Fréttablaðið - 01.05.2021, Side 35

Fréttablaðið - 01.05.2021, Side 35
Á tímum sem þessum er sterkt ónæmiskerfi lykilatriði. Þættir eins og hreyfing, góður svefn, hollt matar­ æði og góð melting eru undirstaðan að öflugu ónæmiskerfi. Nýjustu rannsóknir staðfesta alltaf betur og betur hversu mikilvægt það er að hafa meltingarfærin í lagi fyrir líðan okkar. Hún spilar stórt hlutverk í að viðhalda öflugu ónæmis­ kerfi. Við þurfum að geta brotið fæðuna vel niður til að næring arefnin frá- sogist, til þess að það gerist þarf þarmaflóran að vera í jafnvægi. Meltingarfærin eru það fyrsta sem við þurfum að huga að til að geta nærst vel. Um leið og upptakan er góð og við skilum frá okkur eðlilegum hægðum kemst betra jafnvægi á og höfum við stigið stórt skref í átt að heilbrigðara lífi. Það má líkja þessu við að við séum að byggja hús og við byrjum á grunn inum. Því traustari og betur gerður sem grunnurinn er, þeim mun auðveldara verður að byggja ofan á þannig að allt haldi vel. Góður og grænn á morgnana Grænn þeytingur eða smoothie eins og sjá má í meðfylgjandi upp- skrift er fullur af næringar efnum og trefjum sem eru bæði nauð- synleg og góð fyrir meltinguna. Vel samsettir þeytingar hafa líka jákvæð áhrif á blóðsykurinn og geta hjálpað í baráttunni við sykur púkann. Það þarf ekki að vera f lókið að skella í góðan drykk og tekur varla meira en 2-3 mínútur. Grænn og vænn 1 lúka blönduð græn blöð, spínat eða grænkál ½-1 banani (má vera frosinn) 1 bolli frosið mangó eða t.d. ananas 1-2 cm engifer Smá sítrónusafi 1,5 bolli vatn eða t.d. möndlu- eða haframjólk Góð melting getur skipt sköpum Vel samsettir þeytingar hafa jákvæð áhrif á blóðsykurinn og geta hjálpað í baráttunni við sykur púkann. Meltingarensímin frá Enzymedica eru mest seldu ensímin á markaðinum. Bio-Kult Candéa er háþróuð góðgerlablanda sem hentar fyrir alla. MYNDIR/AÐSENDAR Ýmislegt má svo nota til að „poppa“ drykkinn aðeins upp en það getur verið smá kanill, túrm- erik, ein matskeið hörfræ eða chia- fræ, smá epladjús eða tvær döðlur til að sæta aðeins. Berja drykkir eru líka einstaklega næringaríkir og um að gera að finna hvað hentar. Þreyta eftir máltíðir Ensím eru nauðsynleg í öllum efna skiptum í líkamanum en í hráu fæði eru ensím sem verða óvirk við eldun. Þegar við borðum eldaðan og unninn mat notar líkaminn orkuna í að finna og flytja ensím til meltingarvegarins, en hver hefur ekki fundið fyrir þreytu eftir stórar máltíðir? Með hækkandi aldri gerist það líka að framleiðsla ensíma í líkamanum minnkar en ensímskortur getur lýst sér í eftirfarandi: • Brjóstsviði • Vindverkir • Uppþemba • Ónot í maga og ógleði • Bólur • Nefrennsli • Krampar í þörmum • Ófullnægt hungur • Skapsveiflur • Eymsli í liðum • Húðkláði • Húðroði • Svefnleysi Það er mikilvægt að borða „lifandi fæðu“ eins og grænmeti og ávexti með elduðum mat. Fjöl margir hafa einnig fundið lausn í að taka inn meltingarensím til að auð- velda líkamanum verkið og nýta fæðuna betur. Þetta er grund- vallaratriði í átt að heilbrigðari lífs stíl. Meltingarensímin frá Enzyme dica eru tekin inn með mat og hafa losað fólk við ótrú- legustu óþægindi og aukið orku til muna. Aðferð við vinnslu á Enzymedica ensímunum kallast Thera-Blend og er það einkaleyfis- varin aðferð sem gerir þeim kleift að vinna á mismunandi pH- gildum í líkamanum sem gerir þau margfalt öflugri en önnur meltingarensím. Öflugasta viðbótin Fyrir utan D-vítamín og ómega-3 fitusýrur sem er okkur lífsnauð- synlegar, eigum við að taka inn öfluga mjólkursýrugerla. Oft er sagt að heilsan búi í þörmunum og mikið er til í því. Stöðugt álag er á meltingunni, atriði eins og streita, lyf, áfengi, sykur og koffín valda því að þarmaf lóran er ekki í nógu góðu jafnvægi. Bio-Kult eru öflugir góðgerlar sem styrkja meltinguna. Bio-Kult Candéa er háþróuð og fjölvirk örverublanda sem inniheldur 7 frostþurrkaða og sýruþolna gerlastofna ásamt hvítlauk og GSE (Grapefruit Seed Extract) sem getur haft góð áhrif á meltinguna. Bio-Kult Candéa er öruggt og hentar vel fyrir alla, einnig barnshafandi konur, mjólkandi mæður og börn. ALLT kynningarblað 3LAUGARDAGUR 1. maí 2021

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.