umferðir
eru eftir er Liverpool fjórum
stigum frá sæti sem veitir
þátttökurétt í Meistaradeild
Evrópu á næstu leiktíð.
1 . M A Í 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT