Fréttablaðið - 01.05.2021, Side 90
VIÐ LEGGJUM MIKLA
ÁHERSLU Á FJÖL-
BREYTNI OG EYÐUM GÓÐUM
TÍMA Í AÐ HLUSTA Á TÓNLIST.Nú á fimmtudaginn tilkynnti Iceland Air waves 28 ný atriði sem munu verða á hátíðinni í haust. Um leið er
það orðið ljóst að stefnt er að því að
halda hátíðina í allri sinni dýrð dag-
ana 3. til 6. nóvember næstkomandi
í miðborg Reykjavíkur. Atriðin sem
tilkynnt voru bætast í hóp fjölda
annarra sem þegar höfðu verið til-
kynnt en alls verða um 100 atriði á
dagskrá Iceland Airwaves.
„Við erum ótrúlega spennt fyrir
hátíðinni í ár. Þetta gefur okkur
svo mikið bara að geta hlakkað til
Iceland Airwaves,“ segir Sindri Ást-
marsson, dagskrárstjóri hátíðar-
innar. „Við Íslendingar erum nátt-
úrulega svo lánsamir að ein allra
skemmtilegasta og umtalaðasta
tónlistarhátíð heims fari fram hér í
miðborg Reykjavíkur og svo virðist
sem Iceland Airwaves verði fyrsta
hátíð sinnar tegundar sem nær að
fara fram í eðlilegri mynd án tak-
markana.“
Eitt af stærstu nöfnunum í til-
kynningunni að þessu sinni er
breska söngkonan Arlo Parks, en
hún hefur slegið í gegn að undan-
förnu og fékk meðal annars þrjár
tilnefningar til Brit-verðlauna á
dögunum. „Við erum svakalega
heppin að fá Arlo. Oft þegar við
bókum tónlistaratriði erum við að
bóka stjörnur framtíðarinnar og
oft springa tónlistarmennirnir út
einum eða tveimur árum eftir að
þau spila hér, en Arlo er akkúrat
að springa út núna og því erum
við gríðarlega ánægð með þessa
bókun.“
Fleiri nöfn sem vert er að nefna
eru meðal annars breska hljóm-
sveitin Sad Night Dynamite, KeiyA
og Bartees Strange. „Við leggjum
mikla áherslu á f jölbreytni og
eyðum góðum tíma í að hlusta á
tónlist. Í venjulegu árferði erum
við mikið á ferðinni á tónlistarhá-
tíðum erlendis og höfum því oft
séð stóran hluta tónlistaratriðanna
áður en við kynnum þau á hátíðina,
en af augljósum ástæðum var ekk-
Airwaves
snýr aftur
Nú hefur verið tilkynnt að tónlistarhátíðin
Airwaves verði haldin með sínu uppruna-
lega sniði á sviði, í nóvember. Þar kemur
fram allt helsta tónlistarfólk landsins. Sindri segir hátíðina í ár sérstaklega veglega. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Breska hljómsveitin Mumford and sons spilaði árið 2017. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Margir hlakka eflaust til að komast á tónlistarhátíð. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Alvia Islandia hefur slegið í gegn á tónlistarhátíðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
ert um ferðalög þetta árið þannig að
við erum jafn spennt og aðrir að sjá
þessi atriði.“
Það er mikið um nýliða á Iceland
Airwaves og þar á meðal má nefna
til dæmis Laufeyju sem var valin
bjartasta vonin í f lokki djass- og
blústónlistar á Íslensku tónlistar-
verðlaununum auk Ouse sem gert
hefur stórkostlega hluti á Spotify,
Kristín Sesselja sem hefur verið
fastagestur í útvarpstækjum lands-
manna og indírokksveitin superser-
ious sem hefur komið skemmtilega
á óvart að undanförnu.
Miðasala á Airwaves er í fullum
gangi, verðið hækkar þegar nær
dregur þannig að við mælum með
að fólk tryggi sér miða strax.
Eftirfarandi flytjendur er búið að
tilkynna að komi fram:
Arlo Parks, Aron Can, Axel Fló-
vent, Bartees Strange, Countess
Malaise, Denise Chaila, Eydís
Evensen, Francis of Delirium, Hold-
gervlar, Inspector Spacetime, KAM-
ARA, Kælan Mikla, KeiyaA, Kristín
Sesselja, Laufey, Magnús Jóhann,
Ouse, Power Paladin, Sad Night
Dynamite, Smoothboi Ezra, Snny,
Superserious, TootArd, The Vintage
Caravan, Tuys, Tyson Vök, Wu-Lu.
steingerdur@frettabladid.is
1 . M A Í 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R58 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ