Fréttablaðið - 01.05.2021, Page 41

Fréttablaðið - 01.05.2021, Page 41
Komdu út að leika Við leitum að öflugu starfsfólki Finndu rétta starfið á flyplay.com/storf Kerfisstjóri Umbra óskar eftir að ráða öflugan kerfisstjóra með þekkingu á miðlægum Microsoft lausnum til að sinna kerfisstjórn og þjónustu við notendur ráðuneyta og stofnana. Viðkomandi skal hafa ríka öryggisvitund og getu til að stýra verkefnum. Helstu verkefni • Kerfisstjórnun og stuðningur við notendaþjónustu • Innleiðing og uppsetning nýrra kerfa og lausna • Þátttaka í rekstri Microsoft 365 kerfa þar sem staðbundnum og skýjalausnum er blandað saman • Þátttaka í vali á lausnum í takt við tækniþróun á hverjum tíma • Önnur tilfallandi verkefni í tengslum við þróun og rekstur á innri kerfum Umbru Menntunar- og hæfniskröfur • Nám í tölvunarfræði, kerfisfræði, sambærilegt nám eða reynsla • Reynsla af rekstri og innleiðingu tölvukerfa • Góð þekking og reynsla af Microsoft hugbúnaði, t.d. Active Directory, Azure og Exchange • Þekking á Microsoft 365 skýjalausnum og staðbundnum lausnum Microsoft • Þekking á VMware • Þekking á net- og öryggislausnum • Þekking á Veeam afritunarlausn er kostur • Góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti • Frumkvæði og góð samskiptahæfni, ásamt ríkri þjónustulund • Metnaður til að ná árangri og hæfni til að tileinka sér nýjungar og breytingar • Sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð Notendaþjónusta Umbra óskar eftir að ráða öflugan og þjónustulundaðan liðsfélaga til að sinna tölvuþjónustu fyrir starfsfólk ráðuneyta Stjórnarráðs Íslands. Helstu verkefni • Almenn þjónusta við notendur og umsýsla í Microsoft umhverfi • Uppsetning og rekstur á endabúnaði • Önnur tilfallandi kerfisstjórn Menntunar- og hæfniskröfur • Nám í kerfisfræði, sambærilegt nám eða reynsla • Reynsla af notendaþjónustu • Góð þekking á Microsoft notendalausnum, m.a. Microsoft 365 og Teams • Mjög góð samskiptahæfni ásamt ríkri þjónustulund • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfni til hópavinnu • Metnaður til að ná árangri og hæfni til að tileinka sér nýjungar og breytingar • Rík vitund um upplýsingaöryggi • Góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti Umsóknarfrestur er til og með 10. maí 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Nánari upplýsingar um störfin veita Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is) og Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is) í síma 511 1225. Spennandi störf hjá Umbru - Þjónustumiðstöð stjórnarráðsins Umbra - þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins veitir ráðuneytum og stofnunum margvíslega þjónustu á sviði upplýsingatækni og annars sameiginlegs rekstrar. Hjá Umbru vinnur fjölbreyttur hópur saman að því að veita framúrskarandi þjónustu í góðu umhverfi. Starfsmenn eru 39 og notendur þjónustunnar á sjötta hundrað. Umbra er ISO27001 vottuð. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Um laun og starfskjör fer samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og viðkomandi stéttarfélags.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.