Fréttablaðið - 01.05.2021, Side 82
LEIKLIST
Nashyrningarnir
Eugéne Ionesco
Þjóðleikhúsið
Þýðing: Guðrún Vilmundardóttir
Leikstjóri: Benedikt Erlingsson
Leikarar: Arnmundur Ernst Back-
man, Flemming Viðar Valmunds-
son, Guðjón Davíð Karlsson,
Hákon Jóhannesson, Hildur Vala
Baldursdóttir, Hilmir Snær Guðna-
son, Ilmur Kristjánsdóttir, Pálmi
Gestsson, Rúfus, Sigríður Eyrún
Friðriksdóttir, Siobhán Antoinette
Henry, Steinunn Ólína Þorsteins-
dóttir, Örn Árnason, o.fl.
Leikmynd: Börkur Jónsson
Búningar: Filippía I. Elísdóttir
Lýsing: Björn Bergsteinn Guð-
mundsson
Tónlist: Davíð Þór Jónsson
Hljóðhönnun: Kristján Sigmundur
Einarsson
Eftir tvær tilraunir tókst Nashyrn-
ingum Eugéne Ionesco loksins að
brjóta sér leið á stóra svið Þjóð-
leikhússins en sýningin átti að
vera jólasýning Þjóðleikhússins á
þessu leikári. Frumsýningar voru
tvær sökum takmarkana, sú fyrri
á sumardaginn fyrsta og sú seinni
daginn eftir. Benedikt Erlingsson
tekst hér aftur á við klassískar leik-
húsbókmenntir á stóra sviðinu en
síðast leikstýrði hann Húsinu eftir
Guðmund Steinsson á sömu fjölum
og nú reynir hann að smala saman
annars konar óargadýrum. Eða svo
virðist í fyrstu.
Nashyrningarnir voru upphaf-
lega skrifaðir sem viðbragð við
styrjaldarárunum en bestu leikrit-
in eru tímalaus og styrjaldarástand
birtist í mörgum myndum. Ionesco
flettir ofan af hjarðhegðun borgara-
stéttarinnar, smáborgurunum sem
apa vitleysuna hver eftir öðrum en
tekst aldrei að rýna efnislega í mál-
efni samtímans eða bregðast við af
rökfestu. Ætla mætti að mannkyn-
ið væri lengra komið eftir sextíu ár
en upprisa öfgaf lokka, taumlaus
naflaskoðun samfélagsins og ring-
ulreiðin í heiminum sýnir að lítið
hefur breyst. Mannskepnan er söm
við sig. Benedikt Erlingsson er trúr
textanum, meistaralega þýddum af
Guðrúnu Vilmundardóttur, þó með
ansi djörfum undantekningum og
viðbótum sem betra er að þegja um.
Áhorfendur verða hreinlega að gera
sér ferð og taka afstöðu, krafa sem
leikskáldið setti sömuleiðis fram á
sínum tíma.
Burðarstólpi sýningarinnar
Ein af viðbótunum er sú að per-
sónur leikritsins bera nöfn þeirra
leikara sem tóku þátt í upprunalegu
sýningunni á Nashyrningunum á
sama sviði árið 1961. Lárus, Róbert,
Rúrik og Herdís eiga þannig aftur
fund með áhorfendum Þjóðleik-
hússins. Þetta er lagleg lausn og
nærir sýninguna. Erlingur æðir líka
inn í söguna, óvænt boðflenna.
Guðjón Davíð Karlsson leikur
Lárus, skrifstofublók sem finnst
sopinn ansi góður og hefur ekki
fundið sér stað í tilvistinni. Slíkur
hvunndagsmaður hentar hæf i-
leikum Guðjóns Davíðs prýðilega,
örvænting hans verður áþreifan-
leg eftir því sem líða tekur. Hér er
hann í essinu sínu og burðarstólpi
sýningarinnar.
Aðrar persónur eru fremur tákn-
myndir heldur en þrívíðir karakt-
erar. Kvenpersónur Ionesco í Nas-
hyrningunum líða kannski mest
fyrir tilfinningalegu f latneskjuna
en sýningin græðir ríkulega á
reynslumiklum leikkonum. Ilmur
Kristjánsdóttir leikur Herdísi, sam-
starfskonu Lárusar sem hann elskar
í laumi, af staðfestu með skvettu
af húmor. Lokaatriði hennar er
gífurlega krefjandi og hún skilar
því nokkuð vel en þurft hefði að
fínstilla aðeins betur til að loka-
ákvörðun Herdísar verði skiljanleg.
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
staldrar stutt við í hlutverki rök-
fræðingsins á sviðinu en hún skilar
svo sannarlega sínu. Orka hennar
er svo mikil að hún gerir dýrindis
máltíð úr leiðindapúkanum þrátt
fyrir púkalegu draktina. Svo bætir
hún í þegar kemur að smærri hlut-
verkum.
Hilmir Snær umturnast
Hilmir Snær Guðnason leikur
Róbert, kassalaga meðaljón sem
stökkbreytist í villidýr. Hilmir
Snær hreinlega umturnast í einu
besta atriði kvöldsins enda leikari
á öðrum mælikvarða. Arnmundur
Ernst Backman leikur Rúrik, tákn-
mynd þeirra ungu og sterku sem
munu erfa heiminn. Hlutverkið
leysir hann af aga með kímnigáfuna
að vopni. Undir lokin í snúnum
samræðum þeirra Lárusar vinna
fimleikaæfingar hans þó á móti
senunni og þeim hefði átt að sleppa.
Lokaaugnablikin í síðustu senum
þeirra beggja þyrftu aðeins meira
andrými og næg innistæða er fyrir
slíku.
Aðrir fara með smærri hlutverk
en breidd leikhópsins kemur til
góða. Pálmi Gestsson og Örn Árna-
son grípa til reynslunnar, Sigríður
Eyrún Friðriksdóttir og kötturinn
Rúfus stela senunni snemma í sýn-
ingunni en Hákon Jóhannesson
og Hildur Vala Baldursdóttir njóta
sín í hléi. Áhorfendur eru hvattir
til að fara eftir tilmælum þeirra
og bregða sér í forsalinn. Siobhán
Antoinette Henry fer fyrir hópi
starfsfólks Þjóðleikhússins sem
tekur þátt í sýningunni og gefur
hún síðari senum fjarstæðukennd-
an blæ með fínni sviðsframkomu
og skemmtilegum leiklestri.
Listrænt innsæi
Í gegnum tíðina hafa sviðsmyndir
Barkar Jónssonar stundum verið
of íburðarmiklar en í Nashyrn-
ingunum fer hann aðrar leiðir.
Hér ræður einfaldleikinn ríkjum.
Fyrsti þáttur gerist ekki á sviðinu
en seinna færist leikurinn þangað.
Leikmyndin nánast andar með
leikritinu. Svo sprengir hann allt
í loft upp. Hljóðhönnun Kristjáns
Sigmundar Einarssonar og ljósa-
hönnun Björns Bergsteins Guð-
mundssonar hamrar á áhorfend-
um úr öllum áttum. Ógnarhljóðin
frá nashyrningunum heyrast úr
ýmsum hornum og iðrum hússins,
umvafðir þokukenndu ljósi ýfa þeir
upp ónotatilfinningu og ótta. Tón-
listarlausnir Davíðs Þórs Jónssonar,
með aðstoð harmónikkuspilarans
Flemmings Viðars Valmundssonar,
skortir heilsteypta sýn. Sum inn-
skotin hitta beint í mark en önnur
eru of löng. Filippía I. Elísdóttir
hefði sömuleiðis þurft djarfari sýn
á fatnaðinn sem er fremur hvers-
dagslegur en grímurnar eru stór-
fenglegar, grímugerðarteymið á
hrós skilið.
Benedikt Erlingsson leiðir hóp-
inn af listrænu innsæi í frábærri
en stundum óagaðri sýningu. Nas-
hyrningarnir varpa fram áleitnum
spurningum sem snerta okkur öll.
Er mannkynið í eðli sínu óargadýr?
Er hjarðhegðun alltaf slæm? Er sið-
gæði óhagganlegur fasti í heimin-
um? Hvað gerir sá sem upplifir sig
vera einn á móti heiminum? Eftir-
minnilegustu leiksýningarnar eru
ekki endilega þær sem eru galla-
lausar eða fylgja hefðbundinni
túlkun heldur þær sem fá áhorf-
endur til að hugsa og dvelja með
sýningunni, jafnvel löngu eftir að
tjaldið fellur. Nashyrningarnir eru
svo sannarlega slík sýning – þannig
að hvín í.
Sigríður Jónsdóttir
NIÐURSTAÐA: Nashyrningarnir eru
skylduáhorf.
Örvænting einstaklingsins
Ilmur Kristjánsdóttir og Guðjón Davíð Karlsson í hlutverkum sínum í Nashyrningunum. MYND/AÐSEND
1 . M A Í 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R50 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Barónsstíg 4, 101 Reykjavík • Mýrarvegi , 600 Akureyri
Hafnargata 51-55, 230 Reykjanesbæ
Kemur með Costco til þín...
JARÐARBER
BLÁBER
JARÐAR-
BER
907 g
1799
KR/PK
BLÁBER
680 g
1499
KR/PK