Fréttablaðið - 01.05.2021, Qupperneq 37
Deildarstjóri stjórnstöðvar
RARIK ohf. er opinbert hlutafélag í eigu
ríkisins með meginstarfsemi í dreifingu
raforku auk þess að reka fimm
hitaveitur.
Starfsfólk RARIK eru um 200 og
starfsstöðvar 20.
RARIK hefur á undanförnum áratugum
unnið jafnt og þétt að uppbyggingu
rafdreifikerfisins og er nú svo komið að
um 70% þess er jarðstrengir.
Nánari upplýsingar um fyrirtækið má
finna á heimasíðu þess www.rarik.is
Menntunar- og hæfniskröfur:
RARIK ohf. óskar eftir að ráða deildarstjóra stjórnstöðvar. Stjórnstöð er ný deild sem ber ábyrgð á vöktun
dreifikerfis og hitaveitu og sinnir verkefnum sem tengjast því.
Nánari upplýsingar um starfið veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Hafdís Ósk Pétursdóttir
(hafdis@intellecta.is) í síma 511 1225.
• Þátttaka í uppbyggingu og mótun stefnu og
starfsemi stjórnstöðvar
• Ábyrgð á vöktun og kerfisstjórnun dreifikerfis og
vöktun hitaveitna
• Samræming aðgerða stjórnstöðvar og rekstrarsvæða
• Stjórnunarleg ábyrgð á starfsmönnum deildarinnar
og góðu starfsumhverfi
• Ábyrgð á uppsetningu og framkvæmd vaktaplans
• Ábyrgð á áætlanagerð, kostnaðareftirliti og
frávikagreiningu
• Þátttaka í vöktum
Helstu viðfangsefni og ábyrgð:
Umsóknarfrestur er til og með 17. maí 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda í starfið. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál. Við hvetjum bæði konur og karla til að sækja um.
• Háskólamenntun á sviði rafmagnsverkfræði,
-tæknifræði eða sambærileg menntun
• Reynsla af rekstri raforkukerfis/stjórnstöðvar er
æskileg
• Reynsla af stjórnun er æskileg
• Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
• Góðir skipulagshæfileikar og drifkraftur
• Góð tölvu- og tungumálakunnátta
Stafrænt Suðurland -
Verkefnastjóri
Menntunar- og hæfniskröfur:
Kosið verður um sameiningu Ásahrepps, Rangárþings ytra, Rangárþings eystra, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps 25. september 2021.
Verkefnisheitið er Sveitarfélagið Suðurland. Verkefnið Stafrænt Suðurland er undirverkefni þess og er markmiðið að undirbúa sveitarfélögin undir
veitingu stafrænnar þjónustu og stjórnsýslu með því að móta einskonar stafrænt ráðhús og þjónustuver fyrir Sveitarfélagið Suðurland og ná
þannig fram hagræðingu í rekstri, auknu öryggi í vinnslu gagna og meiri sérhæfingu í störfum. Stafrænt ráðhús auðveldar stafræn samskipti við
almenning og eykur möguleika á sjálfsafgreiðslu. Auglýst er eftir metnaðarfullum og framsæknum einstaklingi til að leiða verkefnið.
Umsóknarfrestur er til og með 3. maí 2021. Nánari upplýsingar um starfið má finna á www.intellecta.is.
Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is).
• Mótun verkefnisins Stafrænt Suðurland og gerð verkefnisáætlunar
• Stöðumat og greining stafrænna innviða sveitarfélaganna í samstarfi við starfsfólk
• Verkefnastjórnun og innleiðing á sameiginlegum verkefnum sveitarfélaganna
s.s. við samræmingu upplýsingatæknikerfa og gerð skjalavistunaráætlunar
• Vinna að hagnýtingu þekkingar og lausna er snúa að stafrænni umbreytingu í
stjórnsýslu, þjónustu og rekstri
• Gerð fræðsluefnis til að greiða fyrir innleiðingu verkefna og lausna
• Stuðla með virkum hætti að auknu samstarfi sveitarfélaganna, Sambands íslenskra
sveitarfélaga og ríkis á sviði stafrænnar þróunar
• Uppbygging rafræns upplýsingavettvangs fyrir sveitarfélögin sem felur í sér
framsetningu efnis, miðlun og deilingu þekkingar, lausna og verkefna
• Uppbygging faglegs verklags fyrir samstarf og sameiginleg verkefni og innleiðing
þvert á sveitarfélögin
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Háskólapróf sem nýtist í starfi
• Meistarapróf eða reynsla sem nýtist í starfi er kostur
• Þekking og reynsla af faglegri verkefnastjórnun þar sem margir hagaðilar
koma að verkefnum er skilyrði
• Færni til að undirbúa, skipuleggja og stýra verkefnum og fylgja þeim eftir
• Þekking og reynsla af upplýsingatækni og stafrænum
umbreytingaverkefnum
• Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að koma skoðunum,
upplýsingum og röksemdarfærslum frá sér á skýran hátt
• Geta til að byggja upp, hanna og viðhalda vef með faglegri framsetningu
upplýsinga og gagna
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
• Mjög góð færni í íslensku og ensku í ræðu og riti
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára