Fréttablaðið - 01.05.2021, Page 35
Á tímum sem
þessum er sterkt
ónæmiskerfi lykilatriði.
Þættir eins og hreyfing,
góður svefn, hollt matar
æði og góð melting eru
undirstaðan að öflugu
ónæmiskerfi.
Nýjustu rannsóknir staðfesta
alltaf betur og betur hversu
mikilvægt það er að hafa
meltingarfærin í lagi fyrir líðan
okkar. Hún spilar stórt hlutverk
í að viðhalda öflugu ónæmis
kerfi.
Við þurfum að geta brotið fæðuna
vel niður til að næring arefnin frá-
sogist, til þess að það gerist þarf
þarmaflóran að vera í jafnvægi.
Meltingarfærin eru það fyrsta sem
við þurfum að huga að til að geta
nærst vel. Um leið og upptakan
er góð og við skilum frá okkur
eðlilegum hægðum kemst betra
jafnvægi á og höfum við stigið
stórt skref í átt að heilbrigðara lífi.
Það má líkja þessu við að við séum
að byggja hús og við byrjum á
grunn inum. Því traustari og betur
gerður sem grunnurinn er, þeim
mun auðveldara verður að byggja
ofan á þannig að allt haldi vel.
Góður og grænn á morgnana
Grænn þeytingur eða smoothie
eins og sjá má í meðfylgjandi upp-
skrift er fullur af næringar efnum
og trefjum sem eru bæði nauð-
synleg og góð fyrir meltinguna.
Vel samsettir þeytingar hafa líka
jákvæð áhrif á blóðsykurinn og
geta hjálpað í baráttunni við
sykur púkann. Það þarf ekki
að vera f lókið að skella í góðan
drykk og tekur varla meira en 2-3
mínútur.
Grænn og vænn
1 lúka blönduð græn blöð, spínat
eða grænkál
½-1 banani (má vera frosinn)
1 bolli frosið mangó eða t.d.
ananas
1-2 cm engifer
Smá sítrónusafi
1,5 bolli vatn eða t.d. möndlu-
eða haframjólk
Góð melting getur skipt sköpum
Vel samsettir þeytingar hafa jákvæð áhrif á blóðsykurinn og geta hjálpað í baráttunni við sykur púkann.
Meltingarensímin frá Enzymedica eru mest seldu ensímin á markaðinum.
Bio-Kult Candéa er háþróuð góðgerlablanda sem
hentar fyrir alla. MYNDIR/AÐSENDAR
Ýmislegt má svo nota til að
„poppa“ drykkinn aðeins upp en
það getur verið smá kanill, túrm-
erik, ein matskeið hörfræ eða chia-
fræ, smá epladjús eða tvær döðlur
til að sæta aðeins. Berja drykkir eru
líka einstaklega næringaríkir og
um að gera að finna hvað hentar.
Þreyta eftir máltíðir
Ensím eru nauðsynleg í öllum
efna skiptum í líkamanum en í
hráu fæði eru ensím sem verða
óvirk við eldun. Þegar við borðum
eldaðan og unninn mat notar
líkaminn orkuna í að finna og
flytja ensím til meltingarvegarins,
en hver hefur ekki fundið fyrir
þreytu eftir stórar máltíðir? Með
hækkandi aldri gerist það líka að
framleiðsla ensíma í líkamanum
minnkar en ensímskortur getur
lýst sér í eftirfarandi:
• Brjóstsviði
• Vindverkir
• Uppþemba
• Ónot í maga og ógleði
• Bólur
• Nefrennsli
• Krampar í þörmum
• Ófullnægt hungur
• Skapsveiflur
• Eymsli í liðum
• Húðkláði
• Húðroði
• Svefnleysi
Það er mikilvægt að borða „lifandi
fæðu“ eins og grænmeti og ávexti
með elduðum mat. Fjöl margir
hafa einnig fundið lausn í að taka
inn meltingarensím til að auð-
velda líkamanum verkið og nýta
fæðuna betur. Þetta er grund-
vallaratriði í átt að heilbrigðari
lífs stíl. Meltingarensímin frá
Enzyme dica eru tekin inn með
mat og hafa losað fólk við ótrú-
legustu óþægindi og aukið orku
til muna. Aðferð við vinnslu á
Enzymedica ensímunum kallast
Thera-Blend og er það einkaleyfis-
varin aðferð sem gerir þeim kleift
að vinna á mismunandi pH-
gildum í líkamanum sem gerir
þau margfalt öflugri en önnur
meltingarensím.
Öflugasta viðbótin
Fyrir utan D-vítamín og ómega-3
fitusýrur sem er okkur lífsnauð-
synlegar, eigum við að taka inn
öfluga mjólkursýrugerla. Oft er
sagt að heilsan búi í þörmunum
og mikið er til í því. Stöðugt álag
er á meltingunni, atriði eins og
streita, lyf, áfengi, sykur og koffín
valda því að þarmaf lóran er ekki
í nógu góðu jafnvægi. Bio-Kult
eru öflugir góðgerlar sem styrkja
meltinguna. Bio-Kult Candéa er
háþróuð og fjölvirk örverublanda
sem inniheldur 7 frostþurrkaða
og sýruþolna gerlastofna ásamt
hvítlauk og GSE (Grapefruit Seed
Extract) sem getur haft góð áhrif
á meltinguna. Bio-Kult Candéa
er öruggt og hentar vel fyrir
alla, einnig barnshafandi konur,
mjólkandi mæður og börn.
ALLT kynningarblað 3LAUGARDAGUR 1. maí 2021