Fréttablaðið - 01.05.2021, Side 32

Fréttablaðið - 01.05.2021, Side 32
Út fyrir kassann Sigmundur Ernir Rúnarsson Höfundur er sjónvarpsstjóri Hringbrautar, sem rekin er af Torgi, sem jafn- framt gefur út Fréttablaðið. ÞAÐ ER HLAUPINN OF- VÖXTUR Í ALLA MATAR- SKAMMTA. OG VIÐUR- VÆRIÐ ER ÚT UM ALLT. AÐ- GANGUR FÓLKS AÐ ÆTI ER FÁRÁNLEGA AUÐVELDUR. Ofgnótt á ofgnótt ofan Í heimasveitinni, fyrir svo sem hálfri öld, voru hús-reglurnar skýrar. Í öllu falli þær sem ríktu í eld-húsinu. Þar réð Ragn-heiður, frúin hans Munda, bróður afa, en sá hæfileiki hennar að skipa okkur vinnufólkinu fyrir með fasinu, er mér ennþá harla minnisstæður. Og augnasvipurinn var ýmist mildur og elskulegur, ell- egar hastur og herkinn. Svo og allt þar á milli, eftir því sem við átti. Einkum og sér í lagi átti þetta við þegar liðið sat hringinn í kringum litla matarborðið, á þunnum bekkjunum við horngluggann og kollunum þar sem næst – og neytti matar síns í friði og spekt á meðan útvarpsfrétt- irnar ómuðu, alla leiðina að sunnan; þeirri samkundu stjórnaði hún, blessunin, með skotrunum einum. Og reglan var þessi: maður borðaði það sem fyrir mann var lagt, hvorki meira né minna. Enda vissi maddama Ragn- heiður upp á agnarögn úr nálús hvað hver og einn þurfti að inn- byrða fyrir annir dagsins. Gott ef hún taldi ekki baunirnar ofan í hvurn og einn, svo akkúrat sem hún var. Og héðan fer hvorki svangur maður né svörgulslegur, sagði hún á stundum þar sem hún sat tvívega á sínum mjúka gumpi á útdreginni skúffunni við hliðina á kolafíringunni, eins og hver annar opinber eftirlitsmaður með því að maturinn færi ekki til spillis. En það mátti aldrei vera.  Þessi mynd af Melum, í ystu sveit á Ströndum norður, kemur æ oftar upp í hugann á þeim seinni árunum sem líða nú í lífi manns. Það er hlaupinn ofvöxtur í alla matarskammta. Og viðurværið er út um allt. Aðgangur fólks að æti er fáránlega auðveldur. Matarsóunin er eftir því yfirgengileg. Svo að segja hamslaus, ég segi ekki dýrsleg, því engin dýr sem þurfa að hafa fyrir æti sínu myndu haga sér eins og maðurinn, að sögn helsta vitsmunavera jarðarinnar. Og liðin er sú tíð að allur forðinn er geymdur í lokuðum tunnum eða harðlæstu búri – og eini lykillinn að því ofan í svuntuvasa húsfreyj- unnar. Það eru gamlir dagar.  Ég á það stundum til í seinni tíð- inni að kaupa heimtökumat á veit- ingastöðunum í kringum heimili mitt í miðborginni. Það hefur kennt mér lexíu. Einn réttur dugar alltaf fyrir tvo. Og ef við erum fimm í mat, svo sem þegar einhverjir krakkar manns sem ekki búa í útlöndum, kíkja í gamla hreiðrið sitt, þá kaupi ég þrjá rétti. Um daginn fór ég þessara erinda á taílenskan stað á Laugaveginum og keypti einmitt þriggja rétta skammt fyrir okkur fimm – og viti menn, sá pakki var svo vel útilátinn að afganginn gat bæði ég og yngsta dóttirin tekið með sér í hádegis- nestið í vinnu og skóla. Þrír réttir, fimm manns, nesti daginn eftir.  Fyrir fimmtungi aldar, eða svo, sótti ég alþjóðlegan kúrs í rann- sóknarblaðamennsku í bænum Columbia í Missouri-fylki í Banda- ríkjunum sem er eftirminnilegur fyrir þrennar sakir; fyrirlestrarnir voru einstaklega fróðlegir, nem- endahópurinn samanstóð af áhuga- verðum manneskjum alls staðar að úr heiminum, en svo ber ekki síst að nefna sérstakar matarvenjur þessa yndislega fólks sem var með mér á námskeiðinu. Einkum eru mér ógleymanlegar fjórar afrískar blaðakonur sem héldu hópinn æ meira og betur eftir því sem leið á misserið. Þær áttuðu sig f ljótlega á því að diskarnir á bandarískum veitingastöðum eru ekki einasta miklir um sig, heldur er slumpurinn á þeim svo óhóflega stór að ætla mætti að hann væri ætlaður fjölskyldu fremur en ein- staklingi. Því fór það fljótlega svo að stöll- urnar skiptu á milli sín skerfunum sem skellt var á borðið fyrir framan þær, í fyrstu deildu tvær þeirra hverjum skammti, en seinni vik- urnar voru þær farnar að panta einn rétt fyrir þær fjórar. Það reyndist hæfilegt. Einn réttur, fjórar manneskjur.  Aðra lífsreynslu er við hæfi að rifja upp af þessu tilefni, en hennar staður var á austurströnd Banda- ríkjanna, stundin líklega fimm árum fyrir aldamótin. Ferða- félaginn var þáverandi fréttastjóri minn, feitlaginn fremur og einhver mesti áhugamaður um allra handa kræsingar sem ég hef kynnst á eigin skinni. Gott og vel. Við vorum varla sestir upp í leigu- bílinn framan við alþjóðlegu flug- stöðina á milli borganna Baltimore og Washtington að kolleginn segir hárri raustu að nú muni hann láta slag standa, steikin fari ofan í hann, hvað svo sem rauli og tauti. Og gott ef hann strauk ekki á sér kviðinn, heldur nautnalega, í þeim töluðu orðum. Nema hvað. Stefnan var tekin á eitthvert frægasta steikhús Ameríku niðri við höfnina í Balti- more, skammt frá hótelinu sem við höfðum pantað gistingu á, en dag- inn eftir átti að halda aftur af stað með f lugi á fréttastjóraráðstefnu í strandbænum Fort Lauderdale í Flórída. En fyrst þetta, okkar maður hlammaði sér niður á besta stað á steikhúsinu, augljóslega ekki að koma þangað í fyrsta skipti – og pantaði sér réttinn án þess að kíkja á matseðilinn. Svo horfði hann á mig lymskulegum augum; Sig- mundur minn, þetta er dagurinn. Og þegar ég hváði, sagði hann með tilþrifum nautnaseggsins: Þetta er dagurinn sem ofursteikin fer ofan í mig. Og af því að ég hváði enn og aftur, sagði hann með glottið á vörunum: Ég er að tala um stærstu steikina í þessu gósenlandi. Svo viðurkenndi hann fyrir mér, á meðan hann beið eftir stykkinu, að hann hefði alltaf verið með konunni sinni í fyrri skiptin sem hann hefði komið á þennan veitingastað – og honum hefði aldrei fundist það við hæfi að sporðrenna þvílíkri býsn sem steikin téða væri fyrir framan augun á henni. Og svo kom hún, the American supreme steak. Og ég gapti. Hafði aldrei áður horft á viðlíka kjötfjall á einum og sama diskinum, ætlað manni í eintölu. Hvað er þetta eigin- lega mikið, stundi ég upp úr mér, útf lenntur í andliti. Og ég gleymi aldrei hvað sessunautur minn var hróðugur þegar hann treysti mér fyrir tölunni, rúmt kíló, karlinn minn. Þetta var sum sé sunnudagsmatur fyrir heila fjölskyldu, hugsaður á ameríska vísu fyrir holdmikið fólk, sem okkar maður gúffaði í sig á klukkustund. Og það sem mér fannst ég vera vesællegur með 150 gramma kjöt- f lísina mína, gegnt þessu ferlíki á hinum diskinum á borðinu.  Síðan er liðinn aldarfjórðungur. Og síst hafa skammtarnir minnk- að. Ekki frekar en fólkið. 1 . M A Í 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R32 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.