Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.05.2021, Qupperneq 92

Fréttablaðið - 01.05.2021, Qupperneq 92
Lífið í vikunni 25.04.21- 01.05.21 AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is STÓR SKAMMTUR AF KK KK gaf loks út sína fyrstu vínil- plötu í gær. Tvöföldu safnplötuna KK – Árin 1985-2000. Andri Freyr Viðarsson, útvarpsmaður og vinur tónlistarmannsins, átti hugmyndina að út- gáfunni og tók að sér að hlusta á tónlist KK stanslaust í tvo mánuði til þess að velja lög á gripinn. SPOCK Á MOKKA Sýning Þórdísar Claessen, Djöful- gangur og heiðríkja, stendur yfir á Kaffi Mokka. Þar mætast til dæmis sexhentur Jesús og stóíski Vúlkaninn herra Spock úr Star Trek sem flytur íslenskar sjónvarps- veðurfregnir í einu verkanna. NÁND INNAN MARKA Hjónin Edda Björg Eyjólfsdóttir leik- kona og Stefán Magnússon tónlistarmaður ásamt félögum fundu upp- setningu sinni á verkinu Haukur & Lilja eftir Elísabetu Jökulsdóttur nokkuð óvenjulegan stað í Ás- mundarsal sem frægur er orðinn þegar sóttvarnir eru annars vegar en Edda segir vel gætt að öllu slíku og með 24 gesti er boðið upp á nánd innan takmarkana. ÓSKARSBÖMMERINN Vikan hófst með beinni útsend- ingu frá Óskars- verðlaununum þar sem áhorf var í sögulegu lágmarki. Ekki bætti úr skák að Anthony Hopkins var valinn besti leikarinn en ekki Chadwick heitinn Boseman sem flestir höfðu veðjað á. Vakti þetta nokkra hneykslun og jafnvel reiði sem varpaði skugga á árshátíð fal- lega og fræga fólksins. Tó n l i s t a r m a ð u r i n n Barði Jóhannsson, sem enn er jafnan kenndur við Bang Gang, var að gera tónlist sína við h r y l l i n g s my n d i n a Agony aðgengilega á Spotify. „Myndin kom út fyrir ári síðan og er fyrsta mynd leikstjórans Mich­ ele Civetta. Hún átti að fara í bíó en svo kom COVID. Það varð til þess að myndin endaði beint á streymis­ veitunum. Skömmu eftir að myndin kom út þá fór ég að dúlla mér við að endur­ mixa og fínisera tónlistina fyrir útgáfu svo að það sé líka hressandi að hlusta á hana eina og sér,“ segir Barði, sem er ekki ókunnur hryll­ ingstónlist eftir að hafa samið tón­ listina við tryllinn Would You Rather sem hefur gengið vel á streymis­ veitum þar sem Agony endaði líka. Barði segir aðspurður að óhætt sé að mæla með Agony. Fyrir rétta fólkið. „Sko, þetta er dulúðleg og draugaleg mynd sem er fallega tekin, gerð fyrir ákveðinn hóp fólks. Þeim sem fíla þessa tegund af bíómyndum á eftir að finnast hún skemmtileg.“ Hér talar Barði af marktækri þekkingu þar sem hann tilheyrir sjálfur þessum flokki hryllingsaðdá­ enda og segist vera með hina þekktu norrænu melankólíu í blóðinu sem leki út í tónlistina við Agony. Heillandi hryllingsfeðgin „Tónlistin er róleg og flæðandi með undirliggjandi óróa sem lýsir vel stemningunni í myndinni. Síðan hef ég verið mjög hrifinn af göml­ um, ítölskum hryllingsmyndum og má gæta áhrifa þaðan,“ segir Barði og á þá helst við myndir áttunda og níunda áratugarins. Agony tengist síðan þessum áhuga Barða lóðbeint í gegnum aðalleikkonuna Asiu Argento. „Pabbi aðalleikkonunnar er einn af mínum uppáhaldsleikstjórum,“ segir Barði, um meistara Dario Arg­ ento sem þekktastur er fyrir mynd­ ina Suspiria frá 1977. „Suspiria er ein af mínum uppáhaldsmyndum og líka tónlistin úr henni sem Goblin gerði og er alveg stórkostleg.“ Barði segir í raun margt við Agony minna sig á ítölsku klassík­ ina og vekja einhvers konar nútíma­ lega retro­stemningu í huga hans. „Kvikmyndatakan og margt annað minnir mig svolítið á þessar gömlu klassísku. Myndin gerist á Ítalíu, í kastala og það er einhver skrítin drauganornastemning.“ Zombíur og spaghettí Asia Argento hefur meðal annars leikið í myndunum Frida, xXx, Marie Antoinette og uppvakninga­ hrollinum Land of the Dead en auk hennar státar Agony af þeim forn­ fræga Franco Nero í aukahlutverki. Hann er þekktastur fyrir að hafa leikið Django í samnefndum spag­ hettívestra en hefur í seinni tíð látið að sér kveða sem illmenni í Die Hard 2 og John Wick 2 auk þess sem Quentin Tarantino gat ekki stillt sig um að tefla honum fram í Django Unchained. Leikstjórinn, Michele Civetta, hefur hins vegar verið iðinn við auglýsingagerð og verið tilnefndur til Emmy­verðlauna í þeim bransa auk þess sem hann hefur leikstýrt tónlistarmyndböndum fyrir ekki ómerkara fólk en Lou Reed og Yoko Ono. Hryllileg ánægja Þannig að víða liggja þræðir og Barði telur líklegt að þeir eigi eftir að vinna meira saman. „Við erum í góðum fílíng,“ segir Barði sem hefur samið og lagt til tónlist í yfir tugi verkefna í kvikmyndum, leikhúsi og sjónvarpi. Hvað aðsókn varðar ber þar einna hæst tónlistin við íþrótta­ dramað De toutes nos forces (The Finishers) frá 2013 sem fór á topp­ inn í Frakklandi og ætla má að um 800.000 manns hafi séð í bíó. „Þetta er allt önnur stemning en fjölskyldumynd,“ segir Barði um Agony og hryllinginn. „Sko, þetta finnst mér skemmtilegt en það er meiri peningur og áhorf á fjöl­ skyldumyndirnar. Þannig að þetta er meira til að vökva ánægjuna. Ég skemmti mér alveg konunglega að gera þetta. Dulúðin, draugagang­ urinn og áttundi áratugurinn létta lundina og auka á hressleikann.“ toti@frettabladid.is Hryllileg ánægja Barða Barði úr Bang Gang vökvaði ánægjuna með tónlist hryllings- myndarinnar Agony en verkefninu fylgdi sá yndisauki að Asia Argento, dóttir uppáhalds leikstjórans hans, er í aðalhlutverki. Barði hefur samið tónlist fyrir fjölda kvikmynda og horfir ekki í aurinn þegar honum bjóðast hryllingsverkefni á jaðrinum. MYND/SAGA SIG Agony skartar þeirri mögnuðu leik- konu Asiu Argento í aðalhlutverki. Aðeins 187.920 kr. Rafdrifinn 3ja sæta leðursófi með niðurfellanlegu borði í miðsæti. Fáanlegur í Svörtu og gráu leðri. Særð: 198 x 95 x 98 cm Fullt verð: 234.900 kr. AUSTIN rafdrifinn sjónvarpssófi VIKUTILBOÐ 29. apríl til 5. maí Aðeins 111.920 kr. Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði LICATA tungusófi Glæsilegur tungusófi í Licata línunni. Fæst hægri eða vinstri (tunga ófæranlegt). Koníakslitt Kentucky áklæði á mynd en fleiri áklæðisgerðir og litir fáanlegir. Hægri eða vinstri tunga. Svartir nettir járnfætur. Stærð: 262 x 226 x 82 cm. Fullt verð: 244.900 kr. www.dorma.is VEFVERSLUN ALLTAF OPIN KOLDING hægindastóll með skemli Stillanlegur hægindastóll með skemli. Svart, rautt eða grátt leður/PVC. Fullt verð: 139.900 kr. 20% AFSLÁTTUR VIKU TILBOÐ Aðeins 195.920 kr. 20% AFSLÁTTUR VIKU TILBOÐ 20% AFSLÁTTUR VIKU TILBOÐ 1 . M A Í 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R60 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.