Fréttablaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 78
BÍLAR
Fyrsta GTX-útgáfa Volkswagen
er komin fram á sjónarsviðið
en það er öflugri útgáfa ID.4 raf-
jepplingsins. Er hann með 480
km drægi og hröðunin í 100 km á
klst. er 6,2 sekúndur.
Hafin er forsala á bílnum í Evrópu
og þá einnig á Íslandi, en verðið á
bílnum byrjar í 6.990.000 kr. „Mikið
hefur verið kallað eftir fjórhjóla-
drifnum alrafmögnuðum fjölskyldu-
bílum á góðu verði og er það okkur
sönn ánægja að geta nú uppfyllt þær
óskir,“ sagði Jóhann Ingi Magnús-
son, vörumerkjastjóri Volkswagen
á Íslandi, við þetta tækifæri og bætti
við að fyrstu bílarnir verði afhentir
nýjum eigendum í sumar en á næstu
vikum muni Volkswagen á Íslandi
þó fá fjórhjóladrifinn sýningarbíl.
Þangað til er hægt að prófa ID.4 sem
er nú þegar í sölu.
Líkt og ID.4 byggir hann á sömu
MEB botnplötu en til viðbótar við
201 hestafls rafmótor við afturdrifið
er kominn auka mótor við fram-
drifið svo að afl bílsins stekkur í 295
hestöfl. Að sögn Volkswagen dugar
það til að senda bílinn í hundraðið á
6,2 sekúndum. Það er álíka hröðun
og í núverandi gerð Golf GTI, sem er
mun minni og léttari bíll. Reyndar
er hámarkshraði ID.4 GTX mun
minni, en hann er takmarkaður
við 180 km á klst. til að auka drægi
bílsins.
Hægt er að fá bílinn með sér-
stökum sport-pakka en þá kemur
hann á lægri fjöðrun og ákveðnara
stýri, auk stillanlegrar fjöðrunar í
dýrustu útgáfum. GTX er með sömu
77 kWst rafhlöðu og Pro Perform-
ance-útgáfan sem við prófuðum á
dögunum. Vegna auka rafmótors
minnkar drægið aðeins þótt annað,
eins og hleðslutími, haldist óbreytt.
Útlitslega aðgreinir bíllinn sig með
baklýsingu í framstuðara ásamt
sportlegri stuðurum og 20 tommu
álfelgum. Að innan takmarkast
breytingarnar við hefðbundnar
sportútgáfur, með álpedölum,
rauðum ísaumi, sportsætum og
sportstýri.
VW ID.4 GTX frumsýndur
Hægt er að fá VW ID.4 GTX með 21 tommu álfelgum.
Með sífellt fullkomnari stýris-
búnaði og akreinavörum í nýjum
bílum í dag verða þeir þannig að
ökumaður þarf minna að hafa fyrir
hlutunum.
Í Bretlandi eru í undirbúningi lög
sem leyfa ökumönnum bíla með
þess háttar búnaði að taka báðar
hendur af stýri. Er talið líklegt að
lögin taki gildi fyrir lok þessa árs.
Lögin leyfa með öðrum orðum að
taka má hendur af stýri á undir 60
km hraða á hraðbrautum, enda
hefur þá aðstoðarbúnaðurinn tekið
yfir.
Ekki er nóg að bíllinn sé búinn
einfaldari gerð akreinavara sem
pípir aðeins ef komið er að brún
línu, heldur þarf bíllinn að geta
tekið stjórnina og haldið bílnum
innan akreinar sjálfur. Slíkir
akreina varar kallast ALKS sem
stendur fyrir „Autonomous Lane
Keeping Systems.“ Sumir bílar eru
einnig búnir sjálfvirkum hraða-
stilli sem heldur þá einnig réttu bili
í næsta bíl. Þetta getur verið þægi-
legur búnaður að hafa þegar umferð
þyngist í nágrenni stórborga.
Bráðum löglegt að sleppa höndum
Meðal fyrstu bíla til að bjóða ALKS var Volvo XC90 en við reynsluakstur
bílsins á Spáni kölluðu hönnuðir Volvo búnaðinn „Hönd Guðs“.
Njáll
Gunnlaugsson
njall@frettabladid.is
HAPPY HOUR/rifrestaurant
/rifrestaurant
Beinlausir kjúklingavængir
Beinlausir kjúklingabitar með vali um
buffalo sósu, bbq eða bourbon glaze.
Shake
Súkkulaði
Vanillu
Jarðaberja
9 9 0 k r
Hádegistilboð
2.090 kr
Val á milli tveggja rétta,
nýjir réttir í hverri viku!
ALLAN DAGINN
ALLA DAGA
Í BRETLANDI ERU Í UNDIR-
BÚNINGI LÖG SEM LEYFA
ÖKUMÖNNUM BÍLA MEÐ ÞESS
HÁTTAR BÚNAÐI AÐ TAKA
BÁÐAR HENDUR AF STÝRI.
MIKIÐ HEFUR VERIÐ
KALLAÐ EFTIR
FJÓRHJÓLADRIFNUM ALRAF-
MÖGNUÐUM FJÖLSKYLDUBÍLUM
Á GÓÐU VERÐI OG ER ÞAÐ
OKKUR SÖNN ÁNÆGJA AÐ GETA
NÚ UPPFYLLT ÞÆR ÓSKIR.
Sænskt lögfræðifyrirtæki er að und-
irbúa hópmálsókn gegn umboðs-
aðila Polestar í Noregi.
Þar var því haldið fram á heima-
síðu umboðsins að drægi bílsins
væri 470 kílómetrar sem myndi
duga til aksturs frá Osló til Hems-
dal-skíðasvæðisins og aftur til baka.
Það kom svo í ljós að það var ekki
raunin þótt um opinberar WLTP-
tölur Polestar 2 væri að ræða, alla
vega ekki að vetri til.
Þess vegna var textanum breytt
og talað um Norefjell í staðinn, sem
eru 230 kílómetrar fram og til baka.
Það sem málið snýst um er hvort
fyrirtækið hafi brotið markaðslög
með því að auglýsa með þessum
hætti.
Því vilja þeir sem keyptu bílana
áður en textanum var breytt fá
bætur sem hljóða upp á 75.000
krónur norskar hver, en um 3.500
kaupendur er að ræða.
Hópmálsókn gegn Polestar í Noregi
Polestar 2 var sagður hafa meira
drægi en raunin var í akstri.
1 . M A Í 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R46 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð