Bændablaðið - 11.02.2021, Blaðsíða 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. febrúar 202124
LÍF&STARF
LÍF&STARF
Sigríður Ævarsdóttir á Gufuá í Borgarfirði er magnaður teiknari og málari:
Dýrin í mestu uppáhaldi en getur teiknað og málað hvað sem er
„Ég heiti Sigríður og bý ásamt eig-
inmanni mínum, Benedikt Líndal,
og yngsta barni okkar hjóna á
jörðinni Gufuá í Borgarfirði. Við
höldum þar hross og smávegis
af geitum og forystufé og stund-
um hrossatamningar og þjálfun.
Einnig bjóðum við upp á upplif-
anir fyrir gesti í anda hæglætis
(slow travel). Fólk kemur þá til
okkar í geitalabb, kíkir á forystufé
eða fer í náttúrugöngu með sagna-
þul. Þetta er allt hægt að skoða
betur inn á vefsíðunni www.gufua.
com,“ segir Sigríður Ævarsdóttir
á Gufuá í Borgarfirði.
Hún hefur getið sér gott orð
fyrir teikningar sínar enda meira
en nóg að gera hjá henni að teikna
og mála myndir fyrir alls konar
fólk, Sigríður hefur sérstaklega
gaman af að skapa á blaði myndir
sem tengjast dýrum.
Bóndi í 40 ár
„Ég man nú ekki hvenær ég byrjaði
að teikna eða mála, það er eitthvað
sem ég hef alltaf gert, með hléum
þó, þegar ég hef verið upptekin í
öðru. Það er bara eitthvað í blóðinu,
þetta með að skapa. Verandi bóndi
í hartnær 40 ár og lengst af með
stórt heimili hefur ekki alltaf verið
tími eða aðstaða til að mála. Þá var
gott að notast við blýant, lítið mál
að draga fram teikniblokkina milli
verka og kippa henni svo til hliðar
þegar tíminn kláraðist. Verra hefði
það verið ef ég hefði verið að mála
með olíu eða akrýl, sem þarf tíma,
sem ég hafði ekki, til að þorna. Ég á
alveg eftir að prófa að mála með svo
leiðis litum en fer kannski út í það
núna í seinni hálfleik,“ segir Sigríður
létt í bragði, aðspurð hvenær hún
hafi byrjað að teikna og mála. Þá
má geta þess að tveir synir hennar
og Benedikts eru rithöfundar (en það
eru þeir Ævar Þór og Guðni Líndal)
og Sigurjón Líndal er í myndlistar
námi og ekki má gleyma dótturinni,
Ingibjörgu Ólöfu, en hún er mjög
flink handverkskona, sérstaklega í
leir og steinalist.
Lítur ekki á sig listamann
Sigríður hefur ekki farið í mynd
listar nám annað en þá áfanga sem
voru í boði í MH þegar hún var þar
í skóla á sínum tíma, enda ætlaði
hún hvort eða er aldrei að verða
listamaður og hún lítur ekki á sig
sem listamann, hún segist bara mála.
Það sama á við um ljósmyndun
og ýmislegt sem hún skrifar, en
hún sé þó hvorki ljósmyndari né
rithöfundur.
Dýrin eru skemmtilegust
Sigríður segist nánast alltaf vera
með fyrirmyndir þegar hún er að
mála og teikna. Þannig hafi það
verið frá því að hún var unglingur.
„Já, dýrin mín eru oftast fyrir
myndir mínar, sérstaklega hest arnir.
Þeir eru náttúrlega mjög skemmti
leg og oft ögrandi viðfangsefni en
ég get teiknað og málað hvað sem er
ef út í það er farið. Dýrin og búskap
ur eru áhugasvið
mitt og mér finnst
skemmtilegt að
mála dýr og þess
vegna mála ég þau.
Ég fór að leika mér
að mála myndir
af forystuhrútun
um mínum núna
nýlega því þeir
eru svo flottir og
vígalegir og í fram
haldinu prófaði ég
að mála, „venju
legar“ kindur. Ég
hefði aldrei trúað
því að óreyndu
hvað rollur eru
flottar fyrirmynd
ir. Svo er náttúr
lega mjög gaman
að mála fugla, þó
ég hafi ekki gert mikið af því, rétt
eins og það er mjög gaman að taka
ljósmyndir af þeim og reyndar alveg
sérstök „kategoría“ út af fyrir sig
að vera góður fuglaljósmyndari,“
segir Sigríður.
„Ef fyrirmyndin er góð skiptir
ekki máli hvaða dýr er um að ræða,
það sem skiptir mestu, sýnist mér,
er að ná karakter dýrsins sem um
ræðir og þar finnst mér augun vera
aðalatriðið.“
Nauðsynlegt að hafa frið
Sigríður segir að það sé miserfitt
eftir myndum að teikna og mála þær,
stundum sé hún lengi með myndina
en stundum komi það strax. Það fari
líka eftir dagsformi hennar, hvort
hún sé í stuði þegar hún sest niður
og byrjar. Henni finnst líka gott að
hafa frið í kringum sig en svo finnst
henni líka fínt að hlusta á eitthvað
áhugavert á meðan hún er að skapa
verkin sín.
Passar vel með búskapnum
og ferðaþjónustunni
Í framhaldi af því að Sigríður birti
á Facebooksíðunni sinni málaðar
myndir af hrútunum sínum, kisum
dóttur sinnar og einhverjum hrossum
af bænum, hefur fólk verið að
biðja hana um að mála myndir af
uppáhaldsdýrum sínum, eins og
hestum og hundum, sem hún hefur
gert með bros á vör.
„Já, já, það er nóg að gera og
það passar vel því vegna COVID
er rólegt í geitalabbi og lítið í gangi
í ferðaþjónustunni, svo ég hef tök
á að mála eitthvað fram á vorið og
vonandi hafa einhverjir áhuga á að
nýta sér það. Ég er reyndar að fara í að
myndskreyta bók sem við maðurinn
minn erum að byrja að vinna saman
og svo að undirbúa sumarið fyrir
geitalabb og fleira. Ég er sem sagt að
byrja að temja fullt af nýjum, ungum
geitum og forystusauði til að hafa í
upplifununum næsta sumar, og svo
þarf ég náttúrlega að mála þá,“ segir
Sigríður og skellir upp úr.
Þegar ástandið er orðið eðlilegt
vegna COVID ætlar Sigríður að vera
með málaðar myndir af dýrunum
sínum og minjagripi til sölu á bænum
þegar ferðaþjónustan fer vonandi af
stað í vor eða sumar. Þeir sem vilja
komast í samband við Sigríði geta
gert það í gengum netfangið hennar,
harmony@inharmony.is. /MHH
„Hestur og knapi“, falleg mynd eftir Sigríði en knapinn er Sigvaldi Lárus Guðmundsson, sem var í Hólaskólaverk-
námi á Gufuá um tíma, hér á hryssunni Trommu.
Hestar eru í miklu uppáhaldi hjá Sigríði.
Kattarmynd að hætti Sigríðar.
Folald á spena hjá mömmu sinni,
falleg mynd hjá Sigríði.
Verk eftir Sigríði, flottur og fallega
hyrndur hrútur.
Sigríður á Gufuá í Borgarfirði einbeitt við skrifborðið sitt heima í sveitinni að galdra fram eitt af verkum sínum. Hafi
fólk áhuga á að fá hana til að vinna verk fyrir sig er best að senda henni tölvupóst á netfangið harmony@inharmony.is