Fréttablaðið - 01.05.2021, Side 62

Fréttablaðið - 01.05.2021, Side 62
Hjarta heimilisins slær iðulega í eldhúsinu og margir eiga sér draum um að láta hanna drauma- eldhús sem er sniðið að þeirra þörfum. sjofn@frettabladid.is Erna Geir laug Árna dótt ir innan ­ húss arki tekt hefur starfað við fagið frá árinu 1999 en á síðasta ári gerðist hún sjálfstætt starf­ andi undir eigin nafni. Hún hefur hannað fjöldann allan af eldhúsum undanfarið og elskar að hanna. Verkefnin hafa verið stór og smá, allt frá eld húsum, baðher bergjum, vali á hús gögn um og allt yfir í heild­ ar hönn un inn an húss með góðri útkomu. Í þættinum Matur og heimili á sjónvarpsstöðinni Hringbraut hitti Sjöfn Þórðar þáttarstjórnandi Ernu Geirlaugu í einu af eldhúsunum sem hún hefur hannað í samráði við óskir húseigenda með góðri útkomu. „Notagildi, þarfir hvers og eins og auðvitað fagurfræðin,“segir Erna Geirlaug spurð hvað hún hafi helst í huga þegar kemur að því að hanna draumaeldhús viðskiptavina sinna. „Eigendur vildu fá stílhreint, einfalt en jafnframt þægilegt eld­ hús þar sem gott væri að vinna og auðvitað fallegt líka. Þegar ég kom Draumaeldhús með leynirými Erna Geirlaug Árnadóttir á veg og vanda af þessu fallega eldhúsi. Borðplata úr Black Cosmic graníti gerir mikið fyrir rýmið og er frá Fígaró náttúrusteini. Hreyfing í æðum og litirnir heilluðu strax frúna á heimilinu. Leynirýmið í eldhúsinu vekur mikla athygli og er um að ræða frábæra lausn þar sem notagildi og fagurfræðin samtvinnast með glæsilegri útkomu. Hér sést hvernig lýsing inni í skápum veitir fallega birtu þegar tækjaskápurinn er opnaður. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Fallegir hlutir setja punkt yfir i-ið á glæsilegri eldhúsinnréttingunni. þar inn fyrst blasti við mér eldhús, geymsla og vaskahús, en ákveðið var að hafa bara eldhús og vaska­ hús og um leið og það var ákveðið þá fór boltinn að rúlla. Ég byrjaði svo að hanna út frá þeirra þörfum og þetta er útkoman, fallegt eldhús, gott skipulag og hámarks nýting á rýminu.“ Stílhreint og léttleiki í fyrirrúmi Þegar kom að því að velja efnivið í eldhúsið var ósk eigenda skýr. „Við lögðum upp með að hafa það stílhreint og léttleika í fyrir­ rúmi. Innréttingin er hvítlökkuð með gripum og sérsmíðuð hjá Aðal­ vík ehf., en þeir smíða mikið fyrir mig,“ upplýsir Erna. „Frúin á heimilinu féll strax svo fyrir steininum Black Cosmic sem er úr graníti. Hreyfing og litirnir heilluðu hana strax og minntu hana á hraungos.“ Leyndardómar eldhússins Þegar inn í eldhúsið er komið og innréttingin skoðuð grunar engan að þar leynist vaskahús með öllum þægindum og má með sanni segja að þar hafi Erna Geirlaug hannað leynirými. Þar fær efniviðurinn áfram að njóta sín og er vaskahúsið hrein samfella við eldhúsið. „Hurðin inn í vaskahúsið er með hreyfiskynjara og um leið og hún er opnuð kviknar ljós þar inni. Hurð­ irnar á tækjaskápnum eru líka með hreyfiskynjara og þegar þær opnast kvikna ljós í skápunum. Lýsing í tækjaskápunum er mjög falleg og hvernig hún lýsir upp granítið á borðplötunni og bakið á tækja­ skápnum sem nýtur sín þá sérstak­ lega vel,” segir Erna Geirlaug. Frúin á heimilinu féll strax fyrir steininum Black Cosmic sem er úr graníti, en litirnir og hreyfingin minntu hana á eldgos. 6 kynningarblað A L LT 1. maí 2021 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.