Fréttablaðið - 01.05.2021, Page 62
Hjarta heimilisins slær iðulega
í eldhúsinu og margir eiga sér
draum um að láta hanna drauma-
eldhús sem er sniðið að þeirra
þörfum.
sjofn@frettabladid.is
Erna Geir laug Árna dótt ir innan
húss arki tekt hefur starfað við
fagið frá árinu 1999 en á síðasta
ári gerðist hún sjálfstætt starf
andi undir eigin nafni. Hún hefur
hannað fjöldann allan af eldhúsum
undanfarið og elskar að hanna.
Verkefnin hafa verið stór og smá,
allt frá eld húsum, baðher bergjum,
vali á hús gögn um og allt yfir í heild
ar hönn un inn an húss með góðri
útkomu.
Í þættinum Matur og heimili á
sjónvarpsstöðinni Hringbraut hitti
Sjöfn Þórðar þáttarstjórnandi Ernu
Geirlaugu í einu af eldhúsunum
sem hún hefur hannað í samráði
við óskir húseigenda með góðri
útkomu.
„Notagildi, þarfir hvers og eins
og auðvitað fagurfræðin,“segir Erna
Geirlaug spurð hvað hún hafi helst
í huga þegar kemur að því að hanna
draumaeldhús viðskiptavina sinna.
„Eigendur vildu fá stílhreint,
einfalt en jafnframt þægilegt eld
hús þar sem gott væri að vinna og
auðvitað fallegt líka. Þegar ég kom
Draumaeldhús með leynirými
Erna Geirlaug Árnadóttir á veg og
vanda af þessu fallega eldhúsi.
Borðplata úr Black Cosmic graníti gerir mikið fyrir rýmið og er frá Fígaró
náttúrusteini. Hreyfing í æðum og litirnir heilluðu strax frúna á heimilinu.
Leynirýmið í eldhúsinu vekur mikla athygli og er um að ræða frábæra lausn
þar sem notagildi og fagurfræðin samtvinnast með glæsilegri útkomu.
Hér sést hvernig lýsing inni í skápum veitir fallega birtu þegar tækjaskápurinn er opnaður. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Fallegir hlutir setja punkt yfir i-ið á
glæsilegri eldhúsinnréttingunni.
þar inn fyrst blasti við mér eldhús,
geymsla og vaskahús, en ákveðið
var að hafa bara eldhús og vaska
hús og um leið og það var ákveðið
þá fór boltinn að rúlla. Ég byrjaði
svo að hanna út frá þeirra þörfum
og þetta er útkoman, fallegt eldhús,
gott skipulag og hámarks nýting á
rýminu.“
Stílhreint og léttleiki í fyrirrúmi
Þegar kom að því að velja efnivið í
eldhúsið var ósk eigenda skýr.
„Við lögðum upp með að hafa
það stílhreint og léttleika í fyrir
rúmi. Innréttingin er hvítlökkuð
með gripum og sérsmíðuð hjá Aðal
vík ehf., en þeir smíða mikið fyrir
mig,“ upplýsir Erna.
„Frúin á heimilinu féll strax svo
fyrir steininum Black Cosmic sem
er úr graníti. Hreyfing og litirnir
heilluðu hana strax og minntu
hana á hraungos.“
Leyndardómar eldhússins
Þegar inn í eldhúsið er komið og
innréttingin skoðuð grunar engan
að þar leynist vaskahús með öllum
þægindum og má með sanni segja
að þar hafi Erna Geirlaug hannað
leynirými. Þar fær efniviðurinn
áfram að njóta sín og er vaskahúsið
hrein samfella við eldhúsið.
„Hurðin inn í vaskahúsið er með
hreyfiskynjara og um leið og hún er
opnuð kviknar ljós þar inni. Hurð
irnar á tækjaskápnum eru líka með
hreyfiskynjara og þegar þær opnast
kvikna ljós í skápunum. Lýsing í
tækjaskápunum er mjög falleg og
hvernig hún lýsir upp granítið á
borðplötunni og bakið á tækja
skápnum sem nýtur sín þá sérstak
lega vel,” segir Erna Geirlaug.
Frúin á heimilinu
féll strax fyrir
steininum Black Cosmic
sem er úr graníti, en
litirnir og hreyfingin
minntu hana á eldgos.
6 kynningarblað A L LT 1. maí 2021 LAUGARDAGUR