Fréttablaðið - 01.05.2021, Side 34
„Náttúrufegurð Vestfjarða hefur
ávallt heillað okkur og þangað
sóttum við nafnið á Vest. Okkur
þótti það svo fallega rammíslenskt
en í senn alþjóðlegt líka; stutt
og laggott en um leið svo sterkt,“
segir Elísabet Helgadóttir sem
með eiginmanni sínum Pétri Frey
Péturssyni opnaði nýlega eina
glæsilegustu hönnunarverslun lýð-
veldisins, Vest, í Ármúla 17.
„Við vorum búin að vera á
flakki um heiminn í heil fimm ár
og bjuggum bæði og störfuðum í
Lundúnum, Lúxemborg og Svíþjóð
þegar fluttum aftur heim í árslok
2020. Það ár opnuðum við vef-
verslunina vest.is og ákváðum að
láta draum um eigin rekstur rætast
og nýta þá fjölbreyttu þekkingu
sem við höfum öðlast í gegnum
áralöng ferðalög, bæði vegna vinnu
okkar og ástríðu fyrir hönnun
og listum,“ segir Elísabet sem er
menntaður fatahönnuður en Pétur
er viðskipta- og markaðsfræðingur.
Pétur gerðist aðili að sprota-
fyrirtæki sem sérhæfir sig í svefn-
lausnum í ársbyrjun 2017.
„Svefnlausnir urðu þá fljótt að
mikilli ástríðu hjá Pétri og á sama
tíma má segja að áhugi minn á
hönnun, innanstokksmunum og
öllu sem tengist heimilinu hafi
rokið upp úr öllu valdi. Við fórum
oft á milli landa til að sækja vöru-
sýningar og skoða húsgagnaverk-
smiðjur og þar fengum við innsýn
í allt sem viðkemur húsganga-
bransanum og hönnunarferlinu og
viðuðum að okkur dýrmætri þekk-
ingu sem nýttist vel í stofnun Vest,“
segir Elísabet.
Draumsvefn að hætti NASA
Vest sameinar ástríðufullan áhuga
hjónanna á fagurri innanhúss-
hönnun og byltingarkenndum
svefnlausnum, en Pétur er heillaður
af svefni og tengingu svefns við
heilsufar.
„Við ákváðum að kynna tvö fyrir-
tæki sem framleiða rúmdýnur sem
tryggja endurnærandi gæðasvefn
fyrir Íslendingum,“ segir Pétur um
dýnur frá belgíska fyrirtækinu
Sleepy og ítalsk-þýska fyrirtækinu
Technogel.
„Sleepy-dýnan er margverðlaun-
uð í Evrópu og hefur meðal annars
hlotið alþjóðleg neytendaverðlaun.
Hún kemur í litlum kassa og nær
fullri stærð á skömmum tíma eftir
að henni hefur verið rúllað út. Þá
erum við með stillanlegan Sleepy-
Hybrid-kodda úr heimskunnu Out-
last-efni sem er hannað af NASA,“
útskýrir Pétur.
Technogel eru frumkvöðull í
framleiðslu heilsudýna og sann-
kallað tækniundur í svefnlausnum.
„Technogel hefur verið notað í
allt frá læknisfræðilegum tilgangi
yfir í list og nú heilsudýnu. Hún er
hönnuð til að stuðla að dýpri og
betri svefni, styður einstaklega vel
við líkamann, dregur úr líkamshita
og dreifir álagi án þess að hafa áhrif
á hreyfigetu. Þá hafa niðurstöður
rannsókna sýnt að Technogel-
heilsudýnur auka djúpsvefn um
allt að 45 prósent,“ greinir Pétur
frá og hvetur alla sem þrá góðan
nætursvefn að koma í Vest og prófa
dýnurnar.
„Við bjóðum upp á 120 nátta
prófun á Sleepy-dýnunum því við
viljum að viðskiptavinir okkar séu
fullkomlega sáttir. Þá sendum við
frítt hvert á land sem er og sam-
dægurs á höfuðborgarsvæðinu ef
pantað er fyrir klukkan 17.“
Trend eru fljót að breytast
Vest er ekki bara heillandi verslun
heldur líka hönnunarstúdíó sem
vakið hefur athygli fyrir glæsilega
innanhússhönnun, en Elísabet
vinnur að verkefnum í samstarfi
við íslenska hönnuði og listamenn.
„Við mubluðum upp sýningar-
íbúð í Bríetartúni fyrir skemmstu,
sem var einstaklega gefandi, og
gaman að segja frá því að sala á
íbúðum í húsinu tók strax við sér
eftir að við höfðum lagt okkar hönd
á allt sem var innanstokks,“ segir
Elísabet í glæstum vistarverum
Vest.
Þar bjóðast fáguð húsgögn fyrir
heimili og fyrirtæki, meðal annars
frá Ítalíu, Hollandi, Belgíu, Úkraínu,
Noregi og Svíþjóð.
„Hugmyndin er að mublurnar
fylgi kaupendum fyrir lífstíð. Við
leggjum áherslu á að fylgja vörunni
eftir og ganga úr skugga um að hún
henti rýminu. Með tilkomu sam-
félagsmiðla hefur allur heimurinn
opnast og það hefur haft áhrif á
smekk Íslendinga sem nú geta fylgst
með því sem gerist í innanhúss-
hönnun um víða veröld. Litagleði
hefur aukist og fólk er óragara
við að prófa eitthvað nýtt undir
listrænum áhrifum hvaðanæva
úr heiminum,“ segir Elísabet sem
sjálf hefur þó haldið sig fjarri öllum
trendum í gegnum tíðina.
„Ég vel sígilda gæðahönnun
hverju sinni. Trendin eru svo fljót
að breytast en ef fólk hefur gaman
af því að eltast við þau er einfaldast
að velja hluti sem er auðvelt að
breyta eða skipta út. Þar erum við í
Vest á heimavelli og setjum kúnn-
ann alltaf í fyrsta sæti.“
Rétti tíminn fyrir nýjungar
Það er ævintýri líkast að skoða sig
um í 265 fermetra sýningarsal Vest.
Hvarvetna blasir við undurfalleg
hönnun, húsgögn og smáhlutir, sem
og heilsurúm, dýnur og koddar.
„Við lögðum upp með upplif-
unarhönnun sem samanstendur af
sýningarrými, listgalleríi og versl-
un. Við vildum hafa heildarrýmið
frekar hrátt og leyfa hverjum
hlut að njóta sín, svo að fólk geti
komið og fengið bæði innblástur
og leiðsögn. Að upplifun þess væri
eins og að ganga inn í listgallerí og
það finnst okkur hafa tekist vel,“
segir Elísabet, en hönnun Vest var
unnin í samstarfi við Thelmu Guð-
mundsdóttur innanhússarkitekt
hjá Arkís.
„Okkur finnst rétti tíminn nú til
að koma með nýjungar í íslenska
innanhússflóru og dýpka og auka
fjölbreytni á innanhússmarkaðn-
um. Við bjóðum upp á sígilda og
endingargóða hönnun sem getur
gengið kynslóða á milli og er alltaf
falleg. Við leggjum líka mikið upp
úr einstöku viðmóti og þjónustu,
og bjóðum upp á þá kærkomnu
nýjung að máta húsgögn á heimili
áður en lokaákvörðun er tekin, sé
þess kostur,“ segir Elísabet.
Samstarf við listamenn
Meðal vörumerkja í Vest er heims-
fræg húsgagnahönnun frá ítalska
framleiðandanum Tacchini og
gullfalleg skandinavísk húsgögn
frá LK Hjelle í Noregi og Asplund
í Svíþjóð. Einnig fallegar hillur og
rúmbotnar frá ítalska merkinu
XAM, smávörur og ljós frá úkra-
ínska hönnunarmerkinu Noom
og handblásnir vasar frá hollenska
merkinu StudioZar.
„Okkur finnst sérstaklega
skemmtilegt að vera í samstarfi
við lítil og persónuleg fyrirtæki
í hönnunargeiranum og ætlum
að auka úrval hönnunarvara frá
ýmist rótgrónum hönnunarhúsum
sem og ungum og upprennandi
listamönnum. Við viljum vera í
góðu sambandi við listafólk og
hönnuði, og að Vest sé staður þar
sem ímyndunaraflið fer á flug og
hægt er að sækja sér innblástur og
leiðsögn. Sem stendur erum við í
samstarfi við Stekk með smávöru
frá Nedre Foss og í lok maí stefnum
við á listviðburð með Elísabetu
Ölmu Svendsen í Listaval. Þá
vorum við að setja upp æðislegan
spegil frá BERG, sem er íslensk
hönnun sem verður í sérpöntun
hjá okkur og takmörkuðu upplagi.
Sjón er sögu ríkari og við bjóðum
alla hjartanlega velkomna til
okkar í Vest,“ segja þau Elísabet og
Pétur.
Vest er í Ármúla 17 í Reykjavík.
Sjá vest.is
Hjónin Elísabet Helgadóttir og Pétur Freyr Pétursson í glæsilegu sýningarrými Vest. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Costela-stóllinn frá Tacchini gleður augað í einfaldleika sínum og á rætur að
rekja til sjötta áratugarins. Hrífandi ásýnd og hugvitsamleg hönnun.
Í Vest fæst hönnun frá mörgum frægustu húsgagnahönnuðum veraldar.
Borðstofuborðið Split frá Tacchini,
hönnun Claesson, Koivisto og Rune.
Narciso teppi frá Tacchini, handhnýtt eftir flókinni og fornri aðferð í Nepal.
Modell 711 stenst tímans tönn,
hannaður af Fredrik A. Kayser.
Technogel heilsudýnurnar eru fram-
leiddar á Ítalí og eru sannkallað
tækniundur í svefnlausnum.
2 kynningarblað A L LT 1. maí 2021 LAUGARDAGUR