Fréttablaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 66
Maðurinn minn og faðir okkar,
Baldur Ingvi Jóhannsson
Akurgerði 4, Reykjavík,
lést á Landspítalanum 11. apríl
síðastliðinn. Útförin fór fram í kyrrþey
að ósk hins látna. Hjartans þakkir fyrir
auðsýnda samúð og hlýju. Sérstakar þakkir
til starfsfólks á deild 11E fyrir einstaklega góða umönnun.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Rannveig Jónsdóttir
Magnús Dige Baldursson Una Erlín Baldursdóttir
Kjartan Dige Baldursson Jón Hrafn Baldursson
Alúðar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og vinarhug og réttu
okkur hjálparhönd við andlát og útför
ástkærs eiginmanns, föður
og tengdaföður,
Hafþórs Jónssonar
Brekkulæk 4.
Lilja Hjördís Halldórsdóttir
Tómas Bolli Hafþórsson Edward Duncan Subben
og aðrir ástvinir.
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson Jóhanna Eiríksdóttir
síðan 1996
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Sigurður Bjarni Jónsson útfararstjóriMagnús Sævar Magnússon útfararstjóri
Guðmundur Baldvinsson útfararstjóri Jón G. Bjarnason útfararstjóri
Óli Pétur
Útfararstjóri
s. 892 8947
Hinrik Valsson
Útfararstjóri
s. 760 2300
Dalsbyggð 15, Garðabæ
Sími 551 3485
osvaldutfor@gmail.com Þetta er fyrsti burstabær sem ég hef gert um ævina. Ætla bara að hafa þetta huggulegt hús og stefni að því að hafa fína íbúð hér inni,“ segir Sigfús Kristinsson
smiður þegar kíkt er til hans í allsér
stæða nýbyggingu sem blasir við frá
þjóðvegi 1 gegnum Selfoss, sem nefnist
Austurvegur. Þar er um eftirlíkingu
af gömlum torf bæ að ræða að utan
verðu en þegar komið er inn blasir við
nýmóðins skipulag.
Sigfús tekur fram að hann hafi byggt
þetta hús með aðstoð dóttursonar síns
sem heiti Benedikt. „Hann hefur alist
alveg upp hjá mér. Hafdís dóttir mín
er móðir hans og faðir hans er Egypti.“
Hann kveðst hafa teiknað húsið sjálf
ur. „Ég er með réttindi til að leggja
fram teikningar hjá byggingarnefnd.
Er búinn að vera í smíðum í mörg ár,
byggði Fjölbrautaskólann hér á Sel
fossi að öllu leyti og líka vöruhúsið. Hef
líka útskrifað þrjátíu og tvo lærlinga
gegnum árin.“
Ekki hefur Sigfús í hyggju að búa í
nýja húsinu. „Ég bý í húsinu hérna við
hliðina,“ segir hann og bendir á reisu
legt hús á sömu lóð og burstabærinn.
Hann kveðst eiga lóðina alveg frá Aust
urveginum og það séu margir búnir að
falast eftir henni.
Hann neitar því ekki að nýi bærinn
hans veki athygli. „Þeir komu hingað
um daginn Guðni Ágústsson og Hall
dór Blöndal. Það var skemmtilegt heim
sókn. Guðni vann nú hjá mér í þrjú ár
sem verkamaður hér áður fyrr,“ lýsir
Sigfús og okkur kemur saman um að
hann mæti örugglega í vígslu bursta
bæjarins.
Myndarlegt skrif borð er á miðju
gólfi með ábreiðu yfir og ýmsum smá
verkfærum ofan á sem smiðirnir þurfa
á að halda. „Það var leigjandi hjá mér
í húsinu hinum megin í tuttugu og tvö
ár, það var séra Kristinn Ágúst Guð
finnsson. Hann skildi þetta skrif borð
eftir og sagði mér að henda því bara,
en mér finnst það of gott til þess,“
segir Sigfús og kveðst búinn að leigja
nokkrum prestum húsnæði. Gerir
síðan grein fyrir þeim. „Fyrir utan séra
Kristin Ágúst eru það Þórir Jökull Þor
steinsson, Rögnvaldur Finnbogason
og Ingólfur Ástmarsson. Einn þeirra
spurði mig: „Á hvað trúir þú?“ Hvernig
á maður að svara presti? Ég sagði alveg
um leið: „Það er staðreynd að við erum
hérna báðir. Það vitum við. En það
verður ekkert til úr engu. Einhvers
staðar höfum við komið frá. Svo þegar
við förum héðan þá eigum við inni hjá
þeim sem hefur holað okkur niður hér.
Hann ber ábyrgð á okkur og verður að
taka við okkur aftur.“ Presturinn glápti
á mig og vissi ekkert hvað hann átti að
segja.“
Þó Sigfús eigi tæp 89 ár að baki er
hann sprækur eins og lækur. Hann
hefur skýringu á því: „Það verður eng
inn gamall þegar hann hefur áhuga
fyrir sínu starfi.“ gun@frettabladid.is
Nýr bær með gömlu sniði
Sigfús Kristinsson, smiður á Selfossi, er að byggja hús sem hefur yfirbragð gömlu torf-
bæjanna en verður að innanverðu eins og hver önnur íbúð. Hann teiknaði það sjálfur.
Sigfús er að innrétta huggulega íbúð inni í torfbænum. Hún verður ekkert gamaldags. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR
Bærinn blasir við frá Austurveginum á Selfossi og er sannkölluð bæjarprýði.
Þeir komu hingað um daginn
Guðni Ágústsson og Halldór
Blöndal. Það var skemmtilegt
heimsókn.
1 . M A Í 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R34 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT