Fréttablaðið - 01.05.2021, Side 39

Fréttablaðið - 01.05.2021, Side 39
Héðinn hf. er fyrirtæki með nærri 100 ára sögu af þjónustu við sjávarútveg og iðnað. Hjá Héðni starfa um 100 manns við fjölbreytt störf, allt frá hönnun til framleiðslu fullbúins tækjabúnaðar ásamt eftirfylgni og þjónustu. www.hedinn.com. Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Kongsberg Maritime búnaður og skipahönnun er í fremstu röð í heiminum og hefur þjónað íslenskum útgerðum í áratugi með áreiðanleika og endingu að leiðarljósi. Héðinn óskar eftir að ráða áhugasaman og þjónustulipran sérfræðing inn á Kongsberg Marine og véladeild. Um er að ræða þjónustu við viðskiptavini sem eru með búnað frá Kongsberg Maritime, sérstaklega á sviði stýringa og stjórnkerfa. Starfið felur einnig í sér ferðalög þegar um uppfærslur eða uppsetningu á búnaði er að ræða. Helstu verkefni: • Uppsetning og uppfærslur á stjórnbúnaði. • Þjónusta við viðskiptavini á sviði stjórnunar vélbúnaðar. • Önnur þjónusta við Kongsberg búnað. Menntunar- og hæfniskröfur: • Vélstjóri, vélvirki, rafvirki eða sambærileg iðnmenntun sem nýtist í starfi er skilyrði. • Reynsla af stýringu vélbúnaðar. • Þekking af vél-, tækni- og rafbúnaði. • Framúrskarandi þjónustulund, jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar. • Drifkraftur og metnaður til að ná árangri í starfi. • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð. • Góð íslensku- og enskukunnátta. • Góð tölvukunnátta. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna. Umsóknarfrestur er til og með 8. maí nk. Umsóknir óskast fylltar út á www.vinnvinn.is. Umsjón með starfinu hafa Hilmar G. Hjaltason (hilmar@vinnvinn.is) og Hildur Jóna Ragnarsdóttir (hildur@vinnvinn.is) hjá Vinnvinn. Sérfræðingur

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.