Fréttablaðið - 01.05.2021, Page 20
Hvannadalshnjúkur
Hvannadalshnjúkur er hæsti
tindur landsins, 2.110 metrar,
staðsettur innan Vatnajökuls
þjóðgarðs. Ganga að honum
tekur oftast um tólf til fimmtán
klukkustundir og er gengið upp
frá Sandfelli. Gangan þarfnast
ekki sérstakrar kunnáttu en
reynir á þol og úthald göngu
fólks.
Gangan hefst á frekar brattri
hækkun frá 100 metrum og
upp í 1.100 metra og mætti líkja
þessu upphafi við eina Esju
göngu.
Þá er farið í línur áður en
gengið er á jökulinn, en reynt er
að raða fólki eftir getu og formi
á línu svo auðvelt sé að halda
svipuðum gönguhraða. Fremst
í hverri línu er leiðsögumaður.
Þannig er svo gengið frá 1.100
metrum og upp í 1.800 metra
á jöklinum sjálfum. Þessi leið
getur reynt á þolinmæðina enda
hvítt til allra átta og gangan
fremur einhæf.
Þá er komið á Öræfajökul og
gengið á jafnsléttu þar til komið
er að hnjúknum sjálfum.
Á leiðinni á toppinn er nauð
synlegt að klæðast broddum
enda bratt síðasta spölinn.
Þegar toppnum er náð er út
sýnið magnað ef skyggni er gott
og sést vel til nærliggjandi fjalla.
SUMAR ERU AÐ GANGA Í
MINNINGU ÁSTVINAR EÐA
HAFA SJÁLFAR FARIÐ Í
GEGNUM KRABBAMEINS-
MEÐFERÐ. Í HÓPNUM
RÍKIR ÁKVEÐIN AUÐMÝKT
GAGNVART VERKEFNINU.
Það er engin önnur en Vilborg Arna Gissurar-dóttir sem stýrir hópn-um ásamt Brynhildi Ólafsdóttur, en þeim til halds og trausts eru
átján þaulreyndar fjallaleiðsögu-
konur af þremur kynslóðum, sem
fara fyrir hópnum.
Leiðangurinn var á dagskrá
fyrir ári síðan sem hluti átaks sem
Sirrý Ágústsdóttir setti af stað til
að safna fyrir bættum aðbúnaði
sjúklinga með krabbamein og
blóðsjúkdóma á nýrri lyflækninga-
deild Landspítalans. En vegna sam-
komutakmarkana var leiðangrin-
um frestað og ferðin nú sérstaklega
skipulögð með tilliti til sóttvarna.
„Leiðsögukonur hópsins eru af
þremur kynslóðum, sumar þeirra
hafa verið að leiðsegja á hnjúkinn
í tuttugu ár og svo eru þarna líka
nokkrar sem eru að ljúka námi
núna,“ útskýrir Vilborg, sem segir
mikinn mannaf la þurfa í svo stórt
verkefni. „Það er alltaf f lókið að
fara með svona stóra hópa en með
COVID viðmiðunum er þetta enn
f lóknara. Það er búið að skipta
hópnum niður og hver hópur hefur
sinn lit og armband. Hver minni
hópur fer af stað á settum tíma og
það eru mjög ítarlegar tímareglur
sem hver hópur þarf að fylgja. Svo
þetta eru nokkrir aðskildir hópar á
jöklinum á sama tíma en ekki sama
stað.“
Rúmlega árs undirbúningur
Stóra breytan í slíkri skipulagningu
er þó alltaf veðrið en Vilborg segir
þær vera vongóðar að geta farið af
stað og náð að toppa en til þess þarf
auðvitað að viðra vel. Konurnar eru
vel undirbúnar en fjölmargar þeirra
voru skráðar til leiks fyrir rúmi ári
síðan og hafa því getað undirbúið
sig vel.
„Þær hafa fengið heimaverk-
efni til að leysa, Collab styrkti
leiðangurskonur með fjarþjálf-
unarprógrammi fyrir fjallgöngur
og svo voru þær með verkefni
frá okkur eins og til að mynda
„double trouble“ sem er að ganga
Esjuna tvisvar í einni beit. Það er
svolítið verkefni enda um 1.200
metra hækkun að ræða.“ Tekinn
var tíminn á Esjuferðinni og kon-
unum raðað saman í jöklalínu eftir
þeim en átján línur, hver með átta
konum, verða á Hnúknum sam-
tímis.
Mikil stemning í hópnum
Þótt hópurinn hafi ekki undir-
búið sig saman hafa þær tengst í
gegnum Facebook-hóp og þannig
deilt undirbúningi sínum. „Það er
rosa stemning í hópnum og þær
hafa verið að sýna hvað þær eru að
gera þar.“ Eins og fyrr segir er gang-
an gengin að tilstuðlan Sirrýjar
Ágústsdóttur til styrktar Lífskrafti
og segir Vilborg konur taka þátt á
mismunandi forsendum. „Sumar
eru að ganga í minningu ástvinar
eða hafa sjálfar farið í gegnum
krabbameinsmeðferð. Í hópnum
ríkir ákveðin auðmýkt gagnvart
verkefninu.“
Fyrsti hópur leggur af stað korter
yfir miðnætti aðfaranótt laugar-
dags. „Það eru nokkrar ástæður
fyrir því að við göngum að nóttu
til en aðallega snýst þetta um færi.
Eftir því sem lengra líður á daginn
verður færið oft erfiðara enda sólin
og hitinn farinn að vinna á því en
helst vill maður ganga í hörðu og
góðu færi. Svo er auðvitað einstakt
að ganga yfir sumarnótt á Íslandi,“
segir Vilborg.
„Fyrsti hópur ætti svo að toppa
í kringum átta eða níu um morg-
uninn og vera kominn niður upp
úr klukkan tvö á laugardeginum.
Við krossum alla fingur og tær og
biðjum til allra almætta að það
viðri nógu vel til að við náum að
toppa,“ útskýrir Vilborg sem segir
þetta með stærri kvenviðburðum í
fjallamennsku sem hún hafi heyrt
af.
Bullandi
kvenorka á
hæsta tindi
landsins
Ef veðurguðirnir eru hliðhollir ættu 128
konur þessa stundina að vera á göngu á
hæsta tindi landsins, Hvannadalshnjúki.
Leiðangurinn kalla þær Kvennadalshnjúk
enda hefur slíkur kvennafans ekki áður
sést í rúmlega 2.000 metra hæð hér á landi. Fararstjórarnir Vilborg Arna Gissurardóttir og Brynhildur Ólafsdóttir hér með Sirrý Ágústsdóttur upphafskonu átaksins á milli sín. Myndin er tekin þegar þær þveruðu jökulinn í fyrra en nú á að toppa. MYND/SOFFÍA SIGURGEIRS
Sirrý Ágústsdóttir upphafskona átaksins hér ásamt Birnu Bragadóttur.
Snjódrífurnar þveruðu Vatnajökul á síðasta ári og nú
toppa þær Hvannadalshnjúk í styrkum kvennahópi.
Kvennasamstaða og orka er ríkjandi í hópnum og fleytir
honum vonandi alla leiðina á hæsta tind Íslands í dag.
Björk
Eiðsdóttir
bjork@frettabladid.is
Lífskraftur
Sirrý Ágústsdóttir er upphafs
manneskja átaksins, en hún
greindist með leghálskrabbamein
árið 2010 og aftur 2015. Í síðara
skiptið var ljóst að krabbameinið
var krónískt og töldu læknar að
hún ætti eitt til þrjú ár eftir ólifuð.
Á síðastliðnu ári fékk Sirrý úti
vistarvinkonur sínar Snjódrífurnar
til að fagna þessum tímamótum
með sér og gengu þær yfir Vatna
jökul og söfnuðust sex milljónir
króna.
Markmiðið með leiðangrinum
á Hnúkinn er að safna frekari
áheitum fyrir Lífskraft en allt það
fé sem safnast fer í bættan að
búnað fyrir sjúklinga með krabba
mein og blóðsjúkdóma á nýrri
lyflækningadeild Landspítalans.
Hægt er að styðja við Lífskraft
með því að senda SMS í síma-
númerið 1900
Sendið textann LIF1000 fyrir
1.000 krónur.
Sendið textann LIF3000 fyrir
3.000 krónur.
Sendið textann LIF5000 fyrir
5.000 krónur.
Sendið textann LIF10000 fyrir
10.000 krónur.
Einnig er hægt að leggja inn
á reikning 1161269900, kt.
5012190290, eða með AUR app
inu í síma 789 4010.
1 . M A Í 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R20 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HELGIN